Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Serana Brown, framkvæmdastjóri verkefnis um sjálfbæra þróun hjá KPMG á alþjóðavísu, hélt erindi á ráðstefnu Matvælalandsins Íslands um ábyrga matvælaframleiðslu og heimsmarkmið SÞ fyrir skömmu.
Serana Brown, framkvæmdastjóri verkefnis um sjálfbæra þróun hjá KPMG á alþjóðavísu, hélt erindi á ráðstefnu Matvælalandsins Íslands um ábyrga matvælaframleiðslu og heimsmarkmið SÞ fyrir skömmu.
Mynd / TB
Fréttir 8. júní 2018

Matvælaframleiðsla á Íslandi og sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna

Höfundur: Vilmundur Hansen

Markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem samþykkt voru á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 2015 boða fjölbreyttar framfarir á heimsvísu.

Markmiðin, sem eru sautján, snúa að samfélaginu í víðasta skilningi, má þar nefna framleiðsluhætti, notkun á orku, samvinnu, útrýmingu á fátækt og hungri, og eiga að tryggja góða heilsu og vellíðan. Samstarfsvettvangur um Matvæla­landið Ísland efndi til ráðstefnu um ábyrga matvælaframleiðslu og heimsmarkmið SÞ fyrir skömmu.

Meðal gesta á ráðstefnunni var Serana Brown, framkvæmdastjóri verkefnis um sjálfbæra þróun hjá KPMG á alþjóðavísu. Erindi hennar kallaðist The Sustainable Development Goals: Opportunities for the Icelandic Food Industry.

Bakgrunnur í endurskoðun og þróunaraðstoð

Serena Brown vann sem endurskoðandi á alþjóðasviði hjá KPMG í tíu ár og starfaði meðal annars á Bretlandseyjum, Hong Kong og Ástralíu áður en hún hóf að vinna að hjálpar- og þróunarstörfum í löndunum sunnan Sahara. Í Kenía, Suður-Súdan, Tansaníu og Fílabeinsströndinni starfaði hún að hluta til með bændum við þróun landbúnaðar.

„Reynsla mín af þróunarstarfi í Afríku samfærði mig um að þrátt fyrir að hjálparsamtök séu víða að vinna frábært grasrótarstarf þarf meira til að hægt sé að leysa þau vandamál sem mannkynið stendur frammi fyrir. Ég tel að nauðsynlegt sé að virkja viðskiptaheiminn í auknum mæli til góðs og sem jákvætt afl í heiminum til að leysa þessi aðsteðjandi vandamál. Ég sneri því aftur til KPMG til að nýta reynslu mína af viðskiptum og þróunarstarfi.

Vinna við gerð sjálfbærni markmiða Sameinuðu þjóðanna og að auka vitund fólks og fyrirtækja á málefnunum og tækifærunum sem þeim tengjast hefur verið stórkostleg,“ segir Serena.

Væntingar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja

Serana segir að væntingar stjórn­valda, fjárfesta og neytenda um að fyrirtæki, bæði stór og smá, leggi sitt af mörkum til að auka sjálfbærni í heiminum séu miklar. „Það er ekki nóg fyrir fyrirtæki að segjast ætla að vinna að sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna heldur er ætlast til að starf þeirra sé gagnsætt og að hægt sé að fylgjast með því að þau standi við sitt.

Kannanir sýna að einungis 62% neytenda treystir matvæla­fyrirtækjum, 56% telja að tekjur fyrirtækja sem eingöngu hagnaðardrifin eigi eftir að dragast saman og 60% neytenda telur að stjórnarmenn fyrirtækja séu fremur drifnir áfram af græðgi en samfélagslegri ábyrgð.

Í dag er það þannig að upplýsingar berast hratt og því nánast ómögulegt að hlaupa í felur með það sem er gert. Fyrirtækin vita þetta og þau vita einnig að illt umtal kemur sér mjög illa fyrir þau. Stjórnendur fyrirtækja vita einnig að það er þeim í hag að standa við markmiðin og helst að fá á sig orð um að vera í forustu þegar kemur að sjálfbærri þróun.“

Breytingar og landbúnaður á Íslandi

„KPMG á Íslandi er að skoða á hvaða hátt loftslagsbreytingar, fólksflutningar og fleiri þættir munu hafa áhrif á landbúnað á Íslandi. Starfsmenn fyrirtækisins hafa meðal annars ferðast um landið og tekið bændur tali og skoðað ólíkar sviðsmyndir sem tengjast landbúnaði á Íslandi og þeim breytingum sem eru í vændum á heimsvísu.

Ísland er í forustu þegar kemur að upprunamerkingum og ábyrgum fiskveiðum í heiminum og landið ætti að leggja metnað sinn í að vera það áfram. Íslendingar eru einnig framarlega þegar kemur að notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Jafnrétti á Íslandi er einnig mikið en í sumum tilfellum má gera meira til að virkja konur á landsbyggðinni og gera störf þeirra verðmætari.

Mér skilst að neysla á unnum matvælum á Íslandi sé minni en víða annars staðar og það er kostur og eitthvað sem ætti að viðhalda. Reyndar er það svo að víða í heiminum eru neytendur farnir að gera kröfur um að matvæli séu minna unnin og að minna sé af íblöndunarefnum í þeim.

Eftirspurn í fisk, óunnið kjöt og grænmeti hefur aukist og kannanir benda til að aukningin eigi eftir að verða meiri í framtíðinni.“

Selena segir að lokum mikilvægt að fólk líti á sjálfbærnimarkmið SÞ út frá nærumhverfi sínu og vinni út frá því. „Einstaklingar og fyrirtæki eiga að skoða hvað hægt er að gera til að leggja sitt á vogarskálarnar til að bæta heiminn og gera hann betri til framtíðar og fyrir komandi kynslóð.“

Erindi Serenu Brown af ráðstefnunni er aðgengilegt hér.

Hvað á klukkan að vera?
Fréttir 15. janúar 2026

Hvað á klukkan að vera?

Nú eru í gangi tveir undirskriftalistar á island.is þar sem annars vegar er bari...

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður
Fréttir 15. janúar 2026

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður

Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum hafa verið birt á vef Alþingis. Í þ...

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló
Fréttir 15. janúar 2026

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló

Enn er nokkurt rekstrartap af nautaeldi á Íslandi og samkvæmt rekstraryfirliti R...

Riðuveiki útrýmt með verndandi arfgerðum
Fréttir 15. janúar 2026

Riðuveiki útrýmt með verndandi arfgerðum

Ný reglugerð um riðuveiki í fé hefur tekið gildi sem hefur það að markmiði að út...

Tap rúmar 12 krónur á lítrann
Fréttir 15. janúar 2026

Tap rúmar 12 krónur á lítrann

Í yfirliti Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) yfir rekstrarafkomu kúabúa á...

Metframleiðsla mjólkur á síðasta ári
Fréttir 15. janúar 2026

Metframleiðsla mjólkur á síðasta ári

Alls voru 156,9 milljónir lítra lagðir inn í mjólkurafurðastöðvar á síðasta ári,...

Jöklar hörfa hratt
Fréttir 30. desember 2025

Jöklar hörfa hratt

Vísindamenn telja að meira en hundrað jöklar í Ölpunum verði horfnir árið 2033. ...

Nýtt mælaborð styrkir hagsmunagæslu bænda
Fréttir 28. desember 2025

Nýtt mælaborð styrkir hagsmunagæslu bænda

Þann 15. desember síðastliðinn var nýtt mælaborð Bændasamtakanna tekið í notkun ...