Lífeyrissjóður bænda sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum
Fréttir 26. júní 2026

Lífeyrissjóður bænda sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum

Höfundur: Þröstur Helgason

– Réttindi bænda skerðast um 4,1%

Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs bænda (LSB) samþykktu einróma tillögu um sameiningu sjóðsins við Frjálsa lífeyrissjóðinn á ársfundi LSB sem haldinn var 19. júní sl.

Réttindi bænda skerðast um 4,1% við sameiningu sjóðanna, að sögn Völu Valtýsdóttur, stjórnarformanns Lífeyrissjóðs bænda, en skerðingin hefði orðið meiri ef ekki hefði verið farið í sameininguna. „Þetta er reiknað út af okkar tryggingafræðingi. Ef ekki hefði komið til sameiningar er ljóst að skerðingin hefði verið meiri. Með sameiningu lækkar allur kostnaður töluvert sem ekki hefði verið án sameiningar.“

Hún segir hag bænda því betri eftir sameiningu þrátt fyrir skert kjör. „Já, það er skylda okkar að hafa hag sjóðfélaga í fyrirrúmi og eini möguleikinn að snúa við þessari þróun var að sameina sjóðinn og lækka þar með kostnað.“

Sameiningin felur í sér að Frjálsi lífeyrissjóðurinn mun taka yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðfélögum LSB og verða sjóðfélagar hans hluti af Frjálsa en fyrst um sinn verður haldið utan um eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB í sér tryggingadeild innan Frjálsa. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Frjálsa lífeyrissjóðsins.

Markmiðið sameiningarinnar er að nýta stærðarhagkvæmni til að lækka rekstrarkostnað, efla þjónustu og upplýsingagjöf til sjóðfélaga og launagreiðenda, minnka rekstraráhættu og um leið styrkja eigna- og áhættustýringu sjóðanna, segir í fréttinni.

Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna. Sjóðfélagar þurfa almennt ekkert að aðhafast vegna sameiningarinnar en verða upplýstir um áframhaldandi framgang hennar eftir því sem fyrirvörum sameiningar hefur verið aflétt.

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...