Ráðuneyti stefna  að sameiningu
Fréttir 25. júní 2026

Ráðuneyti stefna að sameiningu

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Í skýrslum Ríkisendurskoðunar hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna og stýrihópur um gerð frumathugunar um sameiningu skilaði jákvæðum niðurstöðum.

Eydís Líndal Finnbogadóttir.

Sameiningin mun byggja á styrkleikum beggja stofnana samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins. Rannsóknir, vísindasöfn og gagnagrunnar geti þannig stutt enn betur við sýningar-, fræðslu- og miðlunarhlutverk Náttúruminjasafns Íslands sem höfuðsafn á sviði náttúrufræða. Niðurstöður frumathugunarinnar sýna að veruleg tækifæri felast í sameiningunni. Heildstæð þekkingarstofnun um náttúru Íslands sem sameinaði rannsóknir, vöktun, varðveislu og miðlun gæti orðið öflug og myndi slík stofnun styrkja innviði þekkingarsköpunar um íslenska náttúru. Það fælist bæði í því að efla fræðslu og upplýsingamiðlun til almennings og skóla og að styðja við stefnumótun í náttúruvernd, líffræðilegri fjölbreytni og loftslagsmálum. Í skýrslunni kom auk þess fram að sameiningin gæti skilað fjárhagslegum ávinningi með betri nýtingu húsnæðis, innviða og stoðþjónustu.

Ragnhildur Guðmundsdóttir.

Öflugt þekkingarsamfélag

Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar, var einnig þátttakandi í nefndinni sem vann að frumathugun á þessari sameiningu. Aðspurð segir Eydís að henni lítist vel á þessi áform og að það séu mikil tækifæri sem felist í stærri og öflugri stofnunum á Íslandi. „Styrkleikinn í þessari sameiningu mun felast í öflugri miðlun náttúru- og umhverfisupplýsinga, þar sem kraftar miðlunar, safnastarfs, rannsókna, vöktunar og öflugra landupplýsinga sameinast í öflugu þekkingar- samfélagi,“ segir Eydís.

Aðspurð segir hún að engar áhyggjur liggi fyrir eins og er en að áherslan verði að vera á skýra framtíðarsýn. „Okkar áherslur eru að báðar stofnanirnar sem sameinast í eina hafa sterk lagaleg hlutverk og við sameiningu þurfa þessi hlutverk að fá vægi í sam- einaðri stofnun,“ segir Eydís. „Mikilvægast í sameiningum er þó að hafa í huga að þetta er vinna sem snýst um fólk og mikilvæg verkefni stofnananna, þessu þarf að hlúa að.“

Tækifæri til frekari sóknar

Ragnhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, er sömuleiðis jákvæð fyrir þessum áformum. „Við á Náttúruminjasafninu erum spennt fyrir framtíðinni og þessi sameining getur fært okkur tækifæri til enn frekari sóknar í eflingu á náttúruvísindamiðlun. Okkar sérhæfing er fyrst og fremst í miðlun og þekkingu á safnastarfsemi en einnig líffræðilegri fjölbreytni. Náttúruminjasafnið er höfuðsafn á sviði náttúrufræða og hefur leiðbeinandi hlutverk gagnvart viðurkenndum söfnum í málefnum náttúrunnar,“ segir Ragnhildur.

Aðspurð segir hún að stærstu fréttirnar fyrir Náttúruminjasafnið séu afdráttarlaus yfirlýsing ráðherra um að opna nýtt húsnæði Náttúruminjasafnsins og fullgera grunnsýningu sem búið er að hanna inn í húsið. „Sú sýning fjallar um hafið í kringum Ísland, líffræðilega fjölbreytni og helstu ógnir á borð við loftslagsbreytingar.

Það að fá varanlegt heimili fyrir safnið mun gjörbylta því hvernig við getum hagað starfseminni. Það mun til dæmis auðvelda okkur móttöku skólahópa en gert er ráð fyrir sérstökum rýmum þar sem hægt verður að taka á móti stærri og minni hópum, einnig verður fyrirlestrasalur auk sýningarsala,“ segir Ragnhildur. Náttúruminjasafn Íslands flytur í Náttúruhús á Seltjarnarnesi og verður húsið og sýningin opnuð árið 2027.

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...