Embætti yfirdýralæknis lagt niður
Fréttir 25. júní 2026

Embætti yfirdýralæknis lagt niður

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Embætti yfirdýralæknis verður lagt niður með sameiningu MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptiverðs í nýrri Stofnun atvinnuveganna.

Ný ríkisstofnun á að sinna öllum verkefnum sem áður voru hjá ofangreindum stofnunum og þau verkefni sem heilbrigiðseftirlitssvæðin hafa sinnt og snúa að eftirliti með matvælum færast frá sveitarfélögunum til nýrrar stofnunar.

Áhyggjur af dýraheilbrigði og -velferð

Dýralæknar hafa áhyggjur af því að þessar breytingar veiki stöðu dýralækna innan stjórnsýslunnar og að málaflokkar dýraheilbrigðis og -velferðar muni verða útundan. Yfirdýralæknir mun enn hafa umsjón með sömu málaflokkum, það er heilbrigði og velferð dýra, súna, lyfjaónæmi og málefnum dýralækna og dýraheilbrigðisstarfsfólks, en mun vera ráðinn af forstjóra í stað ráðherra.

Í umsögn Þóru J. Jónasdóttur yfirdýralæknis um frumvarpið er óskýrt orðalag gagnrýnt. Hlutverk, heimildir og ábyrgð yfirdýralæknis eru ekki skýrar og tryggir frumvarpið ekki lögfest faglegt sjálfstæði yfirdýralæknis og faglega aðkomu ákvarðana í þeim málaflokkum sem embættið sér um í dag. Eitt af hlutverkum yfirdýralæknis er að bregðast við og bera ábyrgð á tilkynningum og greiningum á alvarlegum dýrasjúkdómum, til að mynda mögulegum faröldrum, sem og umfangsmiklum dýra- velferðarmálum. Breytingar frumvarpsins skerða beinar boðleiðir til ráðherra, ákvörðunar- rétt og faglega stöðu innan stjórnsýslunnar sem getur leitt til að þessum málaflokkum verði ekki sinnt nægilega vel.

Dýraheilbrigðismál og dýra- velferðarmál snúa að húsdýrum jafnt sem villtum dýrum á landinu öllu. Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunin (WOAH) hefur bent á að mikilvægi og ábyrgð dýralækna fari vaxandi á heimsvísu og verkefni á borð við Eina heilsu (e. One Health) leggja áherslu á samstarf þvert á dýraheilbrigði og heilbrigðisvísindi manna. Þóra bendir á að áætlaðar breytingar séu ekki í samræmi við þetta og í raun skref aftur á bak fyrir þjóðina.

Dýralæknar verulega áhyggjufullir

Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands, segir að breytingarnar valdi dýralæknum verulegum áhyggjum. „Þetta snýst ekki eingöngu um skipulagsbreytingar heldur um grundvallaratriði í málaflokkum dýraheilbrigðis, dýravelferðar og starfsemi dýralækna. Það þarf að tryggja að þessum málaflokkum sé stýrt af sérfræðingi með þekkingu og reynslu á sviðinu, enda er um að ræða ákvarðanir sem geta haft óafturkræfar afleiðingar. Svo mikilvægar ákvarðanir verða að byggjast á óháðu faglegu mati, en ekki öðrum sjónarmiðum, svo sem pólitískum eða fjárhagslegum,“ segir Bára.

Þóra bendir á að á sama tíma og núverandi frumvarp veiki ráðningu og skipun yfirdýralæknis þá var litið til fyrirkomulags embættis yfirdýralæknis til að rökstyðja mikilvægi faglegs sjálfstæðis og ábyrgðar sóttvarnalæknis í frumvarpi til sóttvarnarlaga. Hlutverk og ábyrgð yfirdýralæknis eru því vel kunnug og að mörgu leyti sambærileg embættum landlæknis og sóttvarnalæknis og segir Þóra að það sé því ekki síður mikilvægt að tryggja stöðu yfirdýralæknis og að lögskipuð hæfnisnefnd sjái um ráðningu í embættið.

„Það væri stór áfangi ef stjórnvöld myndu horfa til dýraheilbrigðismála með sambærilegum hætti og gert er í heilbrigðismálum fólks – sem viðkvæms og sérhæfðs málaflokks þar sem rangar ákvarðanir geta haft óafturkræfar afleiðingar. Mikilvægt er að hlutverk og ábyrgð dýralækna, og þá sérstaklega yfirdýralæknis, verði skýrt innan stjórnsýslunnar, en það er alls ekki raunin í dag,“ segir Bára.

Þörf á uppbyggingu

„Við hefðum viljað sjá að vægi dýraheilbrigðismála yrði markvisst aukið, þar á meðal á rannsóknir, vísindastarf, viðbragðsáætlanir og stefnumótun,“ segir Bára. Að hennar mati hefur þessi málaflokkur ekki fengið nægilegt rými innan MAST sem er fyrst og fremst eftirlitsstofnun. Ísland býr ekki að sérstakri dýraheilbrigðisstofnun né öflugri menntastofnun dýralækna og hefur vantað sterkt faglegt- og vísindalegt bakland hérlendis.

„Við höfum jafnframt verulegar áhyggjur af því að slíkt bakland verði heldur ekki byggt upp innan fyrirhugaðrar Stofnunar atvinnuveganna. Við teljum því löngu tímabært að byggja upp sjálfstæða og öfluga dýraheilbrigðisstofnun líkt og er í nágrannalöndum okkar. Að okkar mati myndi slík stofnun tryggja raunverulegt faglegt sjálfstæði, sterkara bakland og heildstæða sýn í dýraheilbrigðismálum,“ segir Bára.

Dýralæknafélagið segir hættu á að dýraheilbrigðismál, dýravelferð og málaflokkur dýralækna verði undir í stórri stofnun þar sem megináhersla verði á eftirlit. „Sé ákvarðanataka ekki í höndum sérfræðinga er ljóst að gæði hennar skerðast, með beinum áhrifum á dýraheilbrigði og dýravelferð. Til lengri tíma er hætta á að sú sterka staða sem Ísland hefur byggt upp á þessu sviði veikist,“ segir Bára. Síðustu ár hefur staða dýralækna veikst verulega innan stjórnsýslunnar. Að mati Dýralæknafélagsins er brýnt að snúa þeirri þróun við.

Mikilvægt að standa vörð um einstaka stöðu Íslands

„Við höfum einnig áhyggjur af þeirri einstöku stöðu sem Ísland nýtur í dýraheilbrigðismálum. Sú staða byggir bæði á landfræðilegri legu og markvissu starfi dýralækna um áratugaskeið. Hún er bæði verðmæt og viðkvæm. Síðustu ár hafa gríðarlegir fjármunir farið í baráttu við smitsjúkdóma í nágrannalöndum okkar og víðar í Evrópu, bæði nýja og breytta stofna sjúkdóma, svo sem fuglaflensu og eldri sjúkdóma sem eru að koma aftur fram, meðal annars í tengslum við loftslagsbreytingar. Það hvílir því mikil ábyrgð á stjórnvöldum að verja þessa stöðu og tryggja að fagþekking verði áfram hornsteinn allrar ákvarðanatöku á þessu sviði,“ segir Bára.

Ráðuneyti stefna  að sameiningu
Fréttir 25. júní 2026

Ráðuneyti stefna að sameiningu

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðh...

Embætti yfirdýralæknis lagt niður
Fréttir 25. júní 2026

Embætti yfirdýralæknis lagt niður

Embætti yfirdýralæknis verður lagt niður með sameiningu MAST, Fiskistofu og Verð...

Aukabúnaðarþing 14. ágúst
Fréttir 25. júní 2026

Aukabúnaðarþing 14. ágúst

Stjórn Bændasamtaka Íslands boðar til aukabúnaðarþings föstudaginn 14. ágúst 202...

Sex útskrifaðir úr járninganámi
Fréttir 22. júní 2026

Sex útskrifaðir úr járninganámi

Fyrsta brautskráning úr nýju járninganámi við Háskólann á Hólum fór fram 23. maí...

Verknámshúsið stækkað
Fréttir 22. júní 2026

Verknámshúsið stækkað

Mikil ánægja er í Skagafirði þessa dagana því nýlega skrifuðu Inga Sæland mennta...

Matvöruverð rætt í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 19. júní 2026

Matvöruverð rætt í Útvarpi Bændablaðsins

Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, og Benedi...

Boðað til aukabúnaðarþings í ágúst
Fréttir 19. júní 2026

Boðað til aukabúnaðarþings í ágúst

Stjórn Bændasamtaka Íslands hefur boðað til aukabúnaðarþings sem haldið verður í...

Sumarlestur barna
Fréttir 19. júní 2026

Sumarlestur barna

Nú þegar börn í grunnskólum stíga inn í sumarfríið er ekki úr vegi að minna á mi...