Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Sumarútgáfa barnabóka hefur aukist síðustu ár.
Sumarútgáfa barnabóka hefur aukist síðustu ár.
Fréttir 19. júní 2026

Sumarlestur barna

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Nú þegar börn í grunnskólum stíga inn í sumarfríið er ekki úr vegi að minna á mikilvægi bókalesturs. Það er þekkt staðreynd að lestrarfærni barna hrakar verulega sé henni ekki viðhaldið yfir sumartímann. Á vef Miðstöðvar menntunnar og skólaþjónustu segir að afturförin geti numið allt að einum til þremur mánuðum á hverju sumri og hjá barni í 6. bekk, sem aldei hafi lesið yfir sumartímann, getur uppsöfnuð afturför numið einu og hálfu skólaári.

Miðstöð menntunnar og skólaþjónustu býður ungum lesendum, foreldrum og forráðamönnum upp á alls kyns þjónustu yfir sumartímann. Þar er hægt að nálgast lestrarbingó, lestrarspil og góð lestrarráð.

Bækurnar um Mírabellu og frænku hennar Ísabellu Nótt eru vinsælar.

Sumarútgáfa hefur aukist

Íslenskir bókaútgefendur hafa síðustu ár reynt að mæta þörf barna á Íslandi fyrir nýjar og skemmtilegar bækur yfir sumartímann og kemur nokkur fjöldi barnabóka út á vormánuðum, utan við hið hefðbundna jólabókaflóð.

Rækjuvík er skemmtileg hversdagssaga sem gerist að sumri

Útgefendur sem Bændablaðið hafði samband við segja að þeir hafi merkt aukna eftirspurn eftir nýjum barnabókum yfir vormánuðina á síðustu árum, ekki síst frá bókasöfnum og fjölskyldum. Þeir eru sammála um mikilvægi þess að úrval nýrra barnabóka sé ríkulegt yfir sumarmánuðina.

„Við teljum mikilvægt að börn hafi aðgang að nýjum og spennandi bókum allt árið um kring. Vor- og sumarútgáfan skiptir máli því hún styður við yndislestur barna á þeim tíma þegar þau hafa oft meira svigrúm til að lesa sér til ánægju. Því fleiri góðar sögur sem ná til krakka á þeirra eigin forsendum, því meiri líkur eru á að lesturinn verði skemmtileg venja frekar en skylda,“ segir Guðný Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar Rósakots og Fanney Benjamínsdóttir, upplýsingafulltrúi Forlagsins tekur í sama streng. „ Við erum með óvenju fjölbreyttan og þéttan barnabókalista í ár og leggjum áherslu á að dreifa útgáfunni yfir allt árið. Yngstu lesendurnir eiga skilið að fá nýjar og spennandi bækur allan ársins hring, ekki síður yfir sumarmánuðina, “ segir Fanney.

Í Bekkurinn minn seríunni er hægt að fá sömu sögurnar í mismunandi erfiðleikastigum - Létt að lesa og Lauflétt að lesa.

Birgitta Elín Hassel, bókaútgefandi hjá Bókabeitunni, segir þó vandamálið vera að kaupendur að barnabókum séu alla jafnan ekki lesendurnir sjálfir. „Lesendurnir bíða spenntir en kaupendurnir eru ekki vanir að kaupa bækur fyrir börn og unglinga nema í gjafir, og þá helst jólagjafir. Sem þýðir að þegar barnið biður um bók í júní, fær það oftar en ekki svarið að það skuli bara setja bókina á afmælis- eða jólagjafaóskalistann.“

Almyrkvi á sólu mun sjást á Íslandi 12. ágúst. 

Gott úrval yfir sumartímann

Í sumar koma út margar bækur úr vinsælum barnabókaseríum. Þar má nefna bækur úr seríunni Bekkurinn minn, eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur og Iðunni Örnu. Einnig kemur út ný bók í seríunni Versta vika sögunnar eftir Evu Amores, Matt Cosgrove og fleiri bækur í seríunni um Ísabellu Nótt og Mírabellu. Ævar Þór Benediktsson sendi frá sér nýja bók í maí, Skaðræðisskepnur. Svo má ekki gleyma bók Stjörnu-Sævars um Sólmyrkva, en töluverð eftirvænting er eftir væntanlegum almyrkva á sólu sem verður 12. ágúst næstkomandi og því tilvalið fyrir alla að kynna sér enn frekar allt um sólmyrkvann. Bækur með stuttum sögum eins og Gleðikakan eftir Martinu Orsi og Konunglegur köttur eftir Giuditta Campellu gætu líka hitt í mark hjá forvitnum lesendum og einnig er vert að vekja athygli á seríunni um Stjána og stríðnispúkana.

Góð lestrarráð

Rithöfundurinn Arndís Þórarinsdóttir setti saman lista með lestrarhvetjandi ráðum fyrir nokkru. Listann er hægt að lesa í heild sinni hér. Kjarninn í lestrarráðunum eru eftirfarandi:

  1. Ekki bíða eftir því að barnið taki sjálft upp bók.
  2. Setjum inn lestur eins víða í lífið og hægt er.
  3. Leyfum allar bækur
  4. Nýtum öll bókaform sem eru í boði
  5. Sköpun – búum til okkar eigin sögur
  6. Skiptumst á í lestri
  7. Munum fræðibækur
  8. Leikum með orð
  9. Hjálpum ungum lesendum að ræða bókmenntir
  10. Setjum okkur markmið

Skylt efni: bókaútgáfa | lestur | sumarlestur

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...