„Sérstaklega var bent á að Arla starfi sem samvinnufélag sem skuldbindur sig til að kaupa alla mjólk frá félagsbændum sínum og greiða þeim sama verð óháð staðsetningu.“
„Sérstaklega var bent á að Arla starfi sem samvinnufélag sem skuldbindur sig til að kaupa alla mjólk frá félagsbændum sínum og greiða þeim sama verð óháð staðsetningu.“
Mynd / Aðsend
Fréttir 26. júní 2026

ESB samþykkir sameiningu Arla, DMK og DOC

Höfundur: Þröstur Helgason

– Stærsta mjólkursamvinnufélag Evrópu verður til

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt skilyrðis- laust fyrirhugaða sameiningu mjólkursamlaganna Arla Foods, Deutsches Milchkontor (DMK) og Drents Overijsselse Coöperatie Kaas (DOC). Samhliða hafa félögin staðfest að öll nauðsynleg leyfi liggi nú fyrir og að samruninn taki gildi 1. júní 2026. Með sameiningunni verður til stærsta samvinnufélag mjólkurframleiðenda í Evrópu, starfrækt undir nafni Arla.

Rannsókn framkvæmdastjórnarinnar náði til fjölmargra markaða innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), þar á meðal innkaupa á hrámjólk frá bændum í Þýskalandi og framboðs mjólkurvara og mysuafurða til smásala, heildsala og iðnaðarviðskiptavina í Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi, Hollandi og Svíþjóð.

Niðurstaðan var sú að samruninn myndi ekki draga verulega úr samkeppni á þessum mörkuðum. Sérstaklega var bent á að Arla starfi sem samvinnufélag sem skuldbindur sig til að kaupa alla mjólk frá félagsbændum sínum og greiða þeim sama verð óháð staðsetningu. Af þeim sökum hafi félagið hvorki getu né hvata til að lækka mjólkurverð í kjölfar samrunans, enda gætu bændur þá leitað til annarra samlaga.

Á markaði fyrir mjólkurvörur til smásala keppa félögin fyrst og fremst í framleiðslu verslunarmerktra vara. Samkvæmt athugun framkvæmda- stjórnarinnar mun samkeppni áfram haldast næg þar sem fjölmargir keppinautar taka þátt í útboðum og smásalar afla sér mjólkur frá mörgum framleiðendum.

Einnig var talið að samkeppnisþrýstingur héldist á markaði fyrir mysuhráefni þar sem félögin keppa meðal annars í framleiðslu á mysudufti og mysupróteini. Til staðar séu aðrir keppinautar og í sumum tilvikum staðgönguhráefni. Áhætta á bundinni eða samtengdri sölu var talin takmörkuð.

Í ljósi þessara niðurstaðna var samruninn samþykktur án skilyrða.

11.200 bændur og 19,4 milljarðar kílóa mjólkur

Með sameiningunni sameinast 11.200 mjólkurframleiðendur í sjö Evrópulöndum og um 28.800 starfsmenn á heimsvísu. Sameinað félag mun safna saman 19,4 milljörðum kílóa af mjólk árlega og velta þess, miðað við pro forma, verður yfir 20 milljarðar evra.

Félögin segja sameininguna byggja á „margra ára samstarfi, sameiginlegum gildum og samverkandi styrkleikum“ og að hún miði að því að efla evrópska matvælaframleiðslu, styrkja rekstrargrundvöll hennar og tryggja öruggt fæðuframboð á tímum heimspólitískra og efnahagslegra breytinga.

Jan Toft Nørgaard, stjórnarformaður Arla Foods, segir daginn marka tímamót fyrir samlögin, næstu kynslóð bænda og evrópska matvælaframleiðslu. Heinz Korte, stjórnarformaður DMK Group, segir bændur hlakka til samstarfsins og bendir á að stuðningur þeirra í atkvæðagreiðslum í júní 2025 endurspegli vilja til að standa saman þvert á landamæri.

Áhrif á bændur

Samkvæmt mati framkvæmda- stjórnar ESB er ólíklegt að sameiningin hafi neikvæð áhrif á bændur. Byggir það meðal annars á því að Arla starfar sem samvinnufélag sem er skuldbundið til að taka við allri mjólk frá félagsmönnum sínum og greiða þeim sama verð, óháð því hvar þeir starfa. Því hefur félagið hvorki getu til né hvata fyrir því að lækka mjólkurverð til bænda á svæðum þar sem markaðshlutdeild eykst eftir samrunann, enda gætu bændur þá snúið sér að öðrum samlögum.

Félögin sjálf leggja áherslu á að sameiningin styrki stöðu bænda til lengri tíma. Með því að mynda eitt stærsta samvinnufélag Evrópu telja þau sig geta tryggt aukinn rekstrarstöðugleika, bætt fjárfestingargetu og skapað traustari grunn fyrir félagsbændur. Sameiningin er sögð styðja við „sterkara samvinnuhagkerfi“ sem tryggi áreiðanlegt framboð matvæla og stöðugan grundvöll fyrir bændur.

Heinz Korte, stjórnarformaður DMK, bendir jafnframt á að sameiningin feli í sér að verið sé að „byggja eitt stærsta samvinnufélag bænda í Evrópu“, þar sem sameiginleg gildi og framtíðarsýn liggi til grundvallar auknum möguleikum á verðmætasköpun í mjólkurframleiðslu.

Styrkir stöðu mjólkurframleiðslu

Félögin hafa átt í samstarfi um árabil og segja sameininguna eðlilegt framhald þess. Með því að sameina krafta sína hyggjast þau tryggja stöðuga mjólkurframleiðslu í Evrópu og styrkja getu til að skapa verðmæti á alþjóðamarkaði.

Sameinað félag verður öflugri samstarfsaðili fyrir viðskiptavini í smásölu, veitingageira og hráefnageira, með breiðara vöruúrval, aukna nýsköpun og víðtækari samstarfsmöguleika.

Nýtt félag undir nafni Arla

Sameinaða félagið verður starfrækt undir nafni Arla og hefur höfuðstöðvar í Viby í Danmörku. Jan Toft Nørgaard verður stjórnarformaður, Inger-Lise Sjöström varaformaður og Peder Tuborgh forstjóri. Ingo Müller tekur sæti í framkvæmdastjórn sem framkvæmdastjóri samþættingar eftir samrunann.

Samþættingarferlið hófst 1. júní 2026.

Skylt efni: Arla | DMK

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...