Gjaldskrá frá Vegagerðinni yfir brúna, sem tekur gildi frá 1. september. Gjaldið er tekið til að standa undir fjármögnun framkvæmdarinnar í samræmi við lög um samvinnuverkefni en Hringvegur (1) um Hornafjörð er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að.
Gjaldskrá frá Vegagerðinni yfir brúna, sem tekur gildi frá 1. september. Gjaldið er tekið til að standa undir fjármögnun framkvæmdarinnar í samræmi við lög um samvinnuverkefni en Hringvegur (1) um Hornafjörð er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að.
Mynd / Fréttabréf Vegagerðarinnar
Fréttir 26. júní 2026

1.500 krónur ferðin yfir nýja brú

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

– Mikil óánægja með verðskrána

Nýr Hringvegur um Hornafjörð með nýrri brú var formlega opnaður miðvikudaginn 24. júní. Óánægja er með kostnað við að aka yfir brúna.

Hægt verður að aka ókeypis yfir brúna fyrstu vikurnar en frá 1. september í haust hefst gjaldtaka, sem margir heimamenn, ekki síst í sveitunum, eru ekki sáttir við eins og sauðfjárbændurnir á Kálfafelli í Suðursveit.

Sauðfjárbændurnir á Kálfafelli í Suðursveit, þau Aðalbjörg Bjarna- dóttir og Bjarni Haukur Bjarnason. Mynd / aðsend.

„Þessi gjaldskrá mun einfaldlega hafa þau áhrif að við munum ekkert nýta okkur brúna. Planið var að yngsta barnið, sem hefur hingað til farið 2 daga vikunnar í leikskólann, færi núna 3 daga. Við erum ekki að fara að sjá það gerast miðað við þessar forsendur. Við myndum alltaf keyra gömlu leiðina. Verðskránni er stillt þannig upp að fólk eigi bara að keyra þarna eina ferð. Það er óskiljanlegt af hverju þetta þarf að vera svona dýrt, við skiljum það bara ekki,“ segir Aðalbjörg Bjarnadóttir bóndi.

Eiginmaður hennar, Bjarni Haukur Bjarnason, tekur undir: „Kostnaðurinn á ári myndi fara fast að 200.000 krónum fyrir okkur og er það svipuð upphæð og nýja kílómetragjaldið er á ári, það er stór biti fyrir okkur. Þetta hefur líka bein áhrif á vöruverð í samfélaginu þar sem þessi upphæð mun leggjast á allan flutning til og frá sveitarfélaginu. Við viljum sjá enga verðskrá þar sem allar forsendur fyrir gjaldtöku eru brostnar. Það er mikil óánægja með þetta hér í sveitinni og víðar þar sem þarna virðist ekki gætt sanngirni. Það hafa verið fleiri nýir vegir lagðir hér á landi sem ekki er gjaldskylda á. Við viljum sjá bæjarstjórn Hornafjarðar beita sér harðar í þessu máli fyrir okkur íbúa,“ segir Bjarni Haukur.

Skylt efni: Hornafjörður

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...