Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Kostnaður við aukna vetrarþjónustu nemur um 100 milljónum króna
Mynd / BBL
Fréttir 2. febrúar 2018

Kostnaður við aukna vetrarþjónustu nemur um 100 milljónum króna

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Kostnaður við aukna vetrar­þjónustu Vegagerðarinnar nemur um 100 milljónum króna. Samgöngu- og sveitarstjórnar­ráðherra og Vegagerðin hafa ákveðið að auka vetrarþjónustu og hálkuvarnir á ákveðnum köflum á þjóðvegakerfinu í því skyni að bæta umferðaröryggi. 
 
Ráðherra og vegamálastjóri hafa að undanförnu kannað með hvaða hætti og hvar helst þarf að bæta þjónustuna og Vegagerðin hefur áætlað kostnað við þessa auknu þjónustu, en hækkað þjónustustig vegna aukinnar vetrarþjónustu, m.a. með fleiri mokstursdögum er talinn kosta um 100 milljónir króna. Breytingarnar munu verða framkvæmdar eins hratt og unnt er með þeim tækjum og búnaði sem er til staðar. 
 
Fram kemur í máli Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra á vef Vegagerðarinnar að brýnt sé að bæta vetrarþjónustu víða um land vegna aukinnar umferðar bæði vegna atvinnusóknar milli byggðarlaga og aukinna umsvifa ferðaþjónustu sem bjóði í síauknum mæli upp á ferðir víða um land árið um kring. „Með þessu eykst öryggi á þjóðvegunum enda nauðsynlegt að koma til móts við aukinn umferðarþunga og tryggja öruggar samgöngur allt árið. Reglur um snjómokstur hafa ekki verið endurskoðaðar í nokkur misseri og þörfin var orðin brýn. Við tryggjum meira fé til þjónustunnar í þágu aukins öryggis en um leið vil ég minna á að við þurfum alltaf að aka eftir aðstæðum og huga að hinum íslenska vetri,“ segir ráðherra.
 
Aukin viðvera og meiri hálkuvarnir
 
Á hringveginum verður þjónusta á kaflanum milli Víkur og Jökulsárlóns færð upp um þjónustuflokk. Felst aukin þjónusta bæði í aukinni viðveru og meiri hálkuvörnum. Suðurstrandarvegur er færður upp um flokk og fær 5 daga þjónustu í stað 2 daga áður. Þá verður þjónusta aukin á nokkrum ferðamannavegum á Suðurlandi þar sem umferð hefur aukist mjög, svo sem á Dyrhólavegi og við Skógafoss. Einnig verður þjónusta aukin á nokkrum stöðum í uppsveitum á Suðurlandi, m.a. á Skeiðavegi, Landvegi, Búrfellsvegi og víðar.
 
Mokstursdögum að Hvanneyri fjölgað
 
Þjónusta á milli Borgarness og Vegamóta á Snæfellsnesi verður færð upp um þjónustuflokk sem og á milli Borgarness og Hvanneyrar. Mokstursdögum verður fjölgað úr tveimur í fimm og þjónustustig á leiðinni í Húsafell verður einnig uppfært. Þá verður þjónusta á Útnesvegi aukin en umferð um hann er meiri en á veginum yfir Fróðárheiði þar sem þjónusta hefur verið meiri. Á þessum köflum hefur umferð aukist mjög síðustu misseri bæði vegna ferðamanna og eins atvinnusóknar. 
 
Á Vestfjörðum verður þjónusta aukin í nágrenni Bíldudals og í Skutulsfirði og á Norðurlandi á Svarfaðardalsvegi, í Eyjafirði og á nokkrum stöðum á Norðausturlandi. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...