Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Kindakjötsneysla nam rúmum 20 kg á mann en sykurneyslan 60–70 k
Fréttir 16. apríl 2015

Kindakjötsneysla nam rúmum 20 kg á mann en sykurneyslan 60–70 k

Höfundur: Vilmundur Hansen

Í skýrslu stjórnar Landssambands sauðfjárbænda segir meðal annars að heildarsala kindakjöts innanlands árið 2014 hafi verið 6.590 tonn sem er 33 tonnum minna en 2012.
Neysla á mann var 20,2 kíló á árinu sem er 200 gramma samdráttur frá 2013.  Verð í smásölu lækkaði um 2,1% á árinu. Það jafngildir 4% lækkun raunverðs þar sem ársverðbólgan var 1,9%. Til samanburðar má geta þess að áætlað hefur verið að Íslendingar neyti í heild í það minnsta 60–70 kg af sykri á ári. Er þá verið að tala um beint sykurát samkvæmt innflutningstölum sem og neyslu sykurs í ýmsum mat- og drykkjarvörum, eins og greint var frá í Bændablaðinu 26. mars.
Heildarsala á kindakjöti á síðasta  ári var 10.031 tonn samanborið við 9.416 tonn árið 2013, sem er 6,5% aukning, eða 615 tonn í magni talið. Þar af seldust 6.590 tonn á innanlandsmarkaði 2014 samanborið við 6.623 tonn árið 2013. Birgðir í árslok voru 5.972 tonn sem er 108 tonnum minna en í árslok 2013 (-1,8%).
Framleiðsla ársins varð 10.100 tonn alls, sem er svipað og heildarsalan. Árið 2013 var hún 9.892 tonn og var aukningin því 2,1%.

Enginn innflutningur á kindakjöti

Innanlandsmarkaður breyttist því lítið árið 2014 eins og árið á undan. Kjötmarkaðurinn í heild ber nokkurn keim af því að innflutningur á nánast öllu öðru kjöti en kindakjöti hefur vaxið verulega, einkanlega nautakjöti, en þess gætir líka í svína- og alifuglakjöti. Enginn innflutningur hefur þó verið á kindakjöti, þrátt fyrir að hann sé heimill og tollkvótum fyrir kindakjöt hafi verið úthlutað. Verðið erlendis er einfaldlega ekki samkeppnisfært við verðið hér innanlands. Verðlagning kindakjöts tekur þó mið af öðru kjöti á markaði svo aukinn innflutningur hefur líka áhrif á það þótt með óbeinum hætti sé.
Nokkrar áhyggjur hafa verið uppi um að lambakjöt nái ekki nægilega vel til sívaxandi fjölda ferðamanna.  Erfitt er að mæla neyslu ferðamanna á einstökum vörutegundum en skv. könnunum er meðallengd dvalar ferðamanna hér 10 dagar og miðað við ferðamannafjöldann  árið 2014 jafngildir það því að um 27 þúsund fleiri íbúar byggju hér allt árið.
 
Útflutningsverðmæti um 3,1 milljarður króna

Nokkrar breytingar urðu á mörkuðum árið 2014. FOB-verð á kjöti lækkaði um tæp 6%. Mest er það vegna sterkara gengi krónunnar. Gærur lækkuðu um 5% þó að hækkanir undanfarinna ára hafi fjarri því gengið til baka. FOB-verð á gærum var tæplega 3,6 sinnum hærra í íslenskum krónum en 2009. Útflutningsverðmæti alls var rúmur 3,1 milljarður króna sem er um 400 milljónum minna en árið 2013, en áþekk tala og 2012. Þrír fjórðu verðmætisins voru vegna kjöts og kjötafurða, 13,2% eru gærur og afgangurinn ull og ullarvörur. Rúm 76% verðmætisins komu frá Evrópu en mikilvægust einstöku löndin eru utan ESB, Noregur, Færeyjar og Rússland. Noregur er verðmætasta einstaka landið, en svo koma Hong Kong (Kína) og Bandaríkin.

Skylt efni: Lanbakjöt | sykyr | neysla

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...