Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Jaguar F-Pace.
Jaguar F-Pace.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 28. mars 2017

Jaguar F-Pace jepplingur á góðu verði

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Þegar nýtt merki í bílum er í boði er það fyrir flestum þeim sem á annað borð hafa áhuga á bílum eitthvað nýtt og spennandi sem þarf að skoða. 
 
Fyrir um mánuði síðan byrjaði BL að selja Jaguar bíla. Til að byrja með býður BL upp á fimm tegundir af Jaguar bílum, en mig langaði mest að prófa fjórhjóladrifna jepplinginn hjá þeim. Jepplingurinn, sem heitir Jaguar F-Pace, er í boði í sautján útfærslum, en sá sem ég prófaði var með stærstu dísilvélinni sem í boði er.
 
Sennilega skemmtilegasta og kraftmesta vél sem ég hef prófað
 
Bíllinn sem ég prófaði heitir Jaguar F-Pace R-Sport og er með sex strokka 3,0 dísilvél sem skilar 300 hestöflum og togkrafturinn er 700 Newtonmetrar (Nm). Bíllinn er með aldrifi, átta þrepa sjálfskiptingu og á viðbragðið úr 0 í 100 km hraða að vera um 6,2 sek. (hámarkshraði sagður vera 241 km, en ég prófaði það ekki). Uppgefin eyðsla í blönduðum akstri er 6,0 lítrar af dísil á hundraðið.
 
Prufubíll er í dýrari kantinum og kostar 10.590.000, hlaðinn þægindum og aukabúnaði s.s. hita í stýri, aukafjarstýringu til að kveikja á hitara í bílnum sem er fljótur að hita upp bílinn. 
 
Hægt er að fá fjórar mismunandi gerðir af Jaguar F-Pace R-Sport með vélar frá 180 hestöflum upp í 340 hestafla bíl og er verðið frá 8.690.000 upp í 13.090.000.
 
Þægilegur í akstri og rúmgóður, með litla eyðslu miðað við kraft
 
F-Pace er þægilegur að keyra, sæti góð og hægt að stilla á alla vegu með rafmagni. Fótarými mjög mikið bæði í fram- og aftursætum. Farangursrými er mjög stórt (650 lítrar). Bíllinn er fljótur að hitna að innan án þess að setja forhitamiðstöðina á með aukafjarstýringunni, en ef hún er notuð er bíllinn heitur þegar komið er að honum. 
 
Það eina sem var að trufla mig við bílinn var að í framrúðunni eru hitaþræðir sem sjást of mikið þegar mjög bjart er, en í staðinn kemur þetta sér vel á morgnana þegar aðrir þurfa að skafa af framrúðunni.
 
Ég keyrði bílinn um 220 km og fyrst var tekinn góður hringur innanbæjar og eftir 90 km akstur innanbæjar á meðalhraðanum 42 km var ég að eyða 9,4 lítrum á hundraðið. Næst var það langkeyrsla upp á 60 km. Þar sem meðalhraðinn var 71 km var eyðslan hjá mér 7,0 lítrar á hundraðið.
 
Fjöðrun og aksturseiginleikar
 
Sé maður á 80 km hraða er kraftur vélarinnar svo mikill að þegar tekið er fram úr öðrum bílum á malbikuðum vegum og gjöfin er sett í botn, er maður fljótt kominn á sviptingarhraða. Á malbiki liggur bíllinn vel, svo vel að maður finnur varla fyrir hraðanum á bílnum. Margoft stóð ég sjálfan mig að því að hraðamælirinn sýndi tölu sem var hægra megin við 100 þegar ég hélt mig vera á mun minni hraða. 
 
Á malarvegi fann maður hvað fjöðrunin er góð og venjulegar holur og mishæðir voru hreinlega étnar af fjöðrunarkerfinu. Dekkin undir bílnum sem ég prófaði voru á 19 tommu felgum og prófíll dekkjanna ekki mikill. Góð fjöðrunin setur dekkin í hættu upp á að höggva gat á hliðar dekkjanna. Hægt er að setja 18 tommu felgur undir bílinn og minnka þar með örlítið hættuna á að höggva í sundur dekk.
 
Lokaniðurstaða er að krafturinn er hættulegur gagnvart ökuskírteininu
 
Mínusarnir eru ekki margir, en það sem var mest að trufla mig voru vírarákirnar í framrúðunni og varadekkið er það sem ég kalla aumingi. 
 
Plúsarnir eru fjölmargir, etil dæmis akreinavarinn sem les málaðar línur á veginum (ef þær eru til staðar). Þetta virkar svipað og þegar maður keyrir út í kant þar sem búið er að fræsa ójöfnur í slitlagi.
 
Dráttarkrókurinn er undir bílnum og kemur niður ef ýtt er á takka í farangursrýminu. Það þarf þó að kaupa millistykki til að geta tengt rafmagn í flestar gerðir af kerrum sem hér eru í notkun. Fjarstýringin fyrir hitann inni í bílnum er toppurinn, eitthvað sem ætti að vera í öllum bílum á Íslandi.
 
Eftir að hafa keyrt þennan bíl væri ég alveg til í að eiga svona bíl, en miðað við hversu þungan hægri fót ég hef, held ég að ég yrði fljótur að tapa ökuskírteininu á 300 hestafla bíl.
 
Helstu mál og upplýsingar:
 
Þyngd (frá) 1.775  kg
Hæð 1.652 mm
Breidd 2.175 mm
Lengd 4.731 mm
 

 

11 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...