Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Íslenskri hönnun gerð prýðileg skil í finnsku hönnunartímariti
Íslensk hönnun 28. október 2013

Íslenskri hönnun gerð prýðileg skil í finnsku hönnunartímariti

Út var að koma nýasta tölublað Glorian Koti í Finlandi en það er eitt helsta heimilis- og innréttingablað landsins. Í blaðinu er stór umfjöllun um HönnunarMars og íslenska hönnun en ritstjóri blaðsins, Kari-Otso Nevaluoma var hér á landi í boði Hönnunarmiðstöðvar meðan á hátíðinni stóð. Fyrirsögn geinarinnar er „Kalt land, heit hönun“ (Cold land, hot design) og undirfyrirsgögnin „Íslensk samtímahönnun kemur á óvart, er fersk og verður áhugaverði með hverju árinu.“

Í greinnin kemur fram að Kari-Otso Nevaluoma hafi sérstaklega tekið eftir NotKnot frá Umemi, Súkkulaðiborðum Önnu Þórunnar og Lóshyrningum Tinnu Gunnarsdóttir sem hann segir eitt það allra áhugaverðasta í dag. Þá veitti hann sérstaka athygli skartgripum Aurum sem hann segir draum þeirra sem kunna að meta fallega hluti.

Það kom Sari Peltonen, sem sér um samskipti HönnunarMars við erlenda blaðamenn á óvart hversu ýtarleg umfjöllunin var: „Það vekur athygli hversu umfangsmikil umfjöllun Glorian Koti er um, ekki bara um HönnunarMars heldur einnig um íslenska hönnun, ekki síst tísku ásamst því að vekja atygli á Reykjavík sem áfangastaðar fyrir áhugafólk um hönnun. Eðli málsins samkvæmt get ég ímyndað mér að greinin eigi eftir að vekja mikla athygli og um leið renna styrkari stoðum undir sókn íslenskrar hönnunar í Finnlandi þar sem Hönnunarmiðstöð hefur á undanförnum misserum lagt töluvert undir í kynningu. Þar ber helst að nefna þátttöku íslendinga í hönnunarvikunum í Helsinki og Rovaniemi ásamt því að taka þátt í World Design Capital Helsinki 2012 verkefninu með margvíslegum hætti. Þá var HönnunarMars sérstakur gervitunglaviðburður hönnunarársins 2012 í Helsinki.“ Þess má geta að Sari er frá Finnlandi.

Greipur Gíslason, verkefnastjóri HönnunarMars er að vonum ánægður með greinina: „Við hittum Kari-Otso á hönnunarvikunni í Helsinki, meðal annars fyrir tilstuðlan sendiherra Íslands þar í landi. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á hátíðinni sjálfri og auðvitað íslenskri hönnun almennt í Finnlandi og annað árið í röð verða núna seldir sérstakir HönnunarMars pakkar með Icelandair á hátíðina frá Helsinki.“

 

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...