Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Hvert er áburðargildið í þínum búfjáráburði?
Á faglegum nótum 15. apríl 2015

Hvert er áburðargildið í þínum búfjáráburði?

Höfundur: Borgar Páll Bragason, RML
Óþarfi er að fjölyrða við bændur um mikilvægi þess að nýta búfjáráburðinn sem best en lykillinn að því er að þekkja vel efnainnihald hans. 
 
Í áburðaráætlanagerð styðjumst við yfirleitt við meðaltalstölur byggðar á rannsóknum, en staðreyndin er sú að mikill munur getur verið á efnainnihaldi búfjáráburðar á milli búa og getur meðaltalið því gefið villandi niðurstöðu. Þá geta niðurstöðurnar gefið til kynna að ástæða sé til að kanna betur næringarefnabúskap jarðarinnar.
 
Ráðgjafarmiðstöð land­búnaðarins hefur nú samið um efnagreiningar á búfjáráburði fyrir bændur. RML mun koma sýnunum í efnagreiningu, túlka niðurstöðurnar ásamt því að skrá þær í Jörð.is.
Þurr búfjáráburður er mjög erfiður til sýnatöku vegna misleitni og þess vegna mælum við frekar með að sýnatakan verði tekin úr upphrærðum skít. Sýnatakan sjálf verður í höndum bænda, enda mikilvægt að sýnatakan eigi sér stað um leið og mykjunni er dælt á völl. Eðli málsins samkvæmt verða niðurstöður greininganna ekki klárar fyrr en eftir að búið er að dreifa mykjunni og nýtist því ekki nema að takmörkuðu leyti í vor. Það má þó endurmeta notkun tilbúins áburðar í ljósi niðurstaðnanna. Það verður ekki fyrr en við áburðaráætlun næsta árs og ára, sem niðurstöðurnar nýtast að fullu en líklegt er að ef samsetning bústofns og afurðir breytast lítið, þá breytist efnainnihald búfjáráburðarins ekki heldur mikið.
Mikilvægt er að sýnið sé sem bestur þverskurður af mykjunni. Þekkt er að þrátt fyrir að búið sé að hræra vel í mykjunni, er tilhneigingin sú að seinasta mykjan verði þéttari en sú sem fyrst kemur. Þess vegna mælum við með að sýnatakan verði með eftirfarandi hætti:
Taka skal sýni 5 sinnum meðan á útdælingu stendur, 5 lítra hverju sinni. Þó ekki úr því allra fyrsta því brunnur getur verið fullur af vatni. Taka þarf sýnin með sem jöfnustu bili og seinasta sýnið tekið úr seinustu tankfylli.
 
Þessum sýnum er síðan hellt saman í kerald og þegar allt er komið er hrært vel og endanlegt sýni tekið í litla fötu eða brúsa, lokað vel og sýnið merkt. Passlegt er að sýnið sé 2 lítrar.
 
Verð fyrir þessa þjónustu eru krónur 18.000 + vsk fyrir hvert sýni.
 
Ráðunautar RML munu taka við sýnunum á öllum starfsstöðvum en einnig má senda sýnið beint á Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes. Sýnin þurfa að vera komin til ráðunauta RML eigi síðar en 20. apríl. /Borgar Páll Bragason
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...