Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Ram 3500 Limited, án efa brúklegasti bíllinn sem ég prófaði á síðasta ári.
Ram 3500 Limited, án efa brúklegasti bíllinn sem ég prófaði á síðasta ári.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 19. janúar 2018

Hvað ætti að vera í bílnum sem á að kaupa?

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Í mörgum tilfellum er fólk lítið að hugsa um öryggi þegar verið er að kaupa nýjan bíl. Eftir að hafa prófað um 20 bíla á síðasta ári koma upp nokkur atriði sem mætti huga að þegar verið er að kaupa nýjan bíl sem meiningin er að eiga næstu fimm til tíu árin.
 
Fyrst vil ég nefna blind­horns­vara, en svoleiðis öryggisbúnaður er sérlega góður fyrir þá sem sjaldan eru í mikilli umferð. Blindhornsvarinn er kominn í marga nýja bíla og er það mín skoðun að svoleiðis útbúnaður ætti að vera í öllum bílum. Einnig er gott að vera með akreinalesara, sérstaklega fyrir þá sem eru að keyra langar vegalengdir, en gallinn við akreinalesarana er ekki búnaðurinn sjálfur. Vandamál akreinalesaranna er slæm merking vega og viðhald, en þar sem vantar vegmerkingar er búnaðurinn ekki að virka sem skyldi og því lítið gagn í þessum annars ágæta öryggisbúnaði.
 
Þægindi er alltaf eitthvað sem er vinsælt
 
Að líða vel við akstur er nauðsynlegt, en í flestum bílum eru sætishitarar, en í of fáum er kæling í sætunum sem er afar þægilegt, sérstaklega í langkeyrslum. 
 
Margir bílar eru komnir með hitara í stýrið, en svoleiðis útbúnaður finnst mér hreint æðislegur á köldum vetrardögum og ef maður kemur inn í bílinn blautur um hendur á miklum rigningardögum.
 
 Þeir sem lesa reglulega þessar greinar mínar hafa eflaust tekið eftir því að ég lasta alltaf varadekkslausa bíla enda er vegakerfi Íslands ekki boðlegt fyrir varadekkslausan bíl. Það er þó smá klór í bakkann að vera með varadekk það sem ég kalla „aumingja“ sem er yfirleitt dekk sem ekki má aka á hraðar en 80 km hraða (hef líka séð „aumingja“ sem má ekki fara yfir 60).
 
Eru rafmagnsbílar lausn eða vandamál?
 
Um 3% af íslenskri mengun kemur frá bílaflota landsmanna, en vissulega er leitun að stað þar sem hleðslurafmagnið er eins um­hverfisvænt og hér. Síðustu þrjá mánuði 2017 var þriðji hver seldur bíll rafmagnsbíll, en vandamálið við rafmagnsbíla er að flestir þeirra eru varadekkslausir. Hins vegar virðist eins og að þöggun sé um hversu skaðlegir þeir eru í raun bæði í framleiðslu á rafhlöðu og við eyðingu á rafhlöðunni þegar skipta þarf henni út fyrir nýja. Ég hef lesið tvær greinar um förgun og gerð bíla­rafhlaðna. Í annarri grein­inni var sagt að förgunar­mengunin væri svipuð og ársmengun frá venjulegum meðalbíl. Í hinni var miðað við allt mengunarferli á meðal rafbíls frá Japan sem kominn var til USA og með skipaflutningi. Við smíði og förgun jafngilti mengunin V8 350 bensínvél á 2/3 snúning í heilt ár. Frekar sláandi fullyrðingar, en vert umhugs­unar­efni.
 
Stutt yfirlit um vænlegustu bílana sem ég prófaði 2017
 
Það er enginn vafi á að brúklegasti bíllinn sem ég prófaði á síðasta ári er RAM 3500 pallbíllinn, en hann hefur allt sem brúklegur bíll þarf að bera. Hann er rúmgóður, kraftmikill og með mikið notkunargildi. 
Af fólksbílum eru hagstæðustu kaupin í Dacia Logan sem fjölskyldubíl til að komast frá a til b, bíllinn er með mikið farangursrými, sparneytinn á eldsneyti og kostar lítið í innkaupum.
 
Af jeppum voru tveir sem stóðu upp úr: Jaguar F-Pace er einhver kraftmesti og skemmtilegasti jepplingur sem ég hef ekið og verðið kom mér á óvart. Hinn jeppinn var 33" breyttur Ssang Yong Rexton á ótrúlega góðu verði með breytingu. Jeppi sem er fullkomlega samkeppnisfær við aðra jeppa.
 
Erfitt að velja rafmagnsbíl vegna mikils fjölda
 
Þeir rafmagnsbílar sem ég prófaði á síðasta ári voru allir með annars vegar rafmagn eða venjulega mótora. Flestir af þessum bílum gáfu þann möguleika að vera með báðar vélarnar í notkun í einu sem orkugjafa. Án efa bar af kraftmesti og sportlegasti bíllinn, VW Passat Variant GTE Premium, sem skilaði með báðar vélarnar í einu 217 hestöflum. Hins vegar var sá rafmagns/bensínbíll sem mér kom mest á óvart, Mini. Ótrúlega stöðugur fjórhjóladrifinn bíll sem var hreinn unaður að keyra. Það skemmtilega við þann bíl var að rafmagnsmótorinn sá um afturhjólin og bensínmótorinn um framhjól. Saman unnu þessi drif svo vel saman að það var hreint með ólíkindum. Hef sjaldan skemmt mér svona vel á bíl í fljúgandi hálku.
 
„Rúsínan í pylsuendanum“
 
Einn var sá bíll sem kom mér á óvart og er örugglega vanmetinn sem bíll í snjó og hálku. Það var Fiat Panda Cross. Á dekkjunum sem voru undir honum þegar ég prófaði hann, komst ég ótrúlega mikið í snjó. Ef maður myndi setja minni felgur á bílinn, breiðari og hærri dekk með nöglum væri eflaust hægt að nota hann við sambærilegar aðstæður og breyttan jeppa á 35" dekkjum með lágmarkslofti í dekkjunum til að fá flot og grip í snjó og hálku. 
 
Hafa ber í huga að ofangreint eru mínar persónulegu skoðanir og eflaust væri listinn öðruvísi hjá mismunandi fólki sem myndi prófa þessa sömu bíla og ég prófaði á árinu 2017.

7 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...