Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Heilræði til ferðafólks um verslunarmannahelgina
Mynd / Af vefnum vis.is
Fréttir 3. ágúst 2018

Heilræði til ferðafólks um verslunarmannahelgina

Vátryggingarfélag Íslands birti í gær á vef sínum nokkur heilræði fyrir ferðafólk sem er á leið inn í verslunarmannahelgina, stærstu ferðahelgi ársins.

Þar kemur fram að mikill umferðarþungi skapist iðulega þessa helgi, en sem betur fer hafi umferðin gengið ágætlega undanfarin ár. „Öll viljum við halda þeirri þróun áfram en til þess þurfa allir að leggja sitt af mörkum,“ segir á vefnum.

Svo koma eftirfarandi heilræði fyrir vegfarendur sem fyllsta ástæða er til að taka til athugunar:

  • Hraðakstur sparar lítinn tíma en eykur mjög líkur á slysi. Framúrakstur, þegar umferðarraðir eru langar, gerir lítið annað en að auka slysahættu. Reynum að liðka fyrir umferð og miðum hraðann við hámarkshraða og aðstæður hverju sinni.
     
  • Ölvunarakstur hefur valdið fleiri slysum síðustu tvö ár heldur en árin þar á undan. Rannsóknir sýna að ölvaðir ökumenn eru 50 sinnum líklegri til að valda banaslysi en allsgáðir. Munum að það getur tekið allt að 18 klukkustundir fyrir áfengi að fara úr líkamanum.
     
  • Svefn og þreyta er fjórða algengasta orsök banaslysa í umferðinni hér á landi. Rannsóknir sýna að það er þrisvar sinnum líklegra að slys vegna þreytu valdi dauðsfalli eða örkumlun heldur en ef um hraðakstur er að ræða þar sem sofandi ökumaður bregst ekki við aðstæðum.
    Samkvæmt könnun Samgöngustofu hefur rúmlega helmingur ökumanna orðið skyndilega mjög syfjaður í akstri  á undanförnum 6 mánuðum og það sem verra er, er að  4% þeirra hafa sofnað við aksturinn. Ökum á öruggt svæði og tökum 15 mínútna kríu ef svefninn sækir að.
     
  • Truflun við akstur er vaxandi vandamál og síminn þar helsta ástæðan. Erlendar rannsóknir sýna að ef talað er í síma við akstur veldur það 35% athyglisskerðingu og ökumaðurinn er fjórum sinnum líklegri til að lenda í alvarlegu umferðarslysi.“
     
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...