Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Haustplöntur
Á faglegum nótum 11. september 2019

Haustplöntur

Höfundur: Vilmundur Hansen

Hægt er að teygja á sumrinu með því að skipta sumarblómunum út fyrir harðgerðar haustplöntur, litríku lyngi eða sígrænum sýprusum.

Allar þessar plöntur standa fram í frost og margar geta lifað veturinn af sé þeim skýlt og þær vökvaðar reglulega í þíðu.

Beitilyng setur svip sinn á móa og melabörð víða um land síðla sumars. Kýs þurran og súran jarðveg. Blómstrar rauðum, bleikum eða hvítum blómum á haustin og er til í mörgum litaafbrigðum. Hvítt beitilyng er sagt veita gæfu. Blöðin verða rauðbrún á veturna. Nafnið beitilyng vísar til þess að plantan þótti góð til beitar. Allt frá fornöld voru blóm beitilyngs notuð til að bragðbæta öl.

Í eina tíð voru vendir beitilyngs bundnir saman og búnir til úr þeim kyndlar eða sópar. Beitilyngsvendir geta líka staðið árum saman sem stofuskraut án þess að tapa lit. Þar sem mikið óx af beitilyngi þótti gott að hafa það undir undirsængunum í rúmfletum fyrr á tíð.

Klukkudeslyng er sígrænn, lágvaxinn runni sem er skyldur eriku og beitilyngi. Innan ættkvíslarinnar Gaultheria eru 170 til 180 tegundir sem eru frá 10 sentímera runnum og upp í 6 metra há tré.

Klukkudeslyngið sem þekkt er hér er lágvaxið, um 10 sentímetrar  á hæð, og með fallegum grænum blöðum. Blómin hvít og bjöllulaga og aldinið rautt ber. Þrífst best í potti eða keri en lifir ekki veturinn af utandyra. Berin á klukkudeslyngi eru æt og minnir bragðið á þeim á gömlu Wrigleys spearmint tyggjóplöturnar í hvítu pökkunum. Ekki er ráðlegt að borða mikið af berjunum í einu því að í miklu magni geta þau valdið niðurgangi.

Silfurkambur er aðallega ræktaður sem einært sumarblóm. Blöðin marggreind, grá eða silfurlit og með flauelskenndri áferð. Plantan harðgerð og lifir veturinn iðulega af. Blómstrar sinnepsgulum blómum. 15 til 25 sentímetra há hér en 50 til 80 sentímetra hár hálfrunni í heimkynnum sínum við Miðjarðarhafið. Dafnar best á þurrum stað og er mikið notuð í bryddingar.

Skrautkál er blaðfallegt kál sem er ræktað vegna litarins, grænt með hvítu eða rauðu, og lögunar blaðanna sem geta verið slétt eða krulluð. Höfuðið laust í sér. Stendur lengi fram á haust. Getur náð 30 sentímetra hæð. Fallegt í blómaker eitt og sér eða með öðrum haustplöntum. Harðgert og þolir nokkurt frost. Bragðgott og verður sætara ef það frýs. Fallegt í salat.
 

Sýprus eru sígræn tré og viðkvæm fyrir umhleypingum. Þrífast best í hálfskugga og á skjólgóðum stað.

Hér eru sýprusar aðallega notaðir sem haust- og vetrarplöntur í kerum. Geta lifað veturinn af sé þeim skýlt fyrir vorsólinni eða þeir hafðir norðanmegin við hús. Úr ýmsum yrkjum er hægt að velja, vegna litar og vaxtarlags.

Vírkambur kemur upphaflega frá  Ástralíu þar sem plantan er lágvaxinn, kúlulaga og sígrænn runni með silfurlitaðar greinar. Greinabyggingin minnir helst á víraflækju en blómin eru hvít eða gul. Plantan er salt- og vindþolin í heimkynnum sínum og hefur lifað veturinn af hér.

Haustplöntum er hægt að planta í ker eða beint út í beð, allt eftir aðstæðum.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...