Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Smáframleiðendur og bændur koma með vörur sínar í þéttbýlið
Mynd / REKO á Íslandi
Fréttir 4. október 2018

Smáframleiðendur og bændur koma með vörur sínar í þéttbýlið

Höfundur: smh
Milliliðalaus sala á matvælum færist í vöxt. Ein birtingarmynd þess er svokölluð REKO-hugmyndafræði sem rekin er í gegnum Facebook-hópa. Laugardaginn 13. október ætla bændur, heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur á Suðvesturlandi að leggja leið sína í þéttbýlið og afhenda kaupendum vörur sínar sem þeir hafa lagt inn pantanir fyrir í gegnum Facebook-hópana REKO Reykjavík og REKO Vesturland sem voru nýlega stofnaðir.
 
REKO er tekið úr sænsku og er stytting á „vistvænir og heiðarlegir viðskiptahættir“. Matarauður Íslands – í samvinnu við Bændasamtök Íslands - hefur unnið að því að koma REKO-hugmyndafræðinni af stað hér á landi og eru nú að myndast hópar um land allt. 
 
Markaðstorgið er í Facebook-hópnum
 
Stjórnendur hópanna, þær Arnheiður Hjörleifsdóttir bóndi (REKO Reykjavík) og Hlédís Sveinsdóttir hjá Matarauði Vesturlands (REKO Vesturland), vinna að skipulagningu viðburðanna í samvinnu við Oddnýju Önnu Björnsdóttur ráðgjafa sem vinnur að verkefninu fyrir Matarauð Íslands.
 
Að sögn Oddnýjar er enn tími fyrir bændur og framleiðendur að taka þátt. „Hægt er að selja allar tegundir löglegra matvara eins og kjöt, fisk, egg, sjávarfang, grænmeti, brauð og kökur, osta, sultur og sælgæti. Í hvorum hóp fyrir sig hefur verið stofnaður sérstakur viðburður fyrir fyrstu afhendinguna, en planið er að hafa slíka viðburði reglulega. Hve reglulega mun fara eftir framboði og eftirspurn. 
 
Fyrirkomulagið er þannig að framleiðendur setja inn færslur inn í þá viðburði sem þeir vilja taka þátt í þar sem þeir tilgreina hvað þeir hafi í boði og hvað það kosti. Undir hverja færslu setja áhugasamir kaupendur inn athugasemd þar sem þeir tilgreina hvað þeir vilji kaupa og hve mikið. Þeir geta einnig gert það í einkaskilaboðum til framleiðenda. 
 
Kaupendur greiða framleið­endunum svo rafrænt fyrir það sem þeir ætla að kaupa – fyrir afhendingardaginn. Á afhendingardeginum afhenda framleiðendur kaupendum síðan vörurnar milliliðalaust,“ segir Oddný.
 
Milliliðalaus viðskipti
 
Tilgangurinn með REKO er að efla nærsamfélagsneyslu og færa framleiðendur og kaup­endur nær hver öðrum; gera matarhandverki og heima­vinnslu hærra undir höfði og færa smáframleiðendur ofar í virðiskeðjunni. Fyrsta afhending REKO Vesturlands verður laugar­daginn 13. október klukkan 11-12 á bílaplani Krónunnar á Akranesi og REKO Reykjavík sama dag klukkan 13-14 á bílaplani Krónunnar í Lindum. Sömu framleiðendur geta tekið þátt í báðum hópum. 
 
Þeir framleiðendur sem hafa áhuga á að taka þátt, eða vilja nánari upplýsingar, geta haft samband við þær Hlédísi, Arnheiði eða Oddnýju í gegnum Facebook. 
 
Neðangreindir framleiðendur höfðu boðið vörur til sölu og afhendingar laugardag 13. október þegar blaðið fór í prentun. 
 
REKO Reykjavík framleiðendur:
  • Korngrís frá Laxárdal með svínakjöt. 
  • Lindarbrekka með kálfakjöt og fleira. 
  • Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi með lamba- og kindakjöt. 
  • Súrkál fyrir sælkera. 
  • Litla gula hænan með kjúkling. 
  • Mýrarnaut með nautakjöt. 
  • Ragnheiður Hallgrímsdóttir með heimagerðan brjóstsykur. 
  • Bjarteyjarsandur með lambakjöt og fleira.

 

REKO Vesturland framleiðendur:
  • Matarhandverk Fram-Skorradal. Með birkireyktan silung, sultur og salza. 
  • Sauðfjárbúið Ytri-Hólmi. Kofareykt sveitabjúga, kindahakk og fjölbreytt úrval lambakjöts. 
  • Súrkál fyrir sælkera. Fimm gerðir af ljúffengu súrkáli. Klassískt með kúmeni og lauk, Curtido, Kimchi, karrýkál og sítrónukálið ljúfa. 
  • Lindarbrekka. Alikálfakjöt, kálfahakk, grísakjöt, landnámshænuegg, hrútaberjahlaup og handgerður brjóstsykur. 
  • Bjarteyjarsandur. Kindabjúgu ömmu Kollu, kryddað lambafillet, úrbeinað og fyllt lambalæri, kindahakk, birkireyktur bláberjabiti, grafinn geitavöðvi og heimagert mintuhlaup. 
  • Mýranaut. Nautasteikur, ribeye, sirlon, entrecote og innralæri. 
  • Hjarðarfellsbúið. Hamborgarar af snæfellsku nauti.
Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi býður upp á kofareykt sveitabjúga, kindahakk og fjölbreytt úrval lambakjöts. Mynd / Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi

 

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum
Fréttir 26. apríl 2024

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum

Gýgjarhólskot í Biskupstungum var útnefnt ræktunarbú síðasta árs á fagfundi sauð...

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...