Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Dacia Logan: Fjölskyldubíll með ótrúlega mikið farangursrými
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 30. september 2014

Dacia Logan: Fjölskyldubíll með ótrúlega mikið farangursrými

Höfundur: Hjörtu L. Jónsson

Fyrir nokkru auglýsti BL nýjan ódýran Dacia-fólks­bíl í heilsíðuauglýsingu með þeim orðum að fjögur golfsett kæmust fyrir langsum í farangursrýminu. Ég sem ánægður eigandi Dacia Duster-jepplings, sem hefur frekar lítið farangursrými, var ekki alveg tilbúinn að trúa þessu.

Eftir reynsluakstur á þessum 90 hestafla, framhjóladrifna bíl tel ég að Dacia Logan sé kjörinn bíll fyrir þá sem ferðast mikið með mikinn farangur,  stór fjölskyldubíll á verði sem enginn annar býður.

Margt líkt og í Duster-jepplingnum

Þegar ég settist inn í bílinn kom margt kunnuglegt fyrir sjónir, s.s. flautan ekki í stýrinu (á enda stefnuljósarofans), takkinn fyrir aksturstölvuna, speglarnir (sem eru aðeins of litlir), sætin, mælaborðið og fl. Sem sagt ekkert verið að hanna neitt nýtt því það er búið að sanna að þetta virkar þótt einfalt sé.

Þrátt fyrir að framsætin líti eins út og í jepplingnum eru þau mun hreyfanlegri í Dacia Logan, bæði fram og aftur, upp og niður. Grillið og afturhlerinn eru ekkert ósvipuð og í jepplingnum í útliti. Bogarnir á toppnum eru langsum eftir öllum bílnum og festir á þrem stöðum og virka sterklegir. Allt rými inni í bílnum er gott bæði í framsætum og aftursætum. Aftast er svo risastórt rými fyrir farangur og mælist 573 lítrar og með aftursætin niðri er rýmið 1518 lítrar (man aðeins einu sinni eftir því að hafa prófað bíl með yfir 550 lítra farangursrými).

Að sjá inn í bílinn að aftan virkar þetta rými eins og á litlum sendibíl, svo er töluvert pláss undir plötu þar sem varadekkið á að vera, en ekkert varadekk er í bílnum, aðeins rafmagnspumpa og viðgerðarsett til að bjarga sér.

Mjög stöðugur á malarvegi

Í prufuakstrinum fannst mér 1500cc dísilvélin vera löt af stað enda 20 hestöflum minni vél en í jepplingnum frá Dacia, en strax og skipt var í þriðja gír var letin búin og þokkalegt tog dísilvélarinnar nýtur sín, hins vegar hefði fimm gíra kassinn mátt vera sex gíra.

Eftir að hafa núllstillt aksturstölvuna og ekið bílnum um 40 km í blönduðum akstri sýndi aksturstölvan mér að mín eyðsla var 4,2 á hundraðið af dísilolíu. Inni í þessum akstri voru prófanir á snerpu, þéttur akstur í beygjum og malarvegsprófanir. Á vegi sem ég nota oft til prufuaksturs, þar sem malbik er töluvert skemmt og holótt, fannst mér ég heyra of mikið veghljóð.

Á malarvegi liggur Dacia Logan mjög vel og eflaust er það að hluta til að þakka hversu langt er á milli hjóla á bílnum og fjöðrun er mjög góð, en of mikið malarhljóð er upp af afturhjólunum á bílnum (mætti setja meira magn af ryðvarnargrunni aftan til undir bílinn). 

Hagstætt verð gæti skapað vinsældir

Eftir að hafa prófað Dacia Logan var ég ekki ósáttur við margt, en hliðarspeglar mættu vera stærri. Þá er veghljóð bæði á malbiki og frá grjóti á malarvegum, snerpa af stað úr kyrrstöðu mætti vera meiri og það vantar varadekk. Á móti kemur mikið rými alls staðar í bílnum, einfaldleiki, sem ég tel kost helstan þegar bíllinn eldist. Þá er minna af flóknum búnaði sem getur bilað. Bíllinn er eyðslugrannur, en uppgefin eyðsla í blönduðum akstri er 3,8 lítrar á hundraðið. Miðað við mitt aksturslag gæti ég trúað að ég væri að fara með á bilinu 4,3 til 5 lítrar á hundraðið.

Persónulega tel ég þennan bíl henta best þeim sem ferðast mikið og með mikinn farangur. Hann gæti því hentað fyrir bílaleigur, útivistarfólk eins og skíðafólk, golfara, göngufólk og fleiri sem þurfa mikið pláss fyrir farangur sem tengist áhugamálum þeirra. Allavega er verðið á bílnum hagstætt og eldsneytiseyðslan það lítil að rekstrarkostnaður bílsins er lágur. Nánari upplýsingar um Dacia Logan má finna á vefsíðunni www.dacia.is.

Helstu mál og upplýsingar

Þyngd 1.090 kg
Hæð  1.550 kg
Breidd  1.733 mm
Lengd   4.492
Vél:   1500cc dísil, 90 hestöfl, 5 gíra beinskiptur.
Verð frá   2.790.000
 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...