Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Birgir Þórðarson á Öngulsstöðum lét af stjórnarstörfum fyrir Sögufélag Eyfirðinga á aðalfundi félagsins nýverið. Hann tók fyrst sæti í stjórn Sögufélagsins árið 1976 og hefur þjónað félaginu óslitið síðan, ýmist sem formaður, ritari eða meðstjórnandi.
Birgir Þórðarson á Öngulsstöðum lét af stjórnarstörfum fyrir Sögufélag Eyfirðinga á aðalfundi félagsins nýverið. Hann tók fyrst sæti í stjórn Sögufélagsins árið 1976 og hefur þjónað félaginu óslitið síðan, ýmist sem formaður, ritari eða meðstjórnandi.
Fréttir 5. júlí 2017

Birgir á Öngulsstöðum úr stjórninni eftir 41 árs setu

Höfundur: Margét Þóra Þórsdóttir
Birgir Þórðarson á Öngulsstöðum tilkynnti á aðalfundi Sögufélags Eyfirðinga sem haldinn var fyrir nokkru að hann léti af stjórnarsetu sökum aldurs.
 
Birgir tók fyrst sæti í stjórn Sögufélagsins árið 1976 og hefur þjónað félaginu óslitið síðan, ýmist sem formaður, ritari eða meðstjórnandi.  Þess má geta að Sögufélag Eyfirðinga var stofnað 27. júní 1971. Skortir því ekki nema fáein ár upp á að Birgir hafi setið í stjórn félagsins frá upphafi. Fyrir þetta þökkuðu aðalfundargestir með miklu lófaklappi.
 
Ábúendatal Stefáns á lokametrum
 
Þá varð fundarmönnum tíðrætt um hið mikla ábúendatal Stefáns Aðalsteinssonar sem hlotið hefur nafnið, Eyfirðingar framan Glerár og Varðgjár, og áformað er að komi út í fimm bindum. Nú hillir undir verklok sem væntanlega verða í haust en þá þarf sannkallað Grettistak til að koma verkinu á prent – sem ætti nú samt ekki að vaxa okkur Eyfirðingum í augum, bentu ýmsir á, og höfðu þá í huga framtak Skagfirðinga við að varðveita sögu sína – og eru þeir þó umtalsvert færri en við, sögðu fundarmenn hver við annan.
 
Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum tók við erindi Gunnars Jónssonar en hann hefur undanfarin ár lagt nótt við dag að safna heimildum um Eyjafjarðarsveit og skráningu þeirra í gagnagrunn. Hvatti Gunnar þá í  útsveitum til að fara að fordæmi sínu og hefja skipulagða söfnun heimilda. Var gerður góður rómur að máli hans.
 
Guðmundur P. Steindórsson, gjaldkeri Sögufélags Eyfirðinga. 
 
Félögum hefur fækkað
 
Að lokum skal þess getið að félögum í Sögufélagi Eyfirðinga hefur fækkað umtalsvert. Þó er ekki vitað um nema einn einstakling sem hefur bráðlifandi sagt sig úr félaginu og segir það sína sögu um hið ágæta rit Súlur, sem um þessar mundir er ritstýrt af Birni Teitssyni, og er helsta skrautfjöðurin í hatti félagsins – en þess má geta að konur setja að þessu sinni sterkan svip á ritið.
 
Staðreyndin er hins vegar sú að stjórninni hefur illa tekist að bera sig eftir nýjum félögum. Í frétt frá stjórn félagsins segir að hún vilji nú nota tækifærið og bjóða öllum sem unna eyfirskum fróðleik að gerast félagar í Sögufélagi Eyfirðinga og fá ársrit félagsins, Súlur, heimsendar en ritið kemur út árlega. Hægt er að hringja í síma 462-4024 eða setja nafn, heimili og kennitölu á netfangið, gudps@simnet.is.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...