Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Skrifað undir samstarfssamninginn. Á myndinni eru f.v. Ragnar Magnússon, oddviti Hrunamannahrepps, Skafti Bjarnason, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Árni Eiríksson, oddviti Flóahrepps, Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, Helgi Kjartansson, oddviti B
Skrifað undir samstarfssamninginn. Á myndinni eru f.v. Ragnar Magnússon, oddviti Hrunamannahrepps, Skafti Bjarnason, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Árni Eiríksson, oddviti Flóahrepps, Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, Helgi Kjartansson, oddviti B
Mynd / ÁÞ
Fréttir 19. febrúar 2016

Bera seyru á lokaðan afrétt

Höfundur: Áskell Þórisson / Hörður Kristjánsson
Í fyrri viku var undirritaður samstarfssamningur Landgræðslu ríkisins og sveitarfélaga í uppsveitum Árnessýslu um nýtingu á seyru til landgræðslu og  áburðar á lokuðum afrétti. Samningurinn er til átta ára.
Er þetta gert í framhaldi af mjög góðum árangri Hrunamannahrepps í samvinnu við Landgræðsluna um nýtingu á seyru til landgræðslu. Sést árangurinn skýrt á þeim svæðum sem borið hefur verið á í samanburði við óáborin svæði. 
 
Vegna þessarar góðu reynslu, auk vandamála við losun seyrunnar, ákváðu nágrannasveitarfélög Hrunamanna að ganga til samstarfs og nýta alla seyru sveitarfélaganna til uppgræðslu. Sveitarfélögin sem um ræðir auk Hrunamannahrepps eru Bláskógarbyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Flóahreppur. Tæknisvið Uppsveita sem ofangreind sveitarfélög standa að var fengið til að hafa umsjón með verkinu.
 
Þetta samstarf hefur leitt af sér uppbyggingu móttökustöðvar fyrir seyru, þar sem hún er unnin með því að blanda með kalki. Blöndunin leiðir af sér að allar sóttkveikjur í seyrunni eyðast og til verður áburður sem nýta má til uppgræðslu.
 
Talsverð uppbygging hefur farið fram á móttökustöðinni, en steypt hafa verið plön undir vinnsluna svo kröfur um hreinleika standist. Enn er nokkur vinna eftir við svæðið en áhersla hefur verið lögð á að svæðið sé snyrtilegt. 
 
Eftir að seyran hefur verið blönduð og gerð að áburði er efninu safnað í gáma sem ekið er á afgirtan afrétt Landgræðslunnar og dreift þar. Landgræðslan fylgir verkefninu eftir og Tæknisvið Uppsveita sér um sýnatöku og að fylgja eftir að kröfur um starfsleyfi séu uppfylltar. Öll uppbygging verkefnisins hefur verið unnin í góðri samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands. 
 
Í samningum segir m.a. að sveitarfélögin safni seyru úr sveitarfélögum í samræmi við samninga við losunaraðila. Þar með talin er seyra frá þéttbýli, dreifbýli, sumarhúsum og eftir atvikum atvinnurekstri.
Landgræðslan leggur til ráðgjöf og fræ til sáningar á uppgræðslusvæðunum telji hún þess þörf. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...