Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Ólafur Davíð Guðmundsson og Þórður Aðalsteinsson frá Hlöðu ehf. afhenda Guðmundi Frey Kristbergssyni á Háafelli hleðslustöð fyrir rafbíla.
Ólafur Davíð Guðmundsson og Þórður Aðalsteinsson frá Hlöðu ehf. afhenda Guðmundi Frey Kristbergssyni á Háafelli hleðslustöð fyrir rafbíla.
Mynd / TB
Fréttir 17. apríl 2018

Bændur bjóða upp á hleðslu í hlaði

Höfundur: Tjörvi Bjarnason

Fyrstu hleðslustöðvarnar frá Hlöðu ehf. voru afhentar bændum í verkefninu „Hleðsla í hlaði“ á dögunum. Það voru þeir feðgar Jón Zimsen og Knútur Dúi Kristján Zimsen sem reka gistiheimilið Dranga á Skógarströnd og Guðmundur Freyr Kristbergsson á Háafelli í Hvítársíðu sem tóku á móti gripunum. Þeir eru meðal stækkandi hóps bænda sem hyggur á uppsetningu á rafhleðslustöðvum á sínum búum til þess að þjónusta rafbílaeigendur. Fleiri bændur munu á næstu dögum og vikum taka fleiri hleðslustöðvar í gagnið.


Jón Zimsen og Knútur Dúi Kristján Zimsen með nýju rafhleðslustöðina.

Ólafur Davíð Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hlöðu, sagði við þetta tækifæri að margir væru áhugasamir um að setja upp hleðslustöðvar og nú væri bændum ekkert að vanbúnaði. Hann sagði að stöðvarnar á Dröngum og á Háafelli væru hluti af nýrri sendingu sem var að berast til landsins. Biðlisti var eftir stöðvunum sem nú eru til afgreiðslu.

IKEA í fararbroddi
Hleðslustöðvarnar voru afhentar við sama tilefni og á fimmta tug bænda í Hleðslu í hlaði og í Félagi ferðaþjónustubænda heimsóttu IKEA 11. apríl. Tilgangurinn var að kynna sér starfsemi húsgagnarisans í Garðabæ. IKEA er með um 60 hleðslustöðvar fyrir utan verslunina og býður rafbílaeigendum að hlaða á meðan þeir sinna erindum í búðinni. Að sögn Þórarins Ævarssonar framkvæmdastjóra IKEA hefur reynslan verið góð og rafbílaeigendur sérlega ánægðir með þjónustuna. Engin teljandi vandamál hafa komið upp í rekstri hleðslustöðvanna.


Guðný Camilla Aradóttir, markaðs- og umhverfisfulltrúi, fór yfir helstu áherslur IKEA á sviði sjálfbærni og samfélagslegrar ábyrgðar. Uppsetning rafhleðslustöðvanna er liður í umhverfisstefnu fyrirtæksins hér á landi.



Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, sagði frá starfsemi fyrirtækisins.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...