Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Tvíbýlistjald.
Tvíbýlistjald.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 1. september 2014

Autohome-tjald á toppinn

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson

Eftir mikil ferðalög í sumar var eitt af því sem ég sá hópur bíla með tjöld upp á þaki. Svona tjald er eitthvað sem ég gæti vel hugsað mér að eiga í staðinn fyrir tjaldvagninn minn. Eftir smá eftirgrennslan fann ég fyrirtæki sem selur svona tjöld og renndi ég í heimsókn og skoðaði úrvalið.

Hægt að setja á flesta bíla með lítilli fyrirhöfn

Topptjald.is Njarðarbraut 1 Reykjanesbæ flytur inn tjöld sem ætluð eru á þak bíla. Þegar ég kom á staðinn voru þrír bílar með tjöld á toppnum og af þeim var einn með „tvíbýlistjald“. Svona tjöld eru almennt í kring um fimmtíu kíló að eigin þyngd upp komið. Margir bílar koma með langbogum sem upp eru gefnir fyrir vissa þyngd og var það því óneitanlega vonbrigði að minn bíll er ekki gefin upp fyrir meiri þunga en 80 kg (maður fær ekki allt með kaupum á ódýrasta jepplingnum). Miðað við þá bíla sem ég sá á ferðalögum mínum í sumar með svona tjöld eru margir bílar sem virðast þola tjöld á toppinn, m.a. á Suzuki Vitara, Hummer, Land Rover, Nissan Patrol og einhverjum fleiri bílum.

Tjaldið sem ég var hrifnastur af heitir Columbus og kostar 377.000. Þetta tjald er með hörðum botni og þaki, en því eins og öllum öðrum tjöldum frá topptjald.is fylgir stigi til að komast upp á þak. Það er bara ein smella sem þarf að losa og þá ýtir maður bara tjaldinu upp, teygir sig í stigann. Inni í tjaldinu er svo ein stífa sem þarf að festa þá er tjaldið tilbúið til notkunar. Þessu tjaldi fylgir dýna eins og öðrum tjöldum frá Topptjaldi.

Hentar vel íslenskum aðstæðum

Að sögn Boga sölumanns hjá Topptjald.is hefur salan í sumar verið mun meiri en væntingar voru í byrjun árs og þeir sem hafa keypt tjöld þar eru almennt mjög ánægðir.

Spurður hverjir væru helst að kaupa svona tjöld sagði Bogi að almennt væri þetta mikið útivistafólk svo sem hestafólk, reiðhjólafólk og fleira Topptjald.is býður upp á sjö aðaltegundir topptjalda frá Autohome og eru ódýrustu tjöldin eru frá 276.000 krönur og þau dýrustu á 482.000. 

8 myndir:

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum
Fréttir 19. apríl 2024

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum

Opinn gámur, yfirfullur af dýrahræjum, stóð á dögunum á steyptu bílastæði við in...