Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Af dýralæknum og mjólkurframleiðslu
Lesendarýni 21. janúar 2015

Af dýralæknum og mjólkurframleiðslu

Höfundur: Brynjólfur Friðriksson, formaður Félags kúabænda í Austur-Húnavatnssýslu
Sæl verið þið, lesendur góðir. Ástæðan fyrir því að ég sé mig knúinn til að færa í letur hugrenningar mínar um málefni kúabænda og stöðu þeirra gagnvart dýralæknaþjónustu í hinum dreifðu byggðum, er sú staða sem við kúabændur höfum þurft að búa við undanfarin ár.  Þá er ég að tala um það regluverk sem í gildi er og við bændur sem í greininni störfum verðum að fara eftir.
 
Ég vil taka það fram að ég er ekki að setja út á hvernig eða hversu vel dýralæknar sinna sínu starfi, þeir þurfa líka að vinna samkvæmt þeim reglum sem í gildi eru.
 
Oft er það þannig að skjótt þarf að bregðast við ef gripur veikist og getur það skipt öllu máli að það sé mögulegt að hægt sé að hefja meðferð gripsins strax. Til þess þurfa bændur að hafa í lyfjaskápum sínum þau lyf sem nauðsynleg eru til að geta hafið meðferð. Því miður hafa dæmin sannað það að sú er ekki raunin.
 
Í mínum huga er staðan sú að við búum við kerfi ofstjórnunar og algjörs vantrausts af hálfu Matvælastofnunar, sem verður þess valdandi að við sem störfum við þessa búgrein og eigum  og viljum hafa velferð dýra á okkar búum sem besta höfum ekki tök á vegna þessa kerfis.
Því skora ég á Matvælastofnun að endurskoða vinnureglur þessar í samstarfi við kúabændur svo allir geti farið sáttir frá því borði.
 
Svo að allt öðru.
Við kúabændur stöndum frammi fyrir þeirri skemmtilegu og nýju stöðu að markaðurinn kallar á alla þá mjólk sem hægt er að framleiða í fjósum þessa lands.Nú eigum við að bregðast við kallinu og gera allt til þess sem hægt er til að fullnægja þörfinni. Bændur eru misvel í stakk búnir til að takast á við það verkefni.
Í raun þýðir þessi staða það að allir geta framleitt eins og þeir geta án nokkurra takmarkana, án tillits til greiðslumarks hvers býlis fyrir sig. Aftur á móti þýðir þessi staða líka það að þeir bændur sem nú þegar framleiða alla þá mjólk sem þeirra aðstaða leyfir verða fyrir beinni tekjuskerðingu, vegna þess að framleiðsluskylda hvers og eins er 100% fyrir árið 2015.
 
Það er að segja að A-hluti beingreiðslna er skertur í beinu hlutfalli við það sem vantar upp á að bóndinn framleiði upp í sitt greiðslumark.
 
Til viðbótar þessu kemur að eftir því sem greiðslumarkið eykst þá skerðast beingreiðslur á hvern lítra í hlutfalli við það.
 
Til þess að við bændur getum svarað kallinu og gert það sem þarf til þess, þarf að hækka afurðaverð til okkar umtalsvert. Það kostar að fara í dýrar framkvæmdir, sem varla er hægt að verja eins og staðan er í dag. Dæmið þarf nefnilega að ganga upp. 
 
Er ekki kominn tími á að sjá lánasjóð landbúnaðarins endurvakinn?
Óska öllum landsmönnum farsældar á árinu!
 
Kveðja úr Blöndudalnum.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...