Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Þarna má sjá Korpudal í Önundarfirði lengst til vinstri, þá Hestfjall, bæinn Hest og síðan Hestdal sunnan við hestfjallið.
Þarna má sjá Korpudal í Önundarfirði lengst til vinstri, þá Hestfjall, bæinn Hest og síðan Hestdal sunnan við hestfjallið.
Mynd / HKr.
Fréttir 21. maí 2015

Ær skilaði þrem lömbum eftir útigöngu í vetur

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Þegar Flateyringarnir Einar Guðbjartsson og Guðrún Pálsdóttir voru að vitja sumarbústaðar síns undir Hestfjalli innst í Önundarfirði síðastliðinn fimmtudag sáu þau þrjár kindur ofan við bústaðinn. Þótti þeim það óvenjulegt þar sem ekki var búið að hleypa fé út af neinum bæjum í grenndinni.
 
Einar sagði í samtali við Bændablaðið að hann hafi fyrst talið að um hrúta væri að ræða. En þar sem hann er alinn upp í Efri húsum í Önundarfirði og bjó síðan á Hesti, þá rann honum blóðið til skyldunnar að kanna þetta betur. Guðrún er ekki síður tengd sveitinni enda ólst hún upp á Ingjaldssandi til fermingaraldurs.
 
„Kindurnar voru mjög styggar og fyrst hélt ég að þetta væru hrútar frá Hóli. Svo fór ég að velta þessu fyrir mér og kíkti aftur á kindurnar tveim tímum seinna, þá sá ég að þar var ein nýborin þrem lömbum,“ sagði Einar. 
 
Tvær úr Dýrafirði og ein úr Álftafirði
 
Kom í ljós að féð hafði gengið úti í allan vetur. Var sú nýborna í eigu Karls Bjarnasonar í Neðri-Hjarðardal í Dýrafirði, og með henni var lamb frá því í fyrra. Þriðja kindin reyndist svo vera í  eigu Guðmundar Halldórssonar á Svarthamri við Álftafjörð.  
Karl Bjarnason sagði í samtali við Bændablaðið að þarna væri um að ræða fé sem ekki hafi skilað sér af fjalli í haust. Ljóst er að frjósemin hefur ekki verið slæm þeirri nýbornu og hraust er hún að lifa af harðan vestfirskan vetur og skila af sér þrem lömbum. 
 
Hefur slegið sér upp með hrúti frá Svarthamri
 
„Líklega hefur þessi nýborna verið frammi á Korpudalnum í haust og vetur og komist í kynni við hrút.“ Sagðist Karl vita að Guðmund á Svarthamri hafi vantað tvo hrúta sem ekki skiluðu sér af fjalli eftir síðasta sumar, en þeirra hefur samt ekki orðið vart. 
 
„Það er ekkert ósennilegt að þeir hafi verið að þvælast þarna í Önundarfirðinum.“ 
Karl sagðist  annars í samtali við Bændablaðið að hann væri með um 370 til 380 fjár. Sú nýborna væri fædd 2007 og hafi alltaf skilað þrem lömbum nema í fyrsta burði. Nærri 30 ær voru bornar í Neðri-Hjarðardal fyrir helgina og hefur sauðburður gengið vel. Þrátt fyrir að lofthitinn hafi ekki verið mikill það sem af er vori sagðist Karl hafa féð í hólfi utan dyra þar sem ærnar hafi borið. Sagði hann engin vanhöld hafa verið á lömbum.  
 
Ekkert sældarlíf að ganga úti í Korpudal í vetur
 
Það hefur ekki verið neitt sældarlíf hjá fénu að ganga úti í Korpudal í vetur. Sagði Karl þar enn vera allt á kafi í snjó og mun meiri snjór væri í Öndunarfirði en í Dýrafirði. Eitthvað hafi féð samt náð að éta, því það var bærilega haldið. Einar Guðbjartsson tók undir það og taldi líklegt að féð hafi hafst við í Korpudalnum norðan við Hestfjallið, en sunnan við fjallið er Hestdalur. Það hafi þó örugglega verið erfitt líf sökum snjóa og óveðurs. Sagði hann að þótt snjór væri að mestu horfinn af Flateyrinni, þá næði sólin ekki að bræða neitt að gagni vegna kulda.
 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...