Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Að meðaltali gott
Mynd / Bbl
Skoðun 31. maí 2019

Að meðaltali gott

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Ekki verður annað sagt en að vorið hafi verið flestum Íslendingum hagstætt hvað veðurfar áhrærir. Þótt við Íslendingar bölvum stundum rysjóttu veðurfari þá megum við aldrei gleyma því að við búum í gjöfulu og friðsömu landi og að mörgu leyti við betri aðstæður en flestar aðrar þjóðir. 
 
Veðurfarið ráðum við ekki við og munum aldrei geta stólað á að sumarið verði alltaf gott í öllum landshlutum. Samt erum við oft ansi fljót að gleyma. Síbreytileiki veðursins er nokkuð sem við verðum að laga okkur að þó ekki þyki það alltaf skemmtilegt. Það er samt þannig að þeir sem búa við mikinn stöðugleika í veðurfari á suðlægari slóðum geta líka orðið hundleiðir á lognmollunni og þá er gott að eiga land eins og Ísland þar sem þú veist aldrei af neinni vissu hvernig vindurinn blæs frá degi til dags. Þegar þetta fólk heimsækir Ísland er það ekki að leita eftir einhverju sólarstrandaveðri. 
 
Eftir mildan vetur þá voraði snemma þó nokkuð hafi kólnað um norðan- og austanvert landið á síðustu dögum. Það þarf þó ekkert að leita langt aftur til að finna dæmi um mjög óstöðugt veður í einhverjum landshluta í maí og byrjun sumars. Íbúar á suðvesturhorni landsins muna sjálfsagt enn eftir rigningunni í maí á síðasta ári sem stytti varla upp allt sumarið. Norðlendingar og Austfirðingar fögnuðu þá afbragðs góðu veðri sem hélst nær allt sumarið. 
 
Samkvæmt Veðurstofu Íslands var júní 2018 óvenju þungbúinn um landið sunnan- og vestanvert. Sólskinsstundir í Reykjavík höfðu ekki mælst eins fáar síðan árið 1914. Úrkoma var mikil í þessum landshlutum og veður fremur svalt. Á austanverðu landinu var aftur á móti hlýtt og sólríkt. Hiti fór þar margoft yfir 20 stig. Sunnan- og suðvestanáttir voru ríkjandi. 
 
Maí 2017 var líka óvenju hlýr og hiti vel yfir meðallagi. Sérlega hlýtt var fyrstu vikuna og aftur í kringum 21. maí. Víða var úrkoma samt í meira lagi og gróður tók vel við sér. Meðalhiti í Reykjavík í maí var 8,6 stig, og er það 2,3 stigum fyrir ofan meðallag áranna 1961 til 1990, en 1,7 stigum yfir meðallagi síðustu 10 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 8,4 stig, 3,0 stigum fyrir ofan meðallag áranna 1961 til 1990 og 2,3 stigum yfir meðallagi síðustu 10 ára. Á Hveravöllum var meðalhitinn 4,2 stig sem er hlýjasti maímánuður frá upphafi mælinga á þeim stað.
 
Þann 1. júní 2016 settu veðurfræðingar inn á vef Veðurstofu að tíðarfar hafi talist hagstætt. Þurrkur háði þó víða gróðri langt fram eftir mánuði. Í síðustu vikunni rigndi óvenjumikið á Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum. Hiti var ofan meðallags 1961 til 1990 en þó var að tiltölu kaldara um landið suðvestanvert heldur en í öðrum landshlutum. 
 
Meðalhiti í Reykjavík í júní 2016 var 6,6 stig, +0,3 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en -0,3 neðan meðallags síðustu tíu ára. Meðalhiti á Akureyri var 6,8 stig, 1,3 stig ofan meðaltals 1961 til 1990 og 0,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.
 
Þegar litið er um öxl og lengra aftur í tímann má finna ýmis dæmi um miklar öfgar í veðurfari. Þann 9. maí 2009 var t.d. greint frá aftakaveðri á Holtavörðuheiði með roki og hálku. Þá björguðu hjálparsveitir tugum farþega og ökumanna sem höfðu lent þar í vandræðum. 
 
Þann 1. maí 1948 snjóaði svo mjög sunnanlands að með fádæmum þótti. Þá mældist jafnfallinn snjór á Stórhöfða í Vestmannaeyjum 65 sentímetrar, sem er eitthvað sem gerist nær aldrei þó hávetur sé.    
Það er sem sagt aldrei á vísan að róa hvað veðurfar áhrærir. Við skulum því bara njóta blíðunnar þar sem hún gefst hverju sinni, annað er hvort sem er ekki í boði. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...