Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Finnbogi Magnússon segir að í Landbúnaðarklasanum gefist fyrirtækjum og einstaklingum tækifæri á að taka þátt í spennandi starfi og stuðla að nýsköpun og framþróun landbúnaðarins.
Finnbogi Magnússon segir að í Landbúnaðarklasanum gefist fyrirtækjum og einstaklingum tækifæri á að taka þátt í spennandi starfi og stuðla að nýsköpun og framþróun landbúnaðarins.
Mynd / TB
Fréttir 18. júní 2018

„Munum sjá mikla nýsköpun í landbúnaði á næstu árum“

Höfundur: TB
Ný stjórn Landbúnaðarklasans var kjörin á aðalfundi hans í síðasta mánuði. Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötunn Véla, tekur við formannshlutverkinu af Ara Edwald, forstjóra MS. Landbúnaðarklasinn var formlega stofnaður árið 2014 en markmið hans eru fyrst og síðast að tengja saman þá aðila sem vinna í landbúnaði og matvælaframleiðslu og stuðla að aukinni arðsemi og nýsköpun innan greinarinnar.
 
Starfsemi klasans fór hægt af stað en á síðustu misserum hafa hlutirnir komist á meiri hreyfingu. Gerður var samstarfssamningur við Sjávarklasann og Matarauð Íslands sem fólst meðal annars í aðstöðu fyrir frumkvöðla í húsnæði Sjávarklasans á Granda í Reykjavík. Fyrirtæki sem meðal annarra hafa notið góðs af því samstarfi eru Lava cheese, Pure Natura, Ljótu kartöflurnar og Gagnsjá ehf.

Ný stjórn Landbúnaðarklasans var kjörin á aðalfundi í maí. Frá vinstri: Þórir Haraldsson hjá Líflandi, Einar Gunnar Guðmundsson hjá Arion banka, Finnbogi Magnússon hjá Jötni Vélum, Oddný Anna Björnsdóttir ráðgjafi, Berglind Hilmarsdóttir, bóndi á Núpi 3, Tjörvi Bjarnason, Bændasamtökunum og Sunna Gunnars Marteinsdóttir hjá MS.
 
Áfram unnið að nýsköpun
 
Finnbogi Magnússon segist hafa miklar væntingar til nýrrar stjórnar Landbúnaðarklasans. Hann á von á því að áfram verði unnið að því að ýta undir nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í starfsemi klasans.  
 
„Persónulega er ég mjög spenntur fyrir starfinu því það er fátt skemmtilegra en að vinna með hugmyndaríku fólki og finna leiðir til að hjálpa frumkvöðlum til að þróa og þroska sínar hugmyndir þannig að úr verði arðsöm starfsemi,“ segir Finnbogi og bætir við að á síðasta starfsári hafi klasanum tekist að styðja við og aðstoða forvígismenn sjö áhugaverðra verkefna. „Það er gaman að segja frá því að eitt þeirra verkefna, Lava Cheese, er nú þegar komið í útrás til Svíþjóðar. Mín sýn er að á næstu árum munum við sjá mikla nýsköpun í landbúnaði þar sem áhersla verður lögð á að auka verðmæti bæði grunn- og hliðarafurða framleiðslunnar.“
 
Leysum krafta úr læðingi
 
Finnbogi segir að ferðamannastraumurinn til Íslands skapi gríðarleg tækifæri fyrir innlenda matvælaframleiðslu og þróun ýmiss konar sérvara.  
„Við höfum á undanförnum árum séð hvers konar grettistaki Sjávarútvegsklasinn hefur lyft fyrir sjávarútveginn og draumur okkar í stjórninni er að hjálpa til við að leysa úr læðingi svipaða orku innan landbúnaðarins,“ segir hann. 
 
Til sjávar og sveita
 
Það sem er fram undan hjá Landbúnaðarklasanum, að sögn Finnboga, er mótun starfseminnar og fjármögnun. Þá hefur Landbúnaðarklasanum verið boðið að taka þátt í viðskiptahraðli á vegum Icelandic Startup. 
 
„Við í stjórninni erum þessa dagana að vinna að því að tryggja klasanum aukið fjármagn þannig að við getum m.a. ráðist í gríðarlega spennandi verkefni í samstarfi við Icelandic Startup sem nefnist Til sjávar og sveita. Það gengur út á að leita uppi frumkvöðla með áhugaverðar hugmyndir á sviði nýsköpunar í landbúnaði og sjávarútvegi. Hugmyndin er að halda kynningarfundi um allt land í haust og áhugasamir aðilar senda í kjölfarið inn umsóknir. Tíu hugmyndir verða valdar til þátttöku í þessu verkefni og munu þeir aðilar fá handleiðslu sérfróðra aðila við þróun sinna hugmynda sem endar síðan með kynningu fyrir fjárfestum ef menn vilja.“
 
Starfið fjármagnað með árgjöldum
 
Finnbogi segir að bæði fyrirtæki og einstaklingar geti tekið þátt í starfsemi Landbúnaðarklasans. Klasastarfið er fjármagnað með árgjöldum sem eru sniðin að stærð fyrirtækja. Sem þátttakendur í Landbúnaðarklasanum gefst fyrirtækum tækifæri á að taka þátt í spennandi starfi og stuðla að nýsköpun og framþróun landbúnaðarins. 
 
„Efling og áframhaldandi uppbygging íslensks landbúnaðar er mikilvæg fyrir íslenska þjóð og með því að greiða árgjald klasans eru fyrirtæki og einstaklingar að leggja sitt lóð á vogarskálarnar og verða þannig óbeint þátttakendur í þeirri uppbyggingu,“ segir Finnbogi að lokum.
 
Áhugasamir um starfsemi Landbúnaðarklasans geta haft samband í netfangið landbunadarklasi@gmail.com og séð upplýsingar á vefsíðunni www.landbunadarklasinn.is


 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...