ÁST – ástarsaga sögð af kór
Kórinn VOX Rangárþing af Suðurlandi sýnir nýtt íslenskt kórverk, ÁST – ástarsaga sögð af kór, í Tjarnarbíói dagana 24. og 25. október næstkomandi þar sem raunverulegar og sannar sögur kórsins verða settar á svið.
VOX Rangárþing er ekki hefðbundinn kór, heldur frekar fjölmenningarlegur vettvangur skipaður söngvurum frá yfir 10 mismunandi löndum. Ekki er ætlast til þess að meðlimir hafi endilega reynslu af kórsöng eða sviðslistum til þess að komast inn í hópinn, en segir stjórnandinn, Arilíus Marselínuson, VOX snúast fremur um samfélagið í heild sinni.
„VOX snýst í raun um fólk sem kemur saman sem samfélag og lærir að segja sögur saman í gegnum tónlist, leikhús og tilfinningar. Þetta er staður til að vaxa, til að prófa, til að mistakast á öruggan hátt og til að uppgötva hluti um sjálfan sig sem þú vissir kannski ekki að væru til staðar. Annar mikilvægur þáttur í VOX var að skapa stað til að bjóða þá fjölmörgu útlendinga sem búa í Rangárþingi velkomna. Um 20% íbúanna hér koma erlendis frá og við vildum skapa tækifæri til að tengja fólk saman, þau eru hluti af því að móta það sem VOX er og stendur fyrir.“
Við vinnslu kórverksins ÁST voru meðlimir beðnir um að deila persónulegum sögum sem tengdust ákveðnu lagi og festa þannig söguna í tilfinningalegum veruleika. Má nærri geta að útkoman sé stórfengleg enda þegar raunveruleikinn blandast flutningi verða tilfinningarnar allsráðandi.
Að baki sýningunni stendur fjölþjóðlegt listateymi undir forystu Arilíusar, leikstjórn er í höndum hins ungverska Gábor Tengely, Sandra Rún Jónsdóttir er tónlistarráðgjafi og Harpa Rún Kristjánsdóttir listrænn stjórnandi verksins.
Miðasala er á tix.is en sýningar verða, eins og áður sagði, laugardaginn 24. október kl. 20 og svo aftur á sunnudeginum 25. október klukkan 14.
