Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Sara Jóna Emilía býr í Skagafirði en er fædd og uppalin í sveit í skosku hálöndunum. Hún gerir ýmislegt í frístundum sínum, eins og að synda út í Drangey, taka ljósmyndir og mála fallegar myndir úr sveitinni.
Sara Jóna Emilía býr í Skagafirði en er fædd og uppalin í sveit í skosku hálöndunum. Hún gerir ýmislegt í frístundum sínum, eins og að synda út í Drangey, taka ljósmyndir og mála fallegar myndir úr sveitinni.
Líf og starf 29. júní 2021

„Hjartað slær með landbúnaði og sveitinni“

Höfundur: Erla Hjördís Gunnarsdóttir

Sara Jóna Emilía býr í Skagafirði en er fædd og uppalin í sveit í skosku hálöndunum. Hún er náttúrubarn og ævintýra­mann­eskja af Guðs náð og alltaf með myndavélina við höndina en Sara hefur vakið athygli fyrir fallegar myndir sem hún málar af umhverfinu í Skagafirði þar sem íslensku húsdýrin koma jafnan við sögu.

„Ég kom hingað árið 2004 út af náttúrunni og jarðfræði, ég hafði aldrei séð jökla og eldfjöll, bara lesið um það í jarðfræði og dreymdi um að sjá það með eigin augum.

Ég hafði verið að vinna í Svíþjóð og var búin að ferðast um öll Norðurlöndin fyrir utan Ísland en draumurinn var að koma hingað til Íslands og sjá landið. Ég sótti um alls konar vinnu og fékk vinnu hjá Flúðasveppum á Flúðum. Ég ætlaði að vera hérna í þrjá mánuði í sumarvinnu og skoða landið en varð fljótlega ástfangin af landinu,“ segir Sara.

Sara fær margar hugmyndir að myndum sínum á hverjum degi en eitt sinn gaf hún vini sínum sem átti stórafmæli málverk af sveitabænum hans og í kjölfarið kom pöntun frá bróður hans. Myndin er af bænum Dæli í Skagafirði.

Eins og að ganga um í álfasögu

Það er óhætt að segja að Sara hafi lifað ævintýralegu lífi en áður en hún ferðaðist um Norðurlöndin og settist að á Íslandi bjó hún í 16 ár í Suður-Afríku þar sem hún lagði stund á nám við landbúnaðarskóla með áherslu á ræktun grænmetis og suðrænna ávaxta og segir hún þann tíma hafa verið góðan grunn fyrir ýmislegt í lífinu.

„Ég var að ferðast hringinn í kringum Ísland eitt sumarfríið og langaði að prófa eitthvað annað en að vera á Suðurlandinu. Mig langaði að vera þar sem væru falleg fjöll, náttúra og hestar og þá var mér bent á Skagafjörðinn. Ég kom hér einn brjálaðan veður­dag í mars á Sauðárkrók og fékk fljótlega vinnu í frystihúsinu í fjögur ár, síðan eru liðin 14 ár,“ segir Sara, sem er meðal annars búin að læra ferðamálafræði við Hólaskóla.

Sara er iðin við að mála myndir og lætur framleiða fyrir sig tæki­færiskort eftir myndum sínum sem hafa rokið út eins og heitar lummur. Margt af því sem hún málar tengist sveitinni og íslensku húsdýrunum.

„Hjartað slær með landbúnaði, sveitinni og náttúrunni. Það veitir svo mikinn innblástur. Ég hef alltaf verið listræn en ég byrjaði ekki fyrir alvöru að mála fyrr en ég kom í Skagafjörðinn. Það var eins og að ganga um í álfasögu að vera hérna.
Ég byrjaði að mála á striga og gefa í jólagjafir, því var vel tekið og ég hélt áfram. Síðan hefur þetta þróast og ég byrjaði að gera tækifæriskortin árið 2014.

„Hjartað slær með landbúnaði, sveitinni og náttúrunni. Það veitir svo mikinn innblástur. Ég hef alltaf verið listræn en ég byrjaði ekki fyrir alvöru að mála fyrr en ég kom í Skagafjörðinn. Það var eins og að ganga um í álfasögu að vera hérna. Ég byrjaði að mála á striga og gefa í jólagjafir, því var vel tekið og ég hélt áfram. Síðan hefur þetta þróast og ég byrjaði að gera tækifæriskortin árið 2014.“

Ég sel til vina og vandamanna en ég er líka félagi í listamanna­félaginu Sólon hér á Sauðárkróki þar sem er sýning einu sinni á ári og þar sel ég líka.

Ég byrjaði á kortunum því mig vantaði jólakort, ég fann bara einhverja fjöldaframleiðslu frá Kína en mér fannst vanta eitthvað íslenskt.

Ég byrjaði á að prenta eina hestamynd sem sló í gegn 2014 og árið eftir gerði ég átta myndir saman. Þetta byrjuðu sem jólakort eitt árið en síðan breyttist það fljótt því fólk notar þetta fyrir alls kyns tilefni, skírn, afmæli og við önnur tilefni. 

Sara elskar dýr og hefur oft tekið þátt í sauðburði hjá vinum sínum:
„Það er svo gaman að sjá hvernig dýrin haga sér og sjá karakter þeirra, ég er alltaf
með myndavélina með mér og reyni að fanga allt sem ég sé.“
Sjá má verk Söru á Facebook-síðu hennar jokulhrafnart.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 12. mars 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur að hugmynd sem hefur lengi kraumað innra með honum er eitthva...

Jón Geir tekinn inn í Konunglegu landbúnaðarakademíuna
Líf og starf 11. mars 2026

Jón Geir tekinn inn í Konunglegu landbúnaðarakademíuna

Það var ánægjuleg stund hjá Jóni Geir Péturssyni skógfræðingi nýlega þegar hann ...

Vísnahornið
Líf og starf 11. mars 2026

Vísnahornið

Nú hafa menn þraukað þorrann og óhætt mun að taka upp hjal á léttum nótum. Marga...

Ferðast til að halda lífi
Líf og starf 11. mars 2026

Ferðast til að halda lífi

Ég fylgdi félaga mínum síðustu skrefin um daginn. Strætó ferjaði hann langleiðin...

Alheimsvíðátta Jónasar
Líf og starf 11. mars 2026

Alheimsvíðátta Jónasar

Á rómantíska tímanum átti það jafnt við þegar horft var inn í huga sér og út í g...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. mars 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn mun glíma við einhverja óværð eða óværu jafnvel á næstunni. Honum er...

Listaverk úr íslensku byggi
Líf og starf 29. janúar 2026

Listaverk úr íslensku byggi

Listamaðurinn og hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead undirbýr sýningu í HAKK gallery...

Vetur í stofunni
Líf og starf 26. janúar 2026

Vetur í stofunni

Að ýmsu er að hyggja til að halda pottaplöntum heilbrigðum og fallegum yfir vetr...