Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Bjarnheiður Júlía Fossdal og Björn Torfason bændur hafa búið í fjörutíu ár á Melum á Árneshreppi. Mynd / VH
Bjarnheiður Júlía Fossdal og Björn Torfason bændur hafa búið í fjörutíu ár á Melum á Árneshreppi. Mynd / VH
Líf og starf 15. júlí 2016

Verðum hér meðan við getum

Höfundur: Vilmundur Hansen

Hjónin Bjarnheiður Júlía Fossdal og Björn Torfason hófu búskap nítján ára gömul og hafa búið á Melum í rúm fjörutíu ár. Þau segja að búskapurinn gangi vel og að þau uni hag sínum vel í Árneshreppi.

Björn og Badda eru með 450 kindur og hefur stærð búsins verið svipuð í nokkur ár. „Fjöldinn hentar okkur ágætlega á meðan börnin okkar koma og hjálpa okkur á álagstímum, um sauðburðinn og í leitir. Ef eitthvað er þurfum við að fækka við okkur eftir því sem aldurinn færist yfir.

Nýi búvörusamningurinn er sauðfjárbændum í Strandasýslu hreinlega fjandsamlegur og líklegur til að setja jarðir í eyði. Við vitum ekki um neinn bónda í Strandasýslu sem er sáttur við samninginn. Afnám beingreiðslna kemur sér mjög illa fyrir okkur. Við eru búin að fjárfesta í auknu greiðslumarki sem gerði ráð fyrir áframhaldandi beingreiðslu en þær verða lagðar niður verði samningurinn samþykktur og þá breytast allar forsendur í rekstrinum. Þannig að við verðum hér áfram á meðan við getum og krossum fingur í von um að samningarnir verið felldir á Alþingi.“

Vetrareinangrun sveitarinnar mikil

Bjarnheiður, eða Badda, segir að auðvitað sé kvíði í fólki í sveitinni yfir því að ungt fólk sé að flytja af þremur bæjum og talsverðar líkur á að skólanum verði lokað en við lifum í voninni um að hingað flytji fólk með börn.

„Auðvitað eru það margir þættir sem valda því að fólk flytur burt en ég er viss um að einangrun sveitarinnar hefur þar talsvert að segja. Það er alls ekki allra að búa við eins mikla einangrun og hér getur verið á veturna,“ segir Badda.

Björn bætir við að eflaust sé hægt að draga úr einangrun sveitarinnar með bættum samgöngum en að tíðarfarið ráði þar mestu yfir vetrarmánuðina. „Það er vel hægt að halda veginum hingað norður opnum lengur ef veturinn er snjóléttur en meira mál ef það snjóar mikið.

Reglur um snjómokstur ættu þó að vera mun sveigjanlegri en þær eru enda lifum við á tuttugustu og fyrstu öldinni.“

Fólki fjölgar á sumrin

Björn segir að íbúafjöldi í hreppnum sé árstíðabundinn. „Séu menn ekki bændur eða í þjónustu eru þeir sjaldnast hér allt árið. Fólk er hér yfir sumarið og nytjar þau hlunnindi sem það getur og býr annars staðar á veturna.

Hingað koma líka margir bátar, rúmlega tuttugu, sem stunda strandveiðar á sumrin en sjómennirnir fara heim til sín um helgar og í burtu þegar þeim lýkur. Fiskur er ekki lengur unninn í Norðurfirði og eftir að honum er landað er ekið með hann á markað.

Ferðaþjónustan er mest yfir sumarmánuðina, þrátt fyrir að ferðamannatímabilið sé alltaf að lengjast í báða enda og möguleikar til vetrarferða hér miklir. “

Íbúar með lögheimili í Árnes­hreppi eru rétt rúmlega 50 en þeim fer fækkandi og segir Badda að fylgifiskur fækkunarinnar sé óhjákvæmilega sá að erfiðara sé að halda uppi þjónustu, eins og verslun í sveitinni, og segir Björn að það sé verulegt áhyggjuefni.

Virkjun Hvalár

Badda segir að margir íbúar hreppsins byggi vonir við virkjun Hvalár í Ófeigsfirði sem gæti orðið góð innspýting í samfélagið. „Ef af virkjuninni verður kemur hingað fjöldi fólks, að minnsta kosti tímabundið, og það myndi styrkja verslunina og mannlífið. Til stendur að styrkja veginn héðan frá Melum yfir Eyrarháls og út í Ófeigsfjörð og myndi þá flutningur aðfanga fyrir virkjunina fara um höfnina á Norðurfirði.

Okkur skilst að tafir á framkvæmdinni stafi af því að ríkis­stjórnin sé ekki búin að gefa grænt ljós á byggingu tengipunkts í Ísafjarðardjúpi sem kæmi til með að flytja rafmagnið og tengja það að landsnetið.“ 

Skylt efni: Árneshreppur | Melar

TR trónir á toppnum
Líf og starf 4. nóvember 2026

TR trónir á toppnum

Taflfélagi Reykjavíkur gekk vel í þeim sveitakeppnum sem fram fóru síðustu helga...

Rosaleg blöð að norðan
Líf og starf 4. nóvember 2026

Rosaleg blöð að norðan

„Það væri afrek að komast í þrjú grönd.“ Þetta sagði Ragnar Hermannsson stórspi...

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts
Líf og starf 3. nóvember 2026

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts

Í skjóli þess að vera undir feldi í haustveðrunum má velta ýmsu fyrir sér. Til a...

Frumsýning á Kvennaráð
Líf og starf 3. nóvember 2026

Frumsýning á Kvennaráð

Leikfélag Eyrarbakka frumsýnir leikritið Kvennaráð eftir leikskáldið og rithöfun...

Herdís Kolka stendur vaktina
Líf og starf 3. nóvember 2026

Herdís Kolka stendur vaktina

Ein er sú búð á landi hér sem er flestum búðum smærri, það er Djúpavíkurbúðin í ...

Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku: Er af grjót...

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...