Útspil fyrir lengra komna
Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er haldið er skynsamlegt að horfa ekki á stöðumyndina.
Þú átt T3 í spaða, G7 í hjarta, ÁT97 í tígli og ÁDT76 í laufi.
Þú ert í suður, vestur gefur, allir á hættu. Eftir tvö pöss opnar andstæðingur þér á hægri hönd á spaða, þú skýtur inn tveimur laufum með hálfum huga. Andstæðingur á vinstri hönd segir tvo spaða, makker þinn í norður doblar til að sýna ósagða liti, rauðu sortirnar. Austur passar, þú meldar þrjá tígla, pass, pass og þrír spaðar, þar lýkur sögnum.
Þá er að velja útspilið.
Hefurðu komist að niðurstöðu? (Nú er rétti tíminn til að kíkja á stöðumynd).
Þar sem stórspilarinn Ragnar Magnússon sat í norður þegar spilið kom upp í sumarbridge, reyndu nokkrir að sækja sér stungu í hjarta og spiluðu gosanum út. Vonandi ertu ekki í þeim hópi! Er kannski orðið tímabært að lögsækja briddskennarana sem kenndu nýliðum á öldinni sem leið að með tvíspil í trompsamningi væri oftast best að reyna að sækja sér stungu?
Ætli þú hafir ekki fremur valið tígulás? Eða tromp? Þú lagðir vonandi ekki niður laufásinn – var það nokkuð?
Við borð Ragnars kom út spaðatía sem Ragnar var fljótur að dúkka fimlega. Sagnhafi drap heima og hugsaði framhaldið. Hann vissi ekki eftir sagnir hvort tígulásinn væri réttur. Datt í hug leið til að reyna að stela slag, reyna að kasta tíguleinspilinu í hjarta ef vörnin svæfi áður en hann tæki trompin. Hann spilaði því hjarta að heiman. Ragnar drap og skipti snarlega yfir í tvíspilið í laufi. Drottning, ás og suður spilaði laufi í þriðja sinn, enda höfðu sagnir upplúst alla skiptingu. Sagnhafi reyndi að stinga upp trompdrottningu en Ragnar drap með kóngi. Og tígulásinn enn eftir. Mínus einn og gulltoppur til Ragnars.
Þegar suður færði í orð að hann hefði farið í nokkra hringi í huganum er kom að útspili benti Ragnar glettnislega á að eitt útspil hefði nær örugglega tryggt vörninni fimm slagi. Lítill tígull frá ásnum fjórða!
Veltirðu því nokkuð fyrir þér?!
Umsjón: Björn Þorláksson,
bjornthorlaksson[hjá]gmail.com
