Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Aðalsteinn Jörgensen, heimsmeistari 1991, enn í fullu fjöri sem einn besti spilari Íslendinga. Þeir Birkir Jón Jónsson eiga spennandi verkefni fram undan ásamt landsliðsfélögum í Riga.
Aðalsteinn Jörgensen, heimsmeistari 1991, enn í fullu fjöri sem einn besti spilari Íslendinga. Þeir Birkir Jón Jónsson eiga spennandi verkefni fram undan ásamt landsliðsfélögum í Riga.
Líf og starf 23. júní 2026

Töframenn á leið til Riga!

Höfundur: Björn Þorláksson

Það styttist í Evrópumótið í Riga.

Ísland tekur þátt í opnum flokki sem og í kvennaflokki. Í opna flokknum hefur nokkru verið kostað til að auka líkur á árangri. Má þar nefna landsleiki við ýmsar þjóðir, úr einni slíkri viðureign er spil dagsins:

Vestur gefur; allir á hættu

Þeir Aðalsteinn Jörgensen og Birkir Jón Jónsson voru funheitir í sögnum í spili fjögur, fyrstu lotu í landsleik gegn Hollendingum um miðjan maí. Hollenska parið í NS varðist gegn 3 spöðum og uppskar 100-kall en Íslendingarnir vildu meira. 

Eftir opnun vesturs á hjarta og spaðasögn austurs meldaði Birkir Jón tvo tígla. Vestur svaraði makker með 2ja spaða sögn og nú er ekki alveg sjálfgefið að komast í geim með spil NS. En Birkir Jón úttektardoblaði 2 spaða til að sýna hámarkshendi fyrir innákomunni, sennilega 17 plús og þá fannst Aðalsteini (sem ekki er vanur að missa geim), sem að hann ætti vel fyrir stökki, þótt hápunktar hans væru aðeins 7 talsins. Einspilið í spaða algjört gull og Birkir Jón gerði vel í að lyfta í 5 lauf, 600 kall og 11 impar.

Þess má geta að Ísland vann leikinn gegn Hollandi, maraþonviðureign, sem lofar góðu fyrir framhaldið.

Brigesamband Íslands sendir einnig út kvennalandslið til Riga og þá fara á eigin vegum heldri spilarar. Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, segir að þáttur Einars Guðjohnsen sé stór í undirbúningi. Jón Hersir Elíasson, landsliðseinvaldur í opnum flokki, sagðist þokkalega bjartsýnn í viðtali á dögunum um að Ísland gæti náð góðum árangri.

Vonandi fylgja töfrar okkar fólki á leiðinni til Riga! 

Umsjón: Björn Þorláksson, bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku: Er af grjót...

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...