Vísnahornið
Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku:
Er af grjóti ofgnótt
urt þó fegri svörð,
þú ert hörð og hornótt
háttvirt fósturjörð.
Pétur Stefánsson yrkir þessa stöku, en efast um að hún dugi til að fara í gegnum Gullna hliðið:
Nú er ég kominn nafni minn
nokkuð af syndum kvalinn.
Hleyptu mér nú aumum inn,
inn í himnasalinn.
Óhætt er að segja að Jón Gnarr veki stöðugt athygli með sínum uppátækjum, snillingurinn Jón Jens gerir atburðum skil að hætti Davíðs:
Er Viðreisn tók að jafna um Jón
fannst Jóni komið nóg
af þrásetu í þingflokknum
og þaðan burt sig dró.
Því allmargt hafði orðið þar
til ama og jafnvel tjóns
og ekki þýddist Þorgerður,
við þrautasögu Jóns,
hann oft um áheyrn bað
samt afréð kerling það,
að hunsa flest þau hugðarmál
og hreyfast ekki úr stað.
Margt hefur verið ort um presta í gegnum tíðina og margir prestar hafa verið hagmæltir. Margrét Jónsdóttir, skáldkona í Reykjavík, orti þessa vísu undir messu:
Æ, hættu nú prestur að prédika'um synd
á postuladyggðum að klifa.
En farðu'út á strætin sem fyrirmynd
og fólkinu kenndu að lifa.
Í vísnabók Káins má finna þessa vísu:
K. N. prestur enginn er -
og engum meiri hann er
verstur sjálfum sér -
og svo eru fleiri.
Séra Sigurður Norland, prestur í Hindisvík, var kunnur á sinni tíð, gerir svona grein fyrir hrossaeign:
100 á ég hrossin góð
hér við 40.
Finnst nú varla fegra stóð
'49.
Um kirkjustaðinn Tjörn á Vatnsnesi yrkir presturinn þennan spádóm:
Bráðum sneiðist byggðin hér
borgin seiðir marga.
Tjörn í eyði eflaust fer.
Engin leið til bjarga.
Þessi vísa Sigurðar þarfnast ekki neinna skýringa:
Útlaganna óðal sést
enn hjá fannatindum.
Sekra manna býli best
byggt í Hvannalindum.
Séra Ögmundur Sívertsen þjónaði líka Tjörn á Vatnsnesi, hann orti:
Það er það sem að mér er
ég óspart skilding farga.
Herrann vissi hentast mér
að hafa þá ekki marga.
Ögmundur orti líka þessar og kallaði eftirmæli ársins 1840:
Margir hlupu hátt af stað
hugðust sleikja rjóma
prestur á Tjörn sér brúðar bað
en bölvun fékk hann tóma.
Það sem helst honum þótti að
að þessi ei veittist píka
of fátækur í allan stað
og óágengur líka.
Séra Ögmundi gekk illa að ná sér í konu og var 43 ár þegar það tókst:
Prestinum illa giftast gekk,
gigtar flengdur hrísi,
uns um síðir Ólöfu fékk
fyrir átta merkur af lýsi.
Og klerkur orti þegar konan kom:
Komin Ólöf er að Tjörn,
ein frá Þorkelshóli.
Á hennar malar kærleikskvörn
kargur hempudóli.
Umsjón: Magnús Halldórsson
mhalldorsson0610[hjá]gmail.com
