Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Á milli steinsteyptra háhýsa Stokkhólmsborgar má sjá viðkunnanlegt 13 hæða timburmannvirki í þröngu húsasundi.
Á milli steinsteyptra háhýsa Stokkhólmsborgar má sjá viðkunnanlegt 13 hæða timburmannvirki í þröngu húsasundi.
Mynd / HGS
Líf og starf 16. september 2022

Þrettán hæða timburhús yfir hraðbraut

Höfundur: Hlynur Gauti Sigurðsson, sérfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands.

Í Svíþjóð vaxa tré. Þau tré vaxa upp til himins og gildna eftir því sem þau eldast. Frá alda öðli um veröld alla byggðu menn hús úr timbri enda er timbur sennilega besta náttúrulega byggingarefnið.

Vissulega fer það eftir aðstæðum og stundum hentar betur að byggja hús úr hálmi. Önnur byggingarefni hafa sína kosti svo sem sement og stál. Einn áberandi kostur hörðu efnanna, stáls og steypu, er að þau brenna illa. Þau eru sterk en eðlislega mjög þung. Stærstu mannvirki heimskringlunnar eru yfirleitt úr þessum hörðu efnum.

Barnaspítali Karolínska háskólasjúkrahússins til vinstri og Ceder-hús í húsasundinu til hægri.

Nú virðast vera breyttir tímar. Ákall nútímans eftir náttúruvænna byggingarefni hefur skilað sér í betri kostum. Í víðfeðmu samstarfi háskóla og iðnaðarins hefur Linné háskólinn í Vaxjö (Lnu) verið leiðandi í þróunarvinnu á krosslímdum timbureiningum (Cross-laminated timber (CLT)). Það er vart hægt að bera það fyllilega saman við almennt þekkt byggingarefni á borð við krossvið og límtré þó svo í grunninn sé krosslímt timbur nokkurs konar samblanda af hvoru tveggja.

Framleiðsla á krossviðarplötum fer þannig fram að trjábol er flett í þunn lög, líkt og eldhúspappír utan af rúllu. Þessi þunnu lög eru límd saman og raðað þannig að viðartrefjarnar skarast þvert á þær sem eru fyrir ofan og neðan. Framleiðsla á límtré krefst ögn meiri vandvirkni. Sérhver límtrésbiti er samansettur af nokkrum viðarstrengjum þar sem viðartrefjarnar liggja samsíða þeim sem eru fyrir ofan og neðan. Hver strengur er saumaður saman af sérvöldum viðarbútum. Límtré getur borið mikla þyngd. Eitt fyrsta stóra límtrésmannvirki Svía var aðallestastöðin í Stokkhólmi sem var formlega opnuð 18. júlí 1871. Síðan þá ruddi límtréstæknin sér til rúms víða um heim. Krosslímt timbur (CLT) er blanda af krossviði og límtré; viðurinn er sérvalinn og nokkuð þykkur eins og í límtré, en límdur saman eins og plöntur þar sem viðartrefjarnar ganga þvert á þá næstu, líkt og krossviður.

Aðallestastöðin í Stokkhólmi var byggð 1871 og er burður þaksins límtré.

Í Stokkhólmi er verið að byggja fjögur há timburhús. Húsin ganga undir nafninu „Cederhusen“ enda áberandi blær sítrusviðar yfir húsunum. Undirritaður var í Stokkhólmi nýverið og að undirlagi Lars Blomqvist, doktors við Linné háskóla, var ákveðið að líta við og skoða þessi glæsilegu timburmannvirki í byggingu, sem eru í sama hverfi og Karolínska háskólasjúkrahúsið.

Viðarskífurnar eru glæsilegar á húsinu. Aldagömul aðferð við að klæða hús sem stenst allar kröfur nútímabygginga.

Þessi hús eru stórmerkileg fyrir margra hluta sakir. Fyrir það fyrsta er viðkunnanlegt útlitið. Klæðningin er úr viðarskífum. Allt í kring eru steinsteypt hús, ýmist gömul en mörg ný með nýmóðins arkitektúr. Cederhúsin koma svolítið eins og skrattinn úr sauðarleggnum fyrir það eitt að vera úr timbri. Húsin verða átta til þrettán hæðir þegar þau verða tilbúin í lok árs 2023. Fyrstu tvö húsin eru risin og þegar þetta er skrifað standa yfir flutningar og lokafrágangur í síðara húsinu. Íbúar í fyrsta húsið fluttu inn um áramótin síðustu. Húsin standast allar ströngustu kröfur um eldvarnir og burð, líkt og húsin í kring. Þar er fyrir að þakka krosslímdu timbri (CLT) en burður hússins er úr því. Grunnur hússins er úr steinsteypu.

Regnvatnið af þökunum rennur í beð þar sem plöntur njóta sín.

Ástæðan fyrir staðsetningu Ceder-húsanna er samt ekki endilega tilbreyting við steyptu húsin í nágrenninu. Eiginleikar timbursins fram yfir stál og steypu er m.a. þyngdin. Undir húsunum fjórum er nefnilega bílaumferð um E4 hraðbrautina. Létt nútímaleg timburhús, nokkuð miðsvæðis í Stokkhólmi, var því engin tilviljun.

Þegar undirritaður spurði íbúa út í eiginleika hússins þá sögðu þeir að þeim liði vel í þeim. Þau höfðu engan veginn á tilfinningunni að þau byggju í ótryggu tréhúsi sem sveiflaðist eftir veðri og vindum. Húsin eru sterk og stöndug líkt og steinhús. Útsýnið var yfirleitt gott og stutt var í næsta almenningsgarð.

Íbúðirnar voru af öllum stærðum og gerðum. Í fyrstu þótti íbúunum skrítið að þeir byggju ofan á hraðbraut, en það er ekkert tiltökumál lengur. Það er víðar en í Stokkhólmi sem verið er að byggja háhýsi úr tré.

Hús af öllum stærðum eru í bígerð um alla Skandinavíu, Ameríku og Asíu. Það virðist orðið eftirsóknarvert að búa í tréhúsum sem teygja sig upp til himins.

Skylt efni: timburhús | ceder-hús

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 12. mars 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur að hugmynd sem hefur lengi kraumað innra með honum er eitthva...

Jón Geir tekinn inn í Konunglegu landbúnaðarakademíuna
Líf og starf 11. mars 2026

Jón Geir tekinn inn í Konunglegu landbúnaðarakademíuna

Það var ánægjuleg stund hjá Jóni Geir Péturssyni skógfræðingi nýlega þegar hann ...

Vísnahornið
Líf og starf 11. mars 2026

Vísnahornið

Nú hafa menn þraukað þorrann og óhætt mun að taka upp hjal á léttum nótum. Marga...

Ferðast til að halda lífi
Líf og starf 11. mars 2026

Ferðast til að halda lífi

Ég fylgdi félaga mínum síðustu skrefin um daginn. Strætó ferjaði hann langleiðin...

Alheimsvíðátta Jónasar
Líf og starf 11. mars 2026

Alheimsvíðátta Jónasar

Á rómantíska tímanum átti það jafnt við þegar horft var inn í huga sér og út í g...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. mars 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn mun glíma við einhverja óværð eða óværu jafnvel á næstunni. Honum er...

Listaverk úr íslensku byggi
Líf og starf 29. janúar 2026

Listaverk úr íslensku byggi

Listamaðurinn og hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead undirbýr sýningu í HAKK gallery...

Vetur í stofunni
Líf og starf 26. janúar 2026

Vetur í stofunni

Að ýmsu er að hyggja til að halda pottaplöntum heilbrigðum og fallegum yfir vetr...