Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Greinarhöfundur kannast hér við Jóhann Hjartarson, til vinstri. Frá útiskákmóti á Lækjartorgi, 1983. Lesendur þekkja kannski fleiri.
Greinarhöfundur kannast hér við Jóhann Hjartarson, til vinstri. Frá útiskákmóti á Lækjartorgi, 1983. Lesendur þekkja kannski fleiri.
Mynd / Úr safni Taflfélags Reykjavíkur.
Líf og starf 12. ágúst 2026

Teflt utanhúss

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Í gamla daga var helsta firmamót Taflfélags Reykjavíkur haldið utanhúss, yfirleitt á Lækjartorgi. Keppendur skelltu sér í stóra svuntu, þar sem nafn fyrirtækisins og merki þess var framan á svuntunni. Þetta er aðeins lágstemmdara í dag, þar sem menn smella smá nælu á sig, merkta fyrirtækinu. Í seinni tíð hefur stundum verið teflt á Lækjartorgi, en um tíma hélt Skákakademía Reykjavíkur viðburði þar í tengingu við 17. júní og menningarnótt, einnig á Vitatorgi. Maður hefði ætlað að mótum af þessu tagi myndi fjölga, en með hverju árinu eykst skjól í borgarlandinu með meiri gróðri.

Það getur þó verið snúið að skipuleggja mót sem þessi, því veðurguðirnir þurfa helst að samþykkja mótahaldið. Nú er Borgarskákmótið haldið í sjálfu Ráðhúsinu, í kringum afmæli borgarinnar, og hefur það tekist nokkuð vel. Stundum er einfaldlega tekin ákvörðun á staðnum, eins og í Viðey, hvort hægt sé að tefla að einhverju leyti úti. Teflt er í Viðeyjarstofu á hverju sumri, og ef veðrið er einstaklega gott, þá er borðum líka skellt á stéttina fyrir utan. Í fyrra var hins vegar teflt í mikilli þoku. Þess má geta að mótið í ár verður sunnudaginn 19. júlí næstkomandi, hægt er að lesa meira um það á taflfelag.is.

Taflfélag Reykjavíkur heldur þrjú skákmót yfir sumarið í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg, ásamt Viðeyjar- og Borgarskákmótinu er einnig haldið mót á Árbæjarsafni. Það verður í ár þann 30. ágúst. Ég minnist þess ekki að teflt hafi verið utanhúss í Árbænum heldur alltaf í Kornhúsinu svokallaða. Þó var á tímabili haldin lifandi útiskák á safninu þar sem menn klæddu sig upp sem taflmenn og léku listir sínar!

Einnig hélt Miðbæjarskák um nokkurra ára skeið skákmót á bökkum Laugardalslaugar sem vakti alltaf þónokkra athygli sundlaugargesta. Með þessum pistli vil ég hvetja uppátækjasama skákáhugamenn sem vilja halda skemmtileg sumarmót, að einfaldlega láta á það reyna. Sjálfur sótti ég sumarnámskeið Skákakademíunnar fyrir 15 árum eða svo, og reglulega voru haldin mót í kringum þessi námskeið, bæði innandyra og utan. Þetta er líka hin ágætasta leið að gera skákina sýnilega almenningi og miklu máli skiptir að hafa nokkur taflborð laus fyrir frjálsa taflmennsku, burt séð frá því móti sem er haldið!

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband. 

Umsjón: Gauti Páll Jónsson,

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Lausn á myndagátu í 18. tölublaði
Líf og starf 12. október 2026

Lausn á myndagátu í 18. tölublaði

Í loftmyndagetrauninni í 18. tölublaði voru lesendur beðnir um að bera kennsl á ...

Lausn á vísnagátunni úr 18. tölublaði
Líf og starf 12. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 18. tölublaði

Hér birtist lausnarorðið við vísnagátunni úr 18. tölublaði Bændablaðsins. Gátan ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Hugrekki persónulegrar tjáningar
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unni...