Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. maí 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn: Næstu dagar færa óvænta krafta og hugmyndir sem geta breytt þeim framtíðar- áætlunum sem áður voru settar í stein. Ein einasta góð hugmynd getur nefnilega opnað á nýja og spennandi möguleika, auk þess sem samtöl við fólk leiða af sér óvænt tengsl. Í ástinni er heiðarleiki mikilvægastur, sem og hógværð. Happatölur: 8, 15, 22.

Fiskurinn stendur sjálfan sig að því að þurfa að endurmeta hvað raunverulega skiptir máli í lífinu og það fyllir hann nýjum eldmóði. Næstu dagar bjóða upp á óvænt tækifæri sem honum er ráðlagt að grípa og sýna hvað í honum býr. Ástarlífið kallar á opna tjáningu og heiðarleika. Það margborgar sig og mun létta þann áhyggjubunka sem plagar fiskinn um þessar mundir. Happatölur: 4, 11, 19.

Hrúturinn er tilbúinn í ævintýri eins og hans er von og vísa með vorinu og honum ráðlagt að segja já við „spontant“ uppákomum. Brátt kemur tækifæri sem krefst þess að hrúturinn líti inn á við og velji sjálfan sig. Þar verður hann að fylgja sínum stærstu draumum úr garði ef eitthvað á að breytast. Beinskeytni og einlægni munu skila mestum árangri. Happatölur: 7, 21, 33.

Nautið finnur fyrir auknum stöðugleika og jarðtengingu á næstunni. Sköpunarkrafturinn blómstrar og nautið ætti að láta eftir sér að endurskipuleggja heimilið eftir eigin höfði. Í ástarmálum ríkir djúpur skilningur og þægileg nærvera einhvers mun koma nautinu skemmtilega á óvart. Einhverjir erfiðleikar koma upp en hverfa jafn snögglega og þeir birtast. Happatölur: 14, 5, 82.

Tvíburinn þarf að grisja félagsnetið sitt svolítið, en á næstu vikum verða samskipti í brennidepli. Framtíðaráform skýrast og peningamálin taka óvænta stefnu til hins betra ef stokkið er á þau tækifæri sem birtast. Ástin krefst hreinskilni enn og aftur, góð æfing fyrir tvíburann sem annars er farinn að standa sig vel í þeim efnum, auk þess sem náinn félagi mun þurfa á ástarráðgjöf tvíburans að halda. Happatölur: 11, 29, 7.

Krabbinn finnur fyrir hvernig fjárhagslegar áhyggjur víkja fyrir nýjum lausnum og skipulagi, flutningar og hvers kyns breyting til hins góða. Í ástarmálum er tími til að hleypa nýjum neista í nýja tilveru, njóta þess að elska sjálfan sig framar öllum. Reyndar er vert að minnast á að öll vellíðan liggur í heimili og nánasta umhverfi. Happatölur: 2, 48, 90.

Ljónið stígur nú inn í vorið með nýtt hugarfar. Það þarf að taka því rólega um stundarsakir og vera viss um að hvert skref sé því í hag, bæði andlega sem og líkamlega, enda almenn vellíðan og nýtt viðmót eitthvað til að hafa í sjónmáli. Hver dagur er dagur í átt að þeim veruleika sem ljónið skal nú skapa sér og gleyma ekki máltækinu góða; kemst þótt hægt fari. Happatölur: 55, 18, 6.

Meyjan þarf að einbeita sér að smáatriðum til að ná markmiðum sínum. Skipulag í peningamálum skilar sér margfalt og óvæntir tekjustofnar gætu opnast á næstu vikum. Í ástarmálum ríkir ró en mikilvægt er að rækta fjölskylduböndin af alúð því eins og meyjan veit er kærleikurinn aflið sem knýr lífið áfram. Happatölur: 21, 34, 77.

Vogin má hafa það í huga að hún mun uppskera líkt og hún sáir og þó mikil vinna sé fram undan er víst að uppskeran verði rík. Ástin er í góðu jafnvægi þar sem bæði eining og samheldni ríkir, en vogin má þó ekki gleyma að setja sjálfa sig í fyrsta sæti og hugsa vel um sig ... því það hefur líka áhrif á hennar nánustu. Happatölur: 12, 66, 3.

Sporðdrekinn tekst á við krefjandi en gefandi verkefni sem reyna á úthald hans. Já, nefnilega fleiri en eitt. Peningamál krefjast einbeitingar og skynsemi fremur en áhættu en á meðan allt er í ólgandi sjó eru þó ástarmálin á góðum stað. Þar dýpkast tengslin enn fremur sem sýnir sig þegar þarf á að halda. Happatölur: 8, 41, 59.

Bogmaðurinn má eiga von á óvæntum ferðalögum sem tengjast atvinnu. Velgengni er í kortunum fyrir þá sem eru tilbúnir að takast á við ævintýraþrá og löngun til að víkka sjóndeildarhringinn, en þurfa þó að taka fjölskyldumál inn í dæmið. Einhver nákominn kallar á meiri nærværu. Happatölur: 9, 25, 88.

Steingeitin vinnur markvisst að markmiðum sínum og að allar fjárfestingar lofa góðu. Stigvaxandi lukka fylgir aga og trúmennsku en þó skal ekki halda öllum leyndarmálum undir teppinu því einhver þeirra fá lausn erfiðis ef þeim er deilt. Að hika er sama og tapa. Happatölur: 70, 13, 4.

Skylt efni: stjörnuspá

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...

Fjögur sunnudagsskákmót
Líf og starf 23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn var mögulega einhvers konar skákmet slegið. G...

Græðgin er óseðjandi púki
Líf og starf 23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Veðrið var gott og sumarið enn ekki búið. Sviðið er sumarbridds í Síðumúlanum. M...

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
Líf og starf 22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Páll Halldór Benediktsson, bóndi á Hákonarstöðum á Efri-jökuldal, á stórt safn f...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 21. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan tekur nú fyrstu skref sín full sjálfstrausts inn í nýtt tímabil. Hún má t...

Vísnahornið
Líf og starf 21. september 2026

Vísnahornið

Um allt land eru göngur og réttir, Philip Vogler, hefur lengi hjálpað til við sm...

Heimsókn úr öðrum heimi
Líf og starf 21. september 2026

Heimsókn úr öðrum heimi

Hann klæddi sig og fór að öllu hljóðlega enda enn mið nótt. Þau höfðu ekki orðið...

Með smjörkveðju!
Líf og starf 20. september 2026

Með smjörkveðju!

Saga smjörs sem slík hefur hér áður verið rakin á handahlaupum, en ekki allir vi...

Fjögur sunnudagsskákmót
23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Græðgin er óseðjandi púki
23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

Spurningar um vernd og vind
24. september 2026

Spurningar um vernd og vind

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f