Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 5. maí 2025

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn má eiga von á spennandi dögum fram undan þegar kemur að málum hjartans. Þeir sem eru í sambandi eru nú meira samstiga en nokkru sinni fyrr en þurfa að hlusta aðeins betur á hvort annað. Einhleypir gætu kynnst einhverjum sem kveikir í þeim en einungis ef þeir eru opnir fyrir nýjum möguleikum. Happatölur 5, 13, 52.

Fiskarnir þurfa að gæta þess að halda um taumana þegar kemur að fjárhagnum en ekki láta tilfinningarnar stjórna eyðslunni. Fiskarnir ættu að velta fyrir sér nýjum leiðum til aukinna tekna og taka inn í dæmið það sem þeir hafa fram að færa með raunsæi að leiðarljósi. Happatölur 22, 17, 66.

Orka hrútsins er í hámarki og hann er nokkuð viss um að vera tilbúinn til að taka af skarið á ýmsum vígstöðvum. Ný verkefni eða ábyrgð blasa við þar sem hrúturinn ætti að virkja leiðtogahæfileika sína. Hann veldur mun meiru en hann heldur og sérstaklega ef hann hugar að smáatriðunum – þau skipta máli næstu daga. Happatölur 11, 13, 32.

Nautið þarf að sýna þolinmæði því þrátt fyrir allt er ástarlífið á réttri leið. Þau naut sem eru í sambandi ættu að sýna maka sínum nærgætni og gæta jafnvægis á öllum vígstöðvum. Einhleypir gætu fundið áhugaverða tengingu, en ef vel á að fara þarf fullkomið traust að ríkja. Happatölur 66, 46, 14.

Tvíburinn finnur að eftir nokkurt álag er heilsan að skríða í jafnvægi, en með það í huga er gott að huga að algjörri hvíld og endurheimt. Einhverjir tvíburar þurfa að taka mataræðið í gegn og aðrir verða að vara sig á sjúkdómum tengdum mat. Ef til vill væri ráð að kanna blóðflokkafæðið sem þótti hvað mest móðins á níunda aratugnum. Happatölur 2, 13, 14.

Krabbinn mun upplifa nú á fyrstu vikum sumars að eitthvað kviknar í tilfinningamálunum. Einhleypir krabbar ættu að hugsa 2-3 ár aftur í tímann og muna hver kitlaði huga þeirra á þeim tíma. Hafa svo samband. Heilt yfir þarf krabbinn að vera óhræddur við dýpri tengingar því það gerir manni svo gott. Happatölur 12, 55, 64.

Ferill ljónsins er að taka nýja stefnu þar sem það getur náð langt með ástríðu og hugrekki. Nú er tími nýrra áskorana þar sem leiðtogahæfileikar ljónsins nýtast vel. Það þarf þó að hafa opinn huga og tilbúið til að taka á móti nýjum hugmyndum sem hjálpa því að vaxa. Framtíðin er björt ef hugurinn er opinn fyrir staðfestu og víðsýni. Happatölur 30, 31, 7.

Ástin fær meyjuna til að hugsa djúpt og íhuga næstu skref. Fyrir þær meyjur sem eru í sambandi og hafa hug á að taka næstu skref, er þetta góður tími til að ýta undir frekari tengingar og bæta samskiptin. Einhleypir munu hnjóta um manneskju sem færir þeim gæfu og opnar huga þeirra, en ættu að vera þolinmóðir og leyfa hlutunum að þróast á náttúrulegan hátt. Happatölur 2, 11, 21.

Vogin gengur nú inn í tímabil þar sem henni gefst kjörið tækifæri til að skoða eigin lífsgildi og áhugamál. Með því að leggja áherslu á persónulegan vöxt getur hún náð nýjum hæðum og ætti að taka sér tíma til að hugsa um framtíðina og hvernig hún getur orðið besta útgáfan af sjálfri sér.

Sporðdrekinn þarf að hafa varann á sér hvað varðar allar fjárfestingar. Nokkur áhætta er á tapi á einn hátt eða annan en að sama skapi réttur tími til að leita að nýjum fjárhagslegum tækifærum. Sporðdrekinn þarf að ganga úr skugga um og meta allar áhættur áður en hann tekur ákvarðanir, bæði stórar eða smáar. Happatölur 17, 49, 15.

Ástir bogmannsins eru aldeilis á uppleið en nú opnast flóðgátt nýrra tækifæra eða möguleikar á styrkingu núverandi sambands. Þeir bogmenn sem eru í sambandi ættu að opna fyrir erfið samtöl með nærgætni. Hjá þeim sem eru óbundnir virðist sem þeir hafi aldrei verið vinsælli. Í báðum tilvikum skal fara varlega en djarflega. Happatölur 26, 6, 79.

Steingeitin þarf að taka á honum stóra sínum og nýta þann styrk sem hún býr yfir ef hún ætlar að breyta því sem plagar hana. Einhverjir hnökrar virðast á málum sem standa steingeitinni nærri en með vandlegri ígrundun ætti hún að geta fundið lausnina. Happatölur 13, 12, 74.

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...