Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 19. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn má vera ánægður með sumarið. Þó hann geri sér ef til vill ekki grein fyrir því hefur frítíminn gert honum gott og lífið ýtt honum aðeins nær þeim skrefum sem hann þarf að stíga til þess að upplifa frelsi – ef svo má kalla. Nú þarf sjálfstraustið að fá að blómstra og leiðin verður greið. Happatölur 8, 15, 55.

Fiskarnir vita vart í hvora áttina þeir eiga að stefna. Eitthvað er að trufla þá og nú þarf að fara varlega ef hlutirnir eiga ekki að fara úrskeiðis. Rétt er að biðja um aðstoð þar sem við á og ekki hika við að taka þau skref. Óvænt lausn leynist þar sem hennar síst er von. Happatölur 13, 3, 16.

Hrúturinn telur sig þurfa að hafa sig allan við þegar kemur að andlegri heilsu um þessar mundir. Þó er lífið ekki alveg svo erfitt, en hrútnum kæmi best að slaka bara á og hætta að hafa áhyggjur. Oft leysast málin og oftar vill fólk aðstoða við slíkt ef hrúturinn leitast eftir því í rólegheitunum. Stress er ekki af hinu góða. Happatölur 23, 24, 77.

Nautið er akkúrat á þeim stað sem það hefur hægt og sígandi verið að mjakast að síðastliðin ár. Nú má nautið staldra við og vera ánægt með sig og svo taka yfirvegaða ákvörðun eins og nautinu er einu lagið ... um framhaldið. Líta má á þennan tíma sem upphaf að nýju og bættara lífi/líferni, fara þó ekki of geyst en bæta allar venjur hægt og rólega. Happatölur 16, 22, 28.

Tvíburinn er einstaklega og óvanalega rór þessa dagana. Einhverjum finnst líklega að úr honum sé allur vindur, en það er nú ekki svo. Heldur er tvíburinn að íhuga ýmis mál sem að honum standa og endurhlaða batteríin. Hann mætir á sviðið áður en langt um líður, endurnærður sem aldrei fyrr og ætti að leyfa sér að njóta innri friðar og rór sem lengst. Happatölur 2, 24, 16.

Krabbinn hefur þurft að takast á við nokkrar breytingar í sínu lífi undanfarin misseri. Nú mætti ætla að lygnt hefði til, en svo er því miður ekki. Krabbinn þarf að halda andlitinu í einhverju sem skellur á hann – enn eina ferðina en gefast þó ekki upp. Þetta verður síðasti skellurinn og mest um vert að hann haldi ró sinni. Líka innra með sér. Happatölur 3, 13, 28.

Ljónið hefur lent í einhverjum skakkaföllum sem það er að reyna að skilja, með tilliti til æðri máttar. Þarf ljónið að taka sig taki? Hvert er verið að beina því? Jú, nú þarf ljónið einfaldlega að draga sig í almennilegt hlé, láta af þeirri þörf að skína um stund og líta inn á við með auðmýkt. Það kemur eitthvað upp á yfirborðið því að óvörum. Happatölur 74, 16, 72.

Meyjan ætti að stefna að betrun á sem flestum sviðum lífs síns. Hún er þó á góðum stað, sjálfstraustið eykst með hverju árinu og um að gera að leyfa því að halda áfram að rísa. Meyjan er svo mögnuð – ekki síst ef hún sleppir öllum hömlum og trúir á sjálfa sig. Draumar hennar geta nefnilega ræst. Happatölur 1, 3, 14.

Vogin hefur enn og aftur verið undir álagi og þarf nú að horfa fast í spegilinn. Hún þarf að trúa á að allt verði í lagi. Hún þarf að trúa því að vinir og fjölskylda séu til staðar og elski ofar öllu. Hún þarf að æfa sig í að anda djúpt í 3, 7 eða 11 mínútur í einu til þess að minnka stress. Kvíðann burt. Vogin fær faðmlag frá öllum góðum vættum. Happatölur 23, 20.9.

Sporðdrekinn er á hraðleið upp einhverja stiga um þessar mundir. Þeir eru merktir virðingu, velmegun, tækifærum og þar fram eftir götunum og nú er bara að passa sig að hrasa ekki. Sporðdrekinn er eitt ákafasta merkið og stendur sig með sóma í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur – en hann þarf að muna að horfa niður fyrir sig. Happatölur 15, 69, 32.

Bogmaðurinn svífur nú um á bleiku skýi – eða er á leiðinni í slíkan draumaheim. Ástin er nefnilega á næstu grösum og mun hafa mikil og langvarandi áhrif á bogmanninn. Hann má vera óhræddur við að opna vel fyrir tilfinningar sínar næstu vikur og taka vel á móti svipuðum flaumi frá öðrum. Happatölur 8, 65, 17.

Steingeitin finnur hvernig síðustu mánuðir hafa gert henni gott og með sól í hjarta ætti hún að halda áfram á þeirri jákvæðu braut. Hún má opna betur fyrir tilfinningar sínar, hvort sem langanir sínar eða kvíða og vita að í kringum hana er stuðningur á allan hátt. Happatölur 15, 42, 43.

Skylt efni: stjörnuspá

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 19. ágúst 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni sem birtist í 14. tölublaði Bændablaðsins.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 19. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Ljónið hefur lent í einhverjum skakkaföllum sem það er að reyna að skilja, með t...

Svar við loftmyndagetraun
Líf og starf 19. ágúst 2026

Svar við loftmyndagetraun

Af hvaða stað er myndin? Að þessu sinni eru lesendur beðnir um að bera kennsl á ...

Vísnahornið
Líf og starf 12. ágúst 2026

Vísnahornið

Stuðst fram á stafinn heitir þetta kvæði Rósbergs G. Snædal:

Sumarið er tíminn ...
Líf og starf 12. ágúst 2026

Sumarið er tíminn ...

Falla bringuhár undir sumartískuna 2026? Þegar stórt er spurt.

Teflt utanhúss
Líf og starf 12. ágúst 2026

Teflt utanhúss

Í gamla daga var helsta firmamót Taflfélags Reykjavíkur haldið utanhúss, yfirlei...

Svíinn og þingeyski bóndinn
Líf og starf 12. ágúst 2026

Svíinn og þingeyski bóndinn

Ég hitti þingeyskan bónda fyrir skemmstu, roskinn spilamann sem fylgist töluvert...

Bærinn undir sandinum
Líf og starf 12. ágúst 2026

Bærinn undir sandinum

Haustið 1990 gerðu tveir grænlenskir hreindýraveiðimenn merkilega uppgötvun á af...