Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Signe Arendorf Bach segist vera ástfangin af íslenska hestinum enda búin að kaupa sér flottan og efnilegan graðfola frá Íslandi, sem er nú komin til hennar í Danmörku.
Signe Arendorf Bach segist vera ástfangin af íslenska hestinum enda búin að kaupa sér flottan og efnilegan graðfola frá Íslandi, sem er nú komin til hennar í Danmörku.
Mynd / Einkasafn
Líf og starf 29. október 2021

Signe Arendorf Bache gerir magnaðar blýantsteikningar af íslenskum hestum

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Signe Arendorf Bach frá Dan­mörku er flott listakona sem er ótrúlega fær að teikna alls konar myndir með blýanti, ekki síst myndir af hestum.

Hún er mikill Íslandsvinur og hefur heillast af íslenska hestinum, sem hún segist vera ástfangin af. Signe eignaðist sinn fyrsta íslenska hest 12 ára gömul og þá var ekki aftur snúið. Þegar hún var 19 ára kom hún til landsins með lýðháskólanum sínum þar sem hópurinn fékk fræðslu um Ísland og hesta og eftir það hefur Signe verið reglulegur gestur á landinu.

Hér er fyrsta myndin, sem Signe teiknar með litblýanti en teikninguna gerði hún 2017 af stóðhestinum Þrymi frá Ragnheiðarstöðum.

Elskar Ísland

„Ég elska Ísland, ég hef aldrei verið í öðru landi þar sem fólk er í svo miklum tengslum við náttúruna. Ég dýrka náttúruna ykkar og mikilleika hennar. Ekkert fær mig til að líða svo auðmjúkri og láta vandamál mín og áhyggjur líða svo léttvægt, eins og að keyra í gegnum íslenska landslagið. Fólkið er líka vingjarnlegt og yndislegt, sem fær mig til að koma alltaf aftur og aftur til Íslands,“ segir Signe þegar hún var spurð hvað henni fyndist best við landið.

Hér er mynd af Mandalahestinum en Signe hefur selt mörg veggspjöld með þessari teikningu. Hér er það í litaðri útgáfu.

Skapið og stoltið

Signe byrjaði að fara á hestbak aðeins fjögurra ára gömul en þegar hún eignaðist íslenskan hest gerðist eitthvað innra með henni, sem varð til þess að hún varð algjörlega heilluð af Íslandi og hestunum. „Það sem ég elska mest við íslenska hestinn er skaplyndi þeirra og stolt. Þeir hafa svo mikinn persónuleika og eru svo rólegir og vingjarnlegir en samt afskaplega kraftmiklir og fúsir til að vinna undir knapa. Þessi kraftur er líka það sem fær mig til að elska að teikna íslenska hestinn. Þeir hafa mikla tjáningu og ég reyni að endurskapa það í teikningum mínum. Það er ekkert í heiminum sem jafnast á við hratt tölt á góðum hesti,“ segir Signe brosandi.

Teiknar með venjulegum blýanti

Teikningar Signe hafa vakið mikla athygli og allir sem sjá verk hennar verða kjaftstopp því þau eru svo falleg, ekki síst hvernig hún nær hverju smáatriði í verkum sínum. Hún segist hafa byrjað að teikna þegar hún gat fyrst sem lítið barn haldið á blýanti og hún hefur ekki getað hætt. „Pabbi minn er mjög listrænn og hefur alltaf hvatt mig og teiknað með mér. Á æskuárunum eyddi ég tímum á hverjum degi í að teikna hesta og dreyma um þá. Þegar ég var 15 ára áttaði ég mig á því að hæfni mín hafði þróast að því marki að ég gæti byrjað að teikna eins og alvöru listamaður og aflað mér smá peninga með teikningunum.

Eftirspurnin jókst og jókst og nú hef ég töluvert mikið að gera við að teikna alls konar myndir fyrir hina og þessa. Mér finnst langbest að teikna með venjulegum blýanti en í framtíðinni get ég séð fyrir mér að ég fari að nota lit og málningu samhliða blýantinum,“ segir Signe.

Mynd sem Signe teiknaði af Eddu Rún og Sigga Matt á stóðhestunum Kinnskær og Safír og gaf þeim, enda mjög góðir vinir hennar.

Veggspjöld og tímarit

Signe er ekki bara að teikna fyrir einstaklinga því hún hefur oft verið beðin um að teikna veggspjöld með völdum teikningum og þá hefur hún teiknað fyrir hestatímarit og hestahátíðir eins og í Danmörku og á Íslandi. Persónulegar gjafir eru þó alltaf vinsælastar hjá henni þar sem hún er beðin um að teikna mynd af ákveðnum hesti og knapa og svo framvegis. „Já, ég hef teiknað mikið af myndum af „frægum“ hestum og knöpum, bæði á Íslandi og annars staðar og alls staðar fæ ég góð viðbrögð og mikla ánægju með myndirnar mínar, sem er mjög ánægjulegt og hvetur mig áfram,“ segir Signe aðspurð um fyrir hverja hún væri aðallega að teikna.

Grímur frá Stóra Vatnsskarði

Signe hefur nýlega keypt stór­efnilegan íslenskan stóðhest af Benedikt Benediktssyni á Stóra-Vatnsskarði en það er Grímur frá Stóra-Vatnsskarði, sem er fimm vetra í dag.
Grímur er nýkominn til Signe í Danmörku þar sem hún vonast til að hann fái gott kynbótamat næsta vor og eigi eftir að ganga vel í keppnum í framtíðinni. Hún ætlar að vera dugleg að þjálfa hann í vetur á milli þess, sem hún teiknar myndir.

Mynd frá 2020, átrúnaðargoð Signe, Sigurbjörn Bárðarson á Óðni frá Búðardal. Sjáið hvernig hún nær hverju einasta smáatriði.

Íslenska nammið best

Eins og fram hefur komið þá býr Signe í Danmörku enda á hún sitt heimili og fjölskyldu þar úti. Hún hefur búið á Íslandi þrisvar sinnum í nokkra mánuði í senn, sem hún segir að hafi verið frábær reynsla, en hún sér þó ekki fyrir sér að flytja til Íslands. „Ég ætla næst að koma til ykkar í janúar og fagna þar 30 ára afmæli mínu með vinum mínum í gönguferð og borða íslenskt nammi, sem er uppáhaldsnammið mitt í heiminum,“ segir Signe og skellihlær. „Ég mun svo örugglega heimsækja Ísland reglulega næstu árin, því get ég lofað, þið eruð ekkert laus við mig,“ bætir hún við.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...

Flugvélarflak í Eyvindarholti
Líf og starf 10. apríl 2024

Flugvélarflak í Eyvindarholti

Við Eyvindarholt undir Eyjafjöllum hefur gömlu flugvélarflaki verið komið fyrir....

„Hann gat ekki beðið“
Líf og starf 10. apríl 2024

„Hann gat ekki beðið“

Bændablaðið er mörgum ansi hjartfólgið enda nýtur blaðið mikils trausts meðal le...

Sefgoði
Líf og starf 10. apríl 2024

Sefgoði

Sefgoði er flækingur af goðaætt og fannst nýverið við Þorlákshöfn. Það er einung...

Fræ í frjóa jörð
Líf og starf 8. apríl 2024

Fræ í frjóa jörð

Fræbankar hafa á síðustu árum skotið upp kollinum hér og þar, en Svanhildur Hall...

Skyndibitar fyrir sálina
Líf og starf 5. apríl 2024

Skyndibitar fyrir sálina

Veitingar á vegum úti hafa í gegnum tíðina helst hljóðað upp á undirstöðugóðan a...

Íslensk tunga kveikir elda
Líf og starf 4. apríl 2024

Íslensk tunga kveikir elda

Undir Eyjafjöllunum skín alltaf sól segja sumir. Tíðarfarið, eins og víðast anna...