Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Margvíslegar tómatategundir beint úr garðyrkjustöðinni.
Margvíslegar tómatategundir beint úr garðyrkjustöðinni.
Líf og starf 26. ágúst 2024

Lítill verslunarrekstur í stöðugri þróun

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á Melum á Flúðum er lítil sveitabúð sem hét Litla Melabúðin, en nafninu var fyrir fáeinum árum breytt í Litla Bændabúðin, sem hugsuð er sem miðpunktur fyrir grósku uppsveitanna.

Rakel Ósk Kristófersdóttir, nýráðin rekstrarstjóri búðarinnar, hefur verið að bæta við vöruúrvalið í sumar.

Litli verslunarreksturinn er í stöðugri þróun, að sögn Rakelar. „Við leggjum áherslu á að selja hreina og góða matvöru úr nærumhverfi en höfum líka verið að auka sölu á matvöru frá smáframleiðendum víðs vegar að á landinu. Svo höfum við síðustu vikur verið að þróa vöruúrvalið enn frekar í áttina að því að vera meira eins og kaupmaðurinn á horninu. Bætt við hefðbundnum matvörum eins og til dæmis mjólkurvörum og þurrvöru en líka sérvöldum innfluttum matvörum sem fólk rekst kannski almennt ekki á í hefðbundinni verslunarferð svo það fylgir því ákveðin upplifun að kíkja til okkar og jafnvel prófa eitthvað nýtt,“ segir hún.

Lara Clemente, sem er frá Brasilíu og vinnur við afgreiðslu í búðinni, er hér með Rakel Ósk Kristófersdóttur í Litlu Bændabúðinni á Melum.

Kaffihús

Rakel segir að önnur nýjungin sé áhersla á kaffisölu með tilheyrandi bakkelsi og smurðum rúnstykkjum til að styrkja rekstrargrundvöll verslunarinnar. „Við bjóðum upp á kaffisölu í take-away og vonumst til að með þessu getum við haft lengri og meiri opnunartíma, líka yfir vetramánuðina til að þjónusta nærumhverfið okkar betur.

Þess vegna reynum við að leggja áherslu á aukið úrval núna og reynum að ná til ferðamanna til að hafa svigrúm til að styrkja reksturinn,“ segir Rakel Ósk.

Eggaldin og kúrbítur eru fremur fágætt íslenskt grænmeti.
Afurðir beint frá garðyrkjustöðinni

„Búðin gefur okkur líka tækifæri, samhliða ræktuninni í garðyrkju- stöðinni, til að vera í ákveðnum tengslum við neytendur og markaðinn. Garðyrkjustöðin hefur verið með alls konar kryddjurtir og tómatasortir í prufu, eggaldin, kúrbít og aðrar stærðir af gúrku. Í sjálfu sér getum við prófað okkur áfram með alls konar tegundir í litlu magni og fengið smá tilfinningu fyrir hvernig þær eru í ræktun og hvaða viðtökur þær myndu fá á almennum markaði,“ heldur Rakel áfram.

„Við erum líka með vottaða eldunaraðstöðu og þegar tækifæri gefst prófum við okkur áfram að vinna til dæmis úr öðrum flokki eða útlitsgölluðu grænmeti einhverjar vörur til sölu í búðinni til að styrkja verðmæti framleiðslunnar hjá okkur.

En við reynum líka að hvetja aðra á svæðinu til að hafa samband ef þau vilja koma einhverju í sölu og framtíðarsýnin okkar byggir á því að við getum verið miðpunktur fyrir alla þá grósku sem er í matvælaframleiðslu í uppsveitunum,“ segir Rakel að lokum. Hún vísar áhugasömu fólki um Litlu Bændabúðina að fylgjast með henni á Instagram og Facebook.

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...