Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Kynningarfundurinn til London, á myndinni eru, auk Ólafar sem stendur fyrir miðju, Þór Sigfús og Alexandra Leeper frá Sjávarklasanum, Hrönn Magnúsdóttir frá Feel Iceland og Guðmundur Fertram frá Kerecis.
Kynningarfundurinn til London, á myndinni eru, auk Ólafar sem stendur fyrir miðju, Þór Sigfús og Alexandra Leeper frá Sjávarklasanum, Hrönn Magnúsdóttir frá Feel Iceland og Guðmundur Fertram frá Kerecis.
Líf og starf 16. nóvember 2022

Hrein íslensk hráefni sjálfbærra auðlinda

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Nýverið úhlutaði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra tæpum 585 milljónum króna í formi styrkja Matvælasjóðs. Lýsti hún, við það tilefni, yfir ánægju sinni vegna jafns kynjahlutfalls þeirra er sóttu um, auk þess hve aðdáunarverður væri sá sköpunarkraftur og sú áræðni er umsækjendur byggju yfir.

Styrkir sjóðurinn almenna þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum auk stuðnings við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum.

Heilsuvörur sem seljast vel

Fyrirtækið Eylíf er eitt þeirra er hlutu styrk Matvælasjóðs nú í ár, en heilsuvörur þess, sem komu á markað í janúar 2020, innihalda hrein íslensk hráefni sjálfbærra auðlinda. Þar má telja kalk og smáþörunga, GeoSilica kísil, kítósan, sem eru náttúrulegar trefjar unnar úr skelfiski, og íslenskar jurtir svo eitthvað sé nefnt, en vörurnar eiga að hafa góð áhrif á bein, hár og húð auk þess sem þær eiga að bæta almenna virkni og líðan liða, meltingar og lifrar.

Stofnandinn, Ólöf Rún Tryggva- dóttir, tekur fram að samstarfsaðilar hennar á Grenivík, sérfræðingarnir hjá Pharmarctica, séu algerlega ómetanleg. Þau taka þátt í þróuninni með sérfræðingum frá Matís, gera formúleringar og prufulotur auk þess að standa í framleiðslunni sem er algerlega í þeirra höndum.

„Framleiðslan hjá þeim er undir GMP gæðastaðli sem mér finnst mjög mikilvægt fyrir vörurnar. Þórunn I. Lúthersdóttir er í fararbroddi í þróun og samsetningum á Eylíf vörunum hjá þeim,“ segir Ólöf brosandi.

Hún segir sölu heilsuvaranna hafa gengið vonum framar frá upphafi. „Fyrsta árið seldum við lagerinn upp, trekk í trekk, byrjuðum í janúar 2020 og tókum stórt stökk á íslenska markaðinn. Vöxturinn var mikill á milli fyrstu tveggja áranna, eða 100%, en núna er salan orðin stöðug og við sjáum kannski fram á 10-15% vöxt nú í ár, sem er eðlilegra.“

Segir Ólöf styrk Matvælsjóðs, alls 10 milljónir króna, koma sér vel, en alveg frá upphafi var áætlað að koma vörum Eylífar á markað erlendis.

Jákvætt sé hversu góðar viðtökur íslenska markaðarins hafa verið, en með aukinni þróunarvinnu ættu nú allir agnúar að vera af sem kunna að hafa verið á vörunum síðastliðin tvö ár og því tímabært að halda utan.

Stefnan tekin utan landsteinanna

Stefnan er tekin, fyrst um sinn, á breskan og þýskan markað, en þannig hittist á, til viðbótar við styrk Matvælasjóðs, að Ólöfu var boðið á viðburð bresk-íslenska viðskiptaráðsins sem var haldinn í íslenska sendiráðinu í London í byrjun októbermánaðar.

Eylíf er eitt átta íslenskra sprotafyrirtækja sem boðið var að sækja viðburðinn, þar sem fræðst var um breskan markað, forsvarsmenn þarlendra verslanakeðja kynntu fyrirtæki sín auk almennrar tengslamyndunar. Að auki hefur Ólöf komist í samband við þýskan viðskiptafulltrúa í íslenska sendiráðinu í Berlín, sem hefur aðstoðað marga við að tengjast fyrirtækjum í Þýskalandi.

Eins og staðan er núna hefur stefnan verið sett á að hittast snemma næsta árs en þá verður haldinn slíkur viðburður tengingar og munu líklega fleiri íslensk fyrirtæki mæta á staðinn. Til viðbótar komust vörur Eylífs á vef- og sölusíðuna Amazon. com fyrir skemmstu og mun sala á varningnum vera í boði á næstu mánuðum.

„Þetta var svo frábær tímasetning og allt á sama tíma,“ segir Ólöf sem hefur, eins og staðan er núna, skráð vörumerki sitt í 30 löndum.  Umbúðamerkingarnar eru allar á ensku enda stefnir hún á frekari útflutning síðar, bæði til fleiri landa í Evrópu og svo til Bandaríkjanna – en það að vera með vörumerkið skráð auðveldar ferlið fyrir þá sem vilja selja vörur Eylífar í sínu landi. Ólöf sér fyrir sér að ef dreifingaraðilar erlendis kjósi að hafa merkingarnar á sínu eigin tungumáli muni þeir sjá um það auk markaðssetningar enda álagningin næg til þess.

Verkefnum úthýst til að auðvelda vinnslu

Að sögn hefur Ólöf úthýst öllum verkefnum sem hún getur ekki gert sjálf frá upphafi, en starfað ein að verkefninu þar til nú í ágúst sl. þegar ráðinn var inn sölufulltrúi til að sjá um íslenska markaðinn. „Sérfræðingar hjá Matís eru mér innan handar varðandi þróunina, í samstarfi við Pharmarctica, auk þess að kaupa öll hráefni tilbúin af íslenskum fram- leiðendum. Með því að einfalda þannig ferlið og viðskiptamódelið og til að halda kostnaði í lágmarki, þá úthýsi ég semsagt öllum sérfræðiverkefnum á borð við vöruþróun, framleiðslu, dreifingu, greinaskrifum, hönnun, markaðssetningu á netinu og fleira. Þannig hefur litla sprotafyrirtækið sem á Eylíf verið rekið með hagnaði frá byrjun. Það finnst mér alveg einstakt og frábært,“ segir Ólöf, ánægð með framgang mála. „Þegar salan hefst svo erlendis,“ bætir hún við, „mun ég þurfa að ráða starfsfólk í viðskiptaþróun á erlendum mörkuðum með það fyrir augum að auðvelda bæði ferlið og kynningu út fyrir landsteinana og gera mér
þannig hlutina sem auðveldasta.

Með hægum skrefum er best að stefna á sölu erlendis, lýkur hún máli sínu, því þetta eru stórir markaðir og mjög dýrt að skala sig upp, sérstaklega með tilliti til þess að ég stefni á að vera áfram eini
eigandinn.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...

Flugvélarflak í Eyvindarholti
Líf og starf 10. apríl 2024

Flugvélarflak í Eyvindarholti

Við Eyvindarholt undir Eyjafjöllum hefur gömlu flugvélarflaki verið komið fyrir....

„Hann gat ekki beðið“
Líf og starf 10. apríl 2024

„Hann gat ekki beðið“

Bændablaðið er mörgum ansi hjartfólgið enda nýtur blaðið mikils trausts meðal le...

Sefgoði
Líf og starf 10. apríl 2024

Sefgoði

Sefgoði er flækingur af goðaætt og fannst nýverið við Þorlákshöfn. Það er einung...

Fræ í frjóa jörð
Líf og starf 8. apríl 2024

Fræ í frjóa jörð

Fræbankar hafa á síðustu árum skotið upp kollinum hér og þar, en Svanhildur Hall...

Skyndibitar fyrir sálina
Líf og starf 5. apríl 2024

Skyndibitar fyrir sálina

Veitingar á vegum úti hafa í gegnum tíðina helst hljóðað upp á undirstöðugóðan a...

Íslensk tunga kveikir elda
Líf og starf 4. apríl 2024

Íslensk tunga kveikir elda

Undir Eyjafjöllunum skín alltaf sól segja sumir. Tíðarfarið, eins og víðast anna...