Grikk eða gott?
Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlendis er rétt að koma hér á blað örlítilli sögu, en upp á hann verður haldið laugardaginn 31. október næstkomandi.
Ekki eru allir á sama máli um ágæti þessa dags og benda með þótta á að við landsmenn eigum hliðstæða hátíð þar sem hefð er fyrir að búningaklædd börn þeytist um götur og betli sælgæti. Þeir þóttafullu mega hins vegar opna hug sinn og horfa á með jákvæðni hvernig hrekkjavakan dregur úr óeirð yfirspenntra barna, þeirra sem bíða óþreyjufullir eftir öskudeginum – og jafnvel jólunum ef því er að skipta. Enda er hrekkavakan einnig, á sinn hátt, hátíð ljósa, en hefð hefur komist á sums staðar að hafa ljósker fyrir utan þau hús sem vilja veita litlum betlurum ásjár með sleikipinnum eða lakkrísrúllum.
Þeir eru svo einhverjir sem skera út grasker, setja í þau ljós og tylla fyrir utan útidyrnar í stað luktanna en graskerin hafa loðað við hrekkjavökuna frá því að elstu menn muna.
Hátíð hinna dauðu
Hátíðin sem slík á rætur að rekja til keltnesku uppskeruhátíðarinnar Samhain sem haldin var á Írlandi, í Bretlandi og í norðurhluta Frakklands til þess að marka endalok sumars og þá upphaf hins oft dimma vetrar (í margþættum skilningi).
Í sögulegu samhengi einkenndist tímatal margra Evrópuþjóða, einkum á Norðurlöndum og á keltneskum svæðum, af tvískiptingu ársins í sumar og vetur. Vetrarbyrjun við mánaðamót október og nóvember markaði nýtt ár þar sem myrkrið mætti ljósinu. Þessum tímamótum var fagnað víða, að minnsta kosti fram að kristnitökunni.
Á Íslandi voru haldnar Veturnætur, á Norðurlöndunum einnig, til viðbótar við það sem kallað var Dísablót, og meðal Kelta, hin gelíska Samhainhátíð sem telst vera beinn forveri hrekkjavökunnar eins og við þekkjum hana í dag. Samhain þýðir á frummálinu „Hátíð hinna dauðu“.
Óljós mörk lifenda og látinna
Voru andar taldir vera á kreiki á þessum tíma og ekki síst í heimi Kelta þóttust menn geta skynjað ýmislegt, ekki síst hvað varðaði framtíðina. Þetta tímabil milli sumars og veturs, upphaf nýs árshrings og umskipta, boðaði sem sé það sem áður var hulið, mörkin milli heims lifenda og látinna óljós.
Keltar kveiktu gjarnan bál og færðu matargjafir í von um að vinna hylli anda þeirra sem höfðu látist á síðasta ári. Þeir dulbjuggu sig einnig, báru grímur og búninga svo að andar hinna látnu myndu ekki þekkja þá.
Hræðsla hins óþekkta varð þó til þess að fólk útbjó luktir til að fæla frá illa anda, holaði m.a. að innan og skar út andlit í rótargrænmeti sem í voru sett kerti. Segir sagan, gömul írsk þjóðsaga í þessu tilfelli, frá óhræsinu og drykkjusvolanum Stingy Jack sem við endalok lífs síns var meinaður aðgangur að himnaríki, en hafði áður platað djöfulinn til þess að heimta ekki sálu sína. Hann var því dæmdur til þess að reika um jörðina með glóandi kol inni í holri rófu og þar sem hann var í flokki hinna glötuðu sálna hélt hann sig fjarri ef fólk útbjó svipuð ljósker. Þegar innflytjendur hópuðust til Bandaríkjanna hófu þeir að nota grasker í staðinn, enda mun stærri og auðveldari til útskurðar, og þaðan kemur bandarískt nafn ljóskerja úr graskerum ,Jack-o‘-Lantern.
Grikkur eða gott?
Hrekkjavakan sem slík barst til Bandaríkjanna undir lok 19. aldar og einkenndist reyndar af hrekkjum og eignaspjöllum ungmenna en varð með 20. öldinni smám saman að þeirri hátíð sem við þekkjum í dag.
Sá siður að ganga í hús og spyrja húsráðanda hvort hann kjósi heldur að sér verði gerður grikkur eða gefi gott í poka spyrjanda hófst fyrir að minnsta kosti hundrað árum.
Í kanadíska dagblaðinu The Sault Daily Star, frá árinu 1917, var sagt frá uppáklæddum börnum sem stunduðu það að banka upp á og óska eftir sætindum. Hátíðin varð svo endanlega að þeirri allsherjarhefð sem við þekkjum í dag upp úr 1950, þegar sykurskömmtun eftir seinni heimsstyrjöldina lauk og vinsælar teiknimyndir og myndasögur gerðu orðalagið heimsfrægt. Til viðbótar við sykursætar myndasögur og teiknimyndir var dekkri hlið á málinu. Illir andar og allt þaðan af verra hefur ávallt átt sinn stall á degi hrekkjavökunnar og þykir mikil skemmtun allt sem þykir hrollvekjandi.

Hrella skaltu náungann
Allt sem viðkemur því sem fella má undir hrylling, kynngikraft eða yfirskilvitleg fyrirbæri hafa alla tíð verið eitt aðalsmerki dagsins 31. október. Þykir mörgum gaman að skreyta hús sín í þess háttar stíl bæði að utan og innan. Hryllingsmyndir eru þarna ofarlega á blaði og gaman að hafa eina slíka rúllandi í tækinu svona fyrir stemninguna. Má þar nefna allt frá barnvænu myndunum Koraline og Beetlejuice til Texas Chainsaw Massacre, sem þykir ein umdeildasta hryllingsmynd allra tíma. Var það Íslendingurinn Gunnar Hansen (1947–2015) sem sló þar í gegn, en hann lék aðalhlutverk myndarinnar sem morðinginn og mannætan Leatherface.
Heilt yfir, fyrir þá sem hafa gaman af svona ólátadögum, ættu endilega að njóta sín til hins ýtrasta, hvort sem er að skreyta sjálfan sig og heimilið, gefa gestum og gangandi sælgætismola eða hreinlega stelast sjálfur í grímubúning og slást í hópinn.
Að lokum má svo spyrja sig hvernig best sé að útbúa graskerslukt – en fyrsta skrefið er að láta sér detta í hug hvað á að skera út. Teikna svo með svörtum tússpenna á graskerið og muna að gera ráð fyrir að lok verði að vera á því. Næst er að skera lokið af, hreinsa vel og bíða til þerris. Síðan kemur að því að losa um innvolsið og ná því út sem getur orðið ansi mikið verk. Gott að hafa stóra skál eða jafnvel svartan ruslapoka til þess að skutla því í, ef ætlunin er ekki að nota það til matreiðslu. Svo má snyrta brúnir útskurðarins og setja að síðustu kertaljós eða jafnvel ledseríu í graskerið sem má dást að þegar fer að skyggja.
