Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Kia Niro EV er einn besti rafmagnsbíllinn á íslenskum markaði. Mikil akstursdrægni, fallegt útlit og praktísk stærð gerir þetta að vænlegum kosti á markaði þar sem samkeppnin er mikil.
Kia Niro EV er einn besti rafmagnsbíllinn á íslenskum markaði. Mikil akstursdrægni, fallegt útlit og praktísk stærð gerir þetta að vænlegum kosti á markaði þar sem samkeppnin er mikil.
Mynd / ÁL
Líf og starf 1. febrúar 2023

Gerir allt með sóma

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Að þessu sinni tók Bændablaðið til prufu hinn nýja Kia Niro EV. Forveri þessa bíls var einn af fyrstu almennilegu rafmagnsbílunum sem komu á markaðinn og hefur því notið nokkurra vinsælda, þrátt fyrir að vera ekki fríður sýnum.

Nú hafa hönnuðir Kia vandað sig sérstaklega vel og er hinn nýi Niro ekki bara praktískur og með góða drægni, heldur gullfallegur. Ólíkt því sem var fyrir nokkrum árum, þá er samkeppnin á þessum markaði orðin mjög mikil og þarf Niro að keppa við afbragðsgóða rafmagnsjepplinga eins og Nissan Ariya, Skoda Enyaq, Toyota bZ4X og ótal fleiri.

Ef á að grípa til einhverra lýsingarorða, þá er hægt að segja að þessi bíll sé mjög látlaus á að líta. Þeir sem ekki vita betur myndu líklegast ekki einu sinni taka eftir þessum bíl úti á götu. Það er vel hægt að telja það til kosts, því ekki vilja allir láta mikið bera á sér. Þeir sem vilja krydda útlitið aðeins geta pantað bílinn með öðrum lit á aftasta gluggapóstinum.

Niro fæst bæði bensín og rafmagns

Bifreiðin í þessum prufuakstri var 100% rafmagnsbíll, en Niro bílar eru líka framleiddir með bensínvél – ýmist tvinn- eða tengiltvinn. Líklegast gefur það framleiðandanum möguleika á að nýta verksmiðjuplássið betur og bjóða betra verð. Ókosturinn er hins vegar sá að gólfið í bílnum er ekki alveg flatt, eins og í bílum sem hannaðir eru frá grunni sem rafmagnsbílar og ekkert annað. Sérstakan gólfhalla má m.a. finna í fótarými við framsætin og í skottinu. Fyrrnefnda atriðið getur flækst fyrir ökumönnum í stórum skóm, á meðan það síðarnefnda má leysa með þili sem hækkar skottgólfið.

Innrarýmið er að miklu leyti í stíl við þemað að utan – smekklegt og tilgerðarlaust. Hér er ekkert sem kemur á óvart, heldur er allt sem hægt er að vænta af nýjum bíl til staðar og auðfundið. Í mörgum bílum hefur tökkum verið fórnað í þágu naumhyggju, og öllu stjórnað í gegnum snertiskjá – sem krefst oft fullmikillar fyrirhafnar. Í Kia Niro EV er helstu tækjum stjórnað með klassískum hnöppum, eins og miðstöð, útvarpi, sætis- og stýrishitara og hefur náðst gott jafnvægi milli notkunar takka og snertiskjás. Allt virðist vera vel skrúfað saman og úr góðum efnum. Þegar kemur að því að nota margmiðlunarskjáinn, þá virkar hann almennt vel. Boðið er upp á Android Auto og Apple CarPlay. Þeir sem vilja nýta sér þá möguleika þurfa að muna eftir snúru í símann – því tengingin er ekki þráðlaus.

Ekki eru allar skipanir í snertiskjánum og því fljótlegt að hækka í útvarpinu og kveikja á sætishitaranum. Mikið fóta- og höfuðpláss gerir flestum ökumönnum kleift að koma sér vel fyrir. Einkennilegur halli á gólfinu gerir notkun fótstiga í stórum skóm klunnalega.

Þessi bíll var útbúinn með rafmagni í sætum, sem eru nokkuð þægileg og var áklæðið úr mjúku leðri. Þar sem Kia Niro er jepplingur, þá mun mörgum finnast aðgengið í bílinn auðveldara en almennt í fólksbílum, þar sem sætin eru nokkuð hátt frá götunni. Framsætin eru rúmgóð og munu hávaxnir ökumenn komast vel fyrir. Aftursætin eru með mjög gott fótapláss, en höfuðrýmið þar lægra en æskilegt er fyrir fullorðna.

Aftursætin eru rúmgóð. Höfuðplássið mætti vera meira.

Ljúfur í akstri

Akstursupplifunin er heilt yfir mjög fyrirsjáanleg og er erfitt að benda á vankanta. Bíllinn er hljóðlátur og þegar kveikt er á akstursaðstoð, eins og sjálfvirkum hraðastilli og akreinaaðstoð, er álagið á ökumanninn í algjöru lágmarki. Aflið er gott – hann er fljótur að komast upp í þjóðvegahraða, en hröðunin er ekki þannig að maður fái fiðring í magann.

Samkvæmt framleiðandanum á rafhlaðan að skila akstursdrægni upp á 460 kílómetra. Eins og alltaf ber að taka þessum tölum með fyrirvara og draga frá 50-100 kílómetra við eðlilegar aðstæður – og jafnvel meira í miklu frosti. Auðvelt er hins vegar að fullyrða að akstursdrægnin sé ríkuleg fyrir hinn almenna notanda og munu þeir ekki þjást af drægnikvíða.

Þrátt fyrir að Kia Niro sé markaðssettur sem jepplingur, þá er hann einungis framhjóladrifinn og alls enginn jeppi. Í þessum prufuakstri gafst smá tækifæri til að reyna á eiginleika bílsins í ófærð og sást strax að litlir skaflar geta reynst mikil fyrirstaða.

Samkvæmt framleiðanda á akstursdrægnin að vera 460 km á einni hleðslu. Þó þeim tölum beri að taka með fyrirvara ættu flestir ökumenn að vera lausir við drægnikvíða í almennum akstri.

Tölur

Grunnverð Kia Niro EV Urban er 6.990.777 krónur, en bíllinn í þessum prufuakstri var af gerðinni Kia Niro EV Style og er verðið á þeim bíl 7.490.777 krónur.

Helstu mál eru: lengd 4.420 mm; breidd 1.825; hæð 1.570.

Þyngd er frá 1.682 kg, en heildarþyngd með farmi og farþegum 2.200 kg. Rafhlaðan er 64.8 kWst og getur tekið allt að 100 kW hraðhleðslu.

Afl mótors er 150 kW (204 hö).

Í stuttu máli

Kia Niro EV gerir allt sem hægt er að væntast til af honum með sóma og á samkeppnishæfu verði.

Skylt efni: prufuakstur

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...