Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Ólafur Sverrisson á fjölmarga fána, en segir söfnunina snúast um mannleg samskipti. Aftan við hann er kort sem sýnir hvaða lönd eiga fulltrúa í safninu.
Ólafur Sverrisson á fjölmarga fána, en segir söfnunina snúast um mannleg samskipti. Aftan við hann er kort sem sýnir hvaða lönd eiga fulltrúa í safninu.
Mynd / ál
Líf og starf 10. júní 2025

Flaggar ólíkum fánum daglega

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Ólafur Sverrisson fánasafnari á 214 ólíka fána, bæði þjóðfána ásamt fánum sem tilheyra borgum, ríkjum, íþróttaliðum og fleiru.

„Ég er eiginlega alinn upp í Vatnaskógi þar sem pabbi minn vann og þar er mikil fánahefð – flaggað á hverjum degi og fánahylling. Heima hjá mér var ekki fánastöng, en lengi býr að fyrstu gerð og þessi fánaáhugi blundaði í mér. Þegar ég var að byggja sumarbústað rambaði ég í fánabúð á ferðalagi í Seattle og ákvað að kaupa fimm fána til að flagga við reisugilið árið 1999. Það voru sá íslenski, danski af því að ég hafði lært í Danmörku, sænski af því að þáverandi konan mín var fædd í Svíþjóð, namibíski af því að þar bjuggu tengdaforeldrar mínir, og bandaríski af því að mágur minn var að læra þar.

Vekur jákvæða athygli

Þegar ég varð fertugur árið 2005 gáfu systkini mín mér fánastöng sem ég reisti við sumarbústaðinn. Um þetta leyti vann ég sem innkaupastjóri hjá Jarðborunum og þá var ég alltaf í einhverjum erlendum samskiptum. Þegar ég bauð gestum upp í sumarbústað í tengslum við viðskiptin keypti ég þeirra fána og flaggaði. Það hitti greinilega í mark og maður vann sér inn mörg prik. Í öðrum samskiptum við viðskiptavini barst talið oft að þessu áhugamáli sem endaði oft með því að þeir sendu mér fána sinnar þjóðar eða fylkis.“

Ólafur segir þetta hafa verið hæga þróun síðan þá og hann hafi byrjað að flagga oftar þegar núverandi kona hans fékk fánastöng í fimmtugsgjöf sem var svo reist á pallinum við heimili þeirra. „Síðan kom Covid og við vorum rekin heim til að vinna og þá ákvað ég að vera búinn að flagga á hverjum morgni fyrir klukkan níu til þess að pressa á mig að fara fram úr. Þá átti ég nálægt hundrað fánum og þetta fór að vekja jákvæða athygli í hverfinu. Síðan hef ég reynt að flagga á hverjum degi allt árið.

Fánar í tengslum við viðburði

Ég flagga þeim íslenska alltaf á sunnudögum og svo reyni ég að flagga á þjóðhátíðardegi þeirra landa sem ég á fána fyrir. Oft flagga ég í tengslum við atburði sem eru í fréttum, eins og þegar það var kosinn bandarískur páfi flaggaði ég fyrir honum. Ég flaggaði vatíkanska fánanum í hálfa stöng þegar hinn páfinn dó. Ég flagga oft fyrir Úkraínu en ég flagga ekki fána Rússlands lengur. Ég flagga oft fána Tíbet, en aldrei Kína af pólitískum ástæðum. Svo á ég liðsfána, en ég held með Víking og Leeds og flagga oft fyrir þeim. Konan heldur með Liverpool og af því að hún á stöngina hefur hún neitunarvald. Fánar eru rosalega pólitískt merki og maður verður að passa sig líka.

Vonandi kemur að því að ég eignist alla þjóðfána. Ég á fána frá öllum Evrópuríkjum, en ég á langt í land víða. Ég hef haldið aftur af mér við að panta fána á netinu. Það er miklu meiri stemning að fá einn og einn fána og njóta þess og svo er mun skemmtilegra ef það er einhver saga á bak við fánann. Ef ég veit af einhverjum sem eru að fara til lands þar sem ég á ekki fánann bið ég fólk um að kaupa. Við eigum samtals fimm börn og þrjú af þeim hafa farið í heimsreisu og ég hef notið góðs af því. Svo er auðvelt að gefa mér gjöf og þetta er ekki dýrt. Ég er nýlega orðinn sextugur og fékk nokkra fána í afmælisgjöf.

Fyrstu fimm fánunum var flaggað við reisugil sumarbústaðar árið 1999. Mynd / Aðsend

Mótmælendafáni verðmætastur

Ég er með heimskort uppi á vegg þar sem ég er búinn að merkja inn þjóðir þeirra fána sem ég á. Það sem ég á er líka skráð í Excel-skali, þar sem má sjá að ég á 214 fána alls, þar af 124 og Louisiana, og borgafánar eins og Amsterdam.

Aðspurður um hvort fánarnir uppfylli einhverja staðla segir Ólafur: Fánarnir þurfa að passa á sex metra langa stöng og vera 90 sinnum 150 sentímetrar. Flestir fánar eru eitthvert nælon-dót og þola ekki mikinn vind. Þegar það er vont veður reyni ég að flagga einhverjum sterkum fánum sem ég á.“

Verðmætasta eintakið í safninu telur Ólafur vera fána sem hann fékk í London árið 2012. „Þar voru mótmæli eftir að byltingin var nýhafin í Sýrlandi og fólk var með sýrlenska fánann, sem var svartur hvítur og rauður með tveimur stjörnum, en rauða litnum hafði verið skipt út fyrir grænan og fjölgað um eina stjörnu. Ég ræddi við mótmælendurna og fékk að kaupa einn fána af þeim sem mér þykir mjög vænt um. Síðan var svipuðum fána flaggað í Sýrlandi þegar Assad var steypt af stóli. Sérstakasti fáninn er frá Nepal, en hann er eini þjóðfáninn sem er ekki ferhyrndur. Sonur minn keypti þann fána sérsaumaðan þegar hann var í heimsreisu og kom við í Nepal.“

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...