Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
New Holland T5.140 Dynamic Command er ný dráttarvél frá þessum vinsæla framleiðanda. Hún býður upp á 140 hestöfl og 630 Nm tog. Þar sem Dynamic
Command gírkassinn er afar sparneytinn er hægt að hafa allt aflið aðgengilegt án sérstaks aflauka.
New Holland T5.140 Dynamic Command er ný dráttarvél frá þessum vinsæla framleiðanda. Hún býður upp á 140 hestöfl og 630 Nm tog. Þar sem Dynamic Command gírkassinn er afar sparneytinn er hægt að hafa allt aflið aðgengilegt án sérstaks aflauka.
Mynd / ÁL
Líf og starf 24. október 2022

Einföld en með öllu því nauðsynlega

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Að þessu sinni tekur Bændablaðið fyrir dráttarvélina New Holland T5.140 Dynamic Command. Þetta myndi flokkast undir meðalstóra dráttarvél eins og Claas Arion 470, John Deere 6R 130 og Valtra G135.

Samkvæmt sölumanni Kraftvéla var vélin sem blaðamaður prufaði af einfaldri útgáfu, eða hugsuð fyrir þá sem vilja ekki of mikið af flóknum tölvubúnaði.
Uppskrift New Holland að traktor hefur fallið vel í kramið hjá íslenskum bændum og hefur þetta verið eitt mest selda merkið um árabil.
Hér er komin ný lína frá framleiðandanum og fellur á milli T5 Electro Command og T6.

Ferskt húdd – gamalt hús

Hönnuðum dráttarvéla standa ekki til boða margar leiðir til að láta sína traktora skera sig úr fjöldanum. Þessi vél er fallega blá, en það sama má segja um nær allar New Holland vélar og Ford traktora þar áður. Húddið er með rennilegum línum og nútímaleg ljós sem glöggir dráttarvélanördar geta líklega þekkt frá eldri vélum frá þessum framleiðanda. Allt annað í útliti vélarinnar er runnið undan rifjum notagildis þar sem þetta er vinnuvél, ekki sportbíll.

Skýrt dæmi um slíka praktík er hönnun ökumannshússins. Í næstum tvo áratugi hefur New Holland sett fjögurra-pósta ökumannshús á vélarnar sínar þar sem breytingar á íhlutum (og varahlutum þegar að því kemur) hafa verið nær engar. Á þessum húsum ná hurðirnar frá framrúðu að afturhlera og gefa gott útsýni, en á móti er aukin hætta á að þær taki á sig vind.

Útsýni til fyrirmyndar

Ein breyting hefur þó orðið á ökumannshúsinu á síðustu misserum. Nú tengist framrúðan nær samskeytalaust við þakglugga fremst á þaki hússins. Þar með er útsýnið upp nær óhindrað og auðvelt að stafla rúllum í fjórar hæðir án þess að þurfa að beygja sig fram.

Önnur breyting til batnaðar felst í pústinu. Á fyrri gerðum New Holland af þessari stærð var stór mengunarvarnarbúnaður staðsettur neðst á pústinu. Nú hefur þessum búnaði verið komið haganlega fyrir undir vélahlífinni þar sem hann skyggir ekki á útsýnið.

Gott útsýni til allra átta. Fremst á húsinu er þakgluggi sem tengist framrúðunni með þunnum samskeytum. Ámoksturstæki í efstu stöðu.

Einangrun frá umhverfi

Vinnuumhverfið inni í vélinni er prýðilegt. Við almenna vinnu er hljóðvistin engu verri en þegar nýlegum smábíl er ekið á þjóðvegi. Þar sem traktorinn er útbúinn loftkælingu er engin þörf á að hafa glugga opinn sem hleypir inn hávaða og ryki. Sjálft ökumannshúsið fjaðrar og einangrar notandann frá verstu höggunum.

Sætið er útbúið loftpúðafjöðrun sem hreyfist annars vegar upp og niður, og hins vegar fram og aftur. Þessi góða dempun í sætinu ásamt fjaðrandi húsi gerir það að verkum að akstur vélarinnar er nokkuð þægilegur. Þessi tiltekna vél var ekki útbúin fjaðrandi framhásingu, en ekki hægt að sjá að það kæmi að neinni sök.

Húsið fjaðrar og er vel hljóðeinangrað. Ökumannssætið fjaðrar annars vegar upp og niður, og hins vegar fram og aftur. Rúmgott farþegasæti.

Rafstýrð ámoksturstæki

Við notandanum blasa fjölmargir takkar, stangir og pinnar sem stjórna hinum ýmsu eiginleikum vélarinnar bæði á stjórnborðinu hægra megin og fyrir ofan hraðamælinn. Allt virðist vera vel skrúfað saman og úr efnum sem munu endast.

Tveir stjórnpinnar eru fremst á armhvílunni hægra megin á ökumannssætinu. Pinninn sem er nær ökumanninum hreyfist ekkert, heldur er hann hugsaður sem handfang með aðgengilegum hnöppum. Þar er m.a. hægt að stjórna vendigírnum, vökvadælum og velja á milli 24 akstursþrepa. Við endurtekningarvinnu eins og slátt eða plægingu þarf notandinn ekki að hreyfa höndina oft frá þessari stöng.

Lengra til hægri er lítill pinni sem fellur vel í hendi og stjórnar ámoksturstækjunum rafrænt. Á þeim pinna eru nokkrir hnappar sem m.a. virkja þriðja sviðið og velja á milli akstursþrepa. Ekki er hnappur fyrir vendigírinn á þessum stjórnpinna og því þarf notandinn að velja akstursstefnuna með sveif vinstra megin við stýrið. Notkun ámoksturstækjanna er áreynslulaus samanborið við notkun vökvastanga.

Lengst til hægri eru svo stangir af gamla skólanum sem stjórna vökvaventlum fyrir aukahluti.

Vendigír er stjórnað með sveif vinstra megin við stýri eða með hnappi á handfangi fremst á stjórnborðinu. Ekki þarf að kúpla þegar vélin er stöðvuð eða skipt um akstursstefnu. Lítill egglaga rafmagnspinni stjórnar ámoksturstækjunum.

Kúplíng óþörf

Sá eiginleiki vélarinnar sem sölumenn Kraftvéla stæra sig mest af er Dynamic Command gírkassinn. Ökumaðurinn getur sjálfur valið á milli 24 akstursþrepa eða látið traktorinn skipta sjálfur. Kúplingsfetillinn kemur við sögu þegar vélin er ræst til að byrja með, en annars er hann óþarfur.

Nóg er að ýta á bremsuna þegar vélin er stöðvuð. Hægt er að stilla hversu harkalega gírkassinn skiptir milli akstursþrepa. Í hörðustu stillingunni er mest þol fyrir álagi, á meðan mýkstu stillinguna er hægt að nota við létta vinnu og þjóðvegaakstur. Samkvæmt markaðsefni New Holland á þessi skipting að skila af sér mikilli sparneytni samanborið við aðrar fjögurra strokka vélar. Þar af leiðandi er ekki þörf fyrir aflauka, heldur getur hún verið með allan kraftinn aðgengilegan á augabragði.

Vendigírnum er hægt að beita hvenær sem er, jafnvel á fullri ferð með hlass í eftirdragi. Þegar tekið er í áðurnefnda sveif eða hnapp breytir vélin um akstursstefnuna afar ljúflega, jafnvel þótt bremsan komi ekki við sögu.

Góð tækjavél

Í fínvinnu sést hversu vel útfærður gírkassinn er, því notandinn verður ekkert var við hann. Til eru sjálfskiptingar af þessu tagi þar sem vélin rykkist í fínvinnu, en það er alls ekki tilfellið hér.

Þessi silkimjúki gírkassi, óhindrað útsýni, nákvæmur stjórnpinni ásamt þröngum beygjuradíus gerir þessa dráttarvél að afbragðs tækjavél.

Tölur

Vélin í þessum prufuakstri kostar 16.790.000 krónur án vsk. með ámoksturstækjum. Mótorinn skilar 140 hestöflum og 630 Nm við 1.300 snúninga. Lengd án tækja er 4.397 mm, hæð frá miðju afturöxuls er 2.100 mm og breidd 2.288 mm.

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...