Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Einu elstu Levi ́s-gallabuxur heims, fundnar í námu í Nevada og taldar vera frá árinu 1873.
Einu elstu Levi ́s-gallabuxur heims, fundnar í námu í Nevada og taldar vera frá árinu 1873.
Mynd / liveauctioneers
Líf og starf 21. janúar 2025

Burt með gerviefnin

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Stöðugt rakastig jarðvegs tómataræktar á Ítalíu kom skemmtilega á óvart nú á liðnu ári en þáttur gallabuxnaframleiðanda kom þar sterkur inn.

Samkvæmt upplýsingum frá ítalska gallaefnafyrirtækinu Candiani, unnu hönnuðir þess með samlöndum sínum á efnafræðistofunni Ars Chimica Laboratorio Chimico – með nýtingu denim-afganga sem til féllu við gerð fatnaðar í fyrirtækinu.

Tilraunir á rannsóknarstofu sýndu að Coreva-gallabuxurnar geta brotnað nær algjörlega niður á allt að sex mánuðum við bestu aðstæður. Mynd / www.candiani.com

Ákveðið var að hefja rannsókn á ræktun tómata í jarðvegi auðguðum með klæðisafskurðum í garðyrkjubúinu Quintosapore sem er staðsett í héraðinu Umbria á Ítalíu.

Gerðar voru athuganir með tilliti til breytinga á efnasamsetningum og heildarheilbrigði jarðvegs í ræktunarferli tómataplantna, allt frá fræi yfir í fullvaxta plöntu og þær bornar saman við ræktun í jarðvegi án klæðisafganga.

Niðurstöður sýndu að þótt afskurði COREVA TM denimdúks væri bætt við jarðveginn breytti það ekki eðlilegri efnasamsetningu hans á neikvæðan hátt heldur ýtti undir stöðugt rakastig moldarinnar – sem bendir til þess að dúkur COREVA TM geti hjálpað til við vökvasöfnun í jarðvegi.

Hringlaga hagkerfi

Eigendur Candiani segja COREVATM denimefnið annars vera sérstaklega hannað með það fyrir augum að geta breyst í moltu á afar stuttum tíma og sundrast án allra skaðlegra eitrunaráhrifa á umhverfið, en efnið er unnið úr bómullarplöntunni Candiani Blue Seed Cotton. Blue Seed-plantan er gerð með stýrðri frævun á milli tveggja valinna „foreldraplantna“ ef svo má segja, en þessi blendingur kallar fram aukna líffræðilega virkni beggja foreldra sinna. Útkoman er því hágæðabómull, sterkar langar plöntur sem eru afar mjúkar. Blue Seed- plantan þarf einnig minna magn af vatni sem veldur því að ræktun getur átt sér stað í þurrara loftslagi.

Áður en rannsóknir tómataræktarinnar hófust höfðu eigendurnir, í samstarfi við Rodale Institute California Organic Center árið 2022, undirbúið lítinn ræktunarblett af bómullarplöntunni með það fyrir augum að gera örlitla tilraun. Efnisleifum COREVA TM denimdúks var blandað í jarðveginn og fylgst var með áhrifum hans á jarðvegsheilbrigði og vöxt plantnanna. Rannsóknin, sem stóð yfir í ár, sýndi engin skaðleg áhrif á umhverfi sitt, heldur þvert á móti aukna jarðvegsöndun og stöðugt rakastig. Þó þarna væri einungis um tilraun að ræða velti hún upp ýmsum möguleikum, þar á meðal hvort hið teygjanlega denimefni hefði jákvæð áhrif á þurran jarðveg – sem gekk svo eftir með tómataræktuninni hjá Quintosapore.

Dæmi um niðurbrot afskurðar COREVATM denimdúks á 12 vikum, úr skýrslu Candiani.

Nýstárleg lausn gegn sóun

Fyrirtækið Candiani Denim hefur einkaleyfi á denimefninu, sem er raunverulegur valkostur við gervitrefjar og er afar teygjanlegt. Nú gætu sumir velt fyrir sér hvort önnur gallaefni úr bómull, t.a.m. á borð við denimefni Levi‘s, brotni ekki niður í náttúrunni og séu því tiltölulega umhverfisvæn ... og svarið er jú, sérstaklega við réttar aðstæður og ef efnið er úr 100% bómull. Talið er að 100% bómullardenim taki um eitt ár að brotna niður í safnhaugi moltugerðar. Hins vegar brotnar denimefni blandað teygjanlegu gerviefni mishratt niður. Bómullarhlutinn tekur um ár á meðan nælonið getur tekið 40 ár og niðurbrot pólýester tekur allt að 200 ár. Fyrir utan allt annað menga þessi gerviefni við förgun og losa eitruð efni út í umhverfið.

Þótt hefðbundin teygjuefni gallabuxna séu allskaðvænleg getur COREVATM brotnað mun hraðar niður, orðið að rotmassa við réttar aðstæður. Hvati hönnuða COREVATM var sá að tískuiðnaðurinn eigi við ofneyslu og offramleiðsluvanda að etja og því hafi markmiðið verið að bjóða tískuiðnaðinum nýstárlega lausn til að berjast gegn sóun.

Þetta eru orð að sönnu og forvitnilegt að vita hvað framtíðin ber í skauti sér. Á hverju ári eru framleiddar milljarðar flíka sem margar hverjar enda lífdaga sína á urðunarstað þar sem mengun er allsráðandi – oft lítið sem ekkert notaðar. Samkvæmt stofnuninni Changing Markets Foundation hefur fjöldi skipta sem fatnaður er notaður fækkað um 36% á síðustu 15 árum þrátt fyrir tvöföldun framleiðslu. Þetta eru sláandi tölur en stofnunin, sem er í samstarfi við frjáls félagasamtök um markaðsmiðaðar herferðir sem afhjúpa óábyrga fyrirtækjahætti, er leiðandi afl þess að knýja fram breytingar í átt að sjálfbærara hagkerfi – og áhugavert að fylgjast með.

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...