Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Bænder
Líf og starf 19. júní 2026

Bænder

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Fyrir um tveimur árum birtist einhvers konar stefnumótasíða hér í Bændablaðinu sem kitlaði landsmenn á stöðum sem þá óraði ekki fyrir.

Bænder vakti athygli.

Færri komust að en vildu í hóp þeirra útvöldu, en fiðringur fór um landið þegar við hófum úthringingar fyrir efnið. Eftir að blaðið fór í dreifingu var eins og við manninn mælt að ákafur skjálfti hríslaðist um landsmenn.

Fjölmiðlar gripu efnið, bæði útvarp og blöð, og vakti það mikla lukku. Til viðbótar fengu starfsmenn Bændablaðsins sendar ýmiss konar fyrirspurnir en mikill áhugi var fyrir að fá að komast að í næsta Bænder.

Einnig má bæta því við að Bænder var næstmest lesna grein Bændablaðsins árið 2024, í fyrsta sæti stóð Réttarlistinn.

Ætlar þú að taka þátt?

Nú er komið að því, kæru landsmenn, næsti Bænder birtist í júlíblaðinu fyrir sumarfrí. Því er um að gera að hafa samband og vera með – eða mæla með vinum eða vandamönnum sem eru komnir með nóg af því að vera einhleypir.

Okkur þykir vænst um að fá að heyra frá fólki sem víðast yfir landið þannig nú skal ekki hika!

Vinsamlegast sendið póst á netfangið sigrunpeturs[hjá]bondi.is með helstu upplýsingum, mynd, auk óska um hvaða kosti maki þarf að bera – eða einfaldlega símanúmer og upplýsingar um þann sem ykkur líst á að gæti notið góðs af þessu uppátæki.

Skylt efni: Bænder

Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku: Er af grjót...

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...