Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Skógarfjör
Hannyrðahornið 4. nóvember 2022

Skógarfjör

Fallegir jólalegir sokkar prjónaðir úr Drops Nord

DROPS Design: Mynstur no-051

Stærðir: 35/37 (38/40) 41/43

  • Lengd fótar: 22 (24) 27 cm
  • Hæðásokkniðuraðhæl:Ca17(18)19cm

Garn: DROPS NORD (fæst hjá Handverkskúnst)

  • Skógargrænn nr 19: 100 (100) 100 g
  • Perlugrár nr 03: 50 g í allar stærðir

Prjónar: Sokkaprjónar nr 2,5 eða sú stærð sem þarf til að fá 26 lykkjur x 34 umferðir = 10x10 cm

LEIÐBEININGAR-1 (á við um marglitt mynstur):

Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl):

Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði.

ÚRTAKA-1 (á við um mitt aftan á sokk):

Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= fækkað um 2 lykkjur).

ÚRTAKA-2 (á við um tá):

Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki þannig:

Prjónið þar til 3 lykkjur eru að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= fækkað um 2 lykkjur).

HÆLÚRTAKA:

Umferð 1 (rétta): Prjónið slétt þar til 7 (8) 8 lykkjur
eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið við.

Umferð 2 (rangan): Prjónið brugðið þar til 7 (8) 8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið við.

Umferð 3 (rétta): Prjónið slétt þar til 6 (7) 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið við.

Umferð 4 (ranga): Prjónið brugðið þar til 6 (7) 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið við.

Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkju færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14 (14) 16 lykkjur eru eftir á prjóni.

SOKKUR:

Fitjið upp 72 (80) 80 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með perlugrárum í DROPS Nord.

Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) allt 3 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón og fækkið jafnframt um 8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 64 (72) 72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt aftan á sokknum.

Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 8 (9) 9 mynstureiningar á breidd með 8 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með litnum skógargrænn. JAFNFRAMT í 2. umferð er fækkað um 0 (4) 0 lykkjur jafnt yfir = 64 (68) 72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 2 (21⁄2) 21⁄2 cm millibili alls 5 sinnum = 54 (58) 62 lykkjur.

Prjónið þar til stykkið mælist 17 (18) 19 cm frá uppfitjunarkanti (eða að óskaðri lengd á legg).

Prjónið hæl: Haldið eftir fyrstu 13 (14) 15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28 (30) 32 lykkjur á þráð án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13 (14) 15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26 (28) 30 lykkjur fyrir hæl. Klippið þráðinn.

Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur með litnum skógargrænn í 5 (51⁄2) 6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð – prjónamerkin eru notuð síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14 (14) 16 hællykkjur, prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur meðfram hlið á hæl innan við 1 kantlykkju, prjónið sléttprjón yfir 28 (30) 32 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl innan við 1 kantlykkju = 68 (72) 80 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl, umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28 (30) 32 lykkjur mitt ofan á fæti.

Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 28 (30) 32 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á UNDAN 28 (30) 32 lykkjum á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á EFTIR 28 (30) 32 lykkjum á fæti snúnar slétt saman (= fækkað um 2 lykkjur). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8 (8) 10 sinnum = 52 (56) 60 lykkjur.

Prjónið áfram þar til stykkið mælist 141⁄2 (151⁄2) 171⁄2 cm frá prjónamerki fyrir hæl – mælt undir fæti. Nú eru eftir ca 71⁄2 (81⁄2) 91⁄2 cm til loka máls. Mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4 (0) 4 lykkjur jafnt yfir = 56 (56) 64 lykkjur. Prjónið nú A.2 hringinn (= 7 (7) 8 mynstureiningar á breidd með 8 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, mælist stykkið ca 18 (19) 21 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti (nú eru eftir ca 4 (5) 6 cm til loka máls – prjónið e.t.v. sléttprjón með litnum perlugrár að óskuðu máli fyrir tá). Takið frá eldri prjónamerki og setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 28 (28) 32 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum perlugrár og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= fækkað um 4 lykkjur). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 (8) 10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5 (2) 1 sinnum = 16 (16) 20 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8 (8) 10 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræði í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Prjónið hinn sokkinn alveg eins.

Við biðjumst velvirðingar á því að prjónamynstrið fylgdi ekki með í grein blaðsins.

Skylt efni: sokkar

Lillemor bylgjuteppi
Hannyrðahornið 23. apríl 2024

Lillemor bylgjuteppi

Uppskriftina með fleiri myndum og nánari leiðbeiningum er að finna á www.GARN.is...

Kaðlahúfa
Hannyrðahornið 10. apríl 2024

Kaðlahúfa

Ein stærð, fullorðins

Létt pils fyrir sumarið
Hannyrðahornið 19. mars 2024

Létt pils fyrir sumarið

Létt og skemmtilegt pils prjónað úr Drops Safran. Nýttu þér 30% bómullarafslátti...

Baldur
Hannyrðahornið 5. mars 2024

Baldur

Stærðir: S M L XL

Þykk og góð hipsterhúfa
Hannyrðahornið 20. febrúar 2024

Þykk og góð hipsterhúfa

Fljótprjónuð húfa úr DROPS Snow á prjóna númer 7. Snow er ullargarn sem fæst í 5...

Yrja vettlingar
Hannyrðahornið 6. febrúar 2024

Yrja vettlingar

EFNI: 75g Hörpugull og sauðalitaður þingborgarlopi – undið tvöfalt

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin
Hannyrðahornið 23. janúar 2024

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin

Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað fram og til bak...

Jólahúfa
Hannyrðahornið 19. desember 2023

Jólahúfa

Ein stærð