Raforkukostnaður lækkar í dreifbýli
Jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku milli dreifbýlis og þéttbýlis eykst úr rúmum 60% í tæplega 90% með nýjum lögum sem tóku gildi þann 1. júlí og ættu áhrifin að birtast strax í rafmagnsreikningum sem berast heimilum og fyrirtækjum í upphafi næsta mánaðar.

