Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Efriröðfrávinstri:SigurðurFriðrikÞórsson,ZoePidakou,JarþrúðurHólmdís Júlíusdóttir, Sandra Ester Jónsdóttir, Andri Þór Ómarsson, Margrét Inga Guðmundsdóttir, Stefán Bogi Sveinsson og Jón Vigfússon. Neðri röð frá vinstri: María Sigurðardóttir, Árný Birta Eysteinsdóttir, Sólgerður Vala Kristófersdóttir. Ágúst Bragi Daðason, Víðir Már Pétursson og Auðbjörg Elfa Stefánsdóttir.

Mynd / Aðsendar
Líf og starf 2. nóvember 2022

Gulleyjan sívinsæla

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Verkið Gulleyjan í höndum Valgeirs Skagfjörð leikstjóra var frumsýnt sunnudaginn 23. október en söguna þekkja margir frá barnæsku.

Sólgerður Vala Kristófersdóttir, Sandra Ester Jónsdóttir og Stefán Bogi Sveinsson.

Verkið er skrifað það herrans ár 1882 af skoska rithöfundinum og ljóðskáldinu Robert Louis Stevenson og fjallar í stórum dráttum um ævintýralegustu fjársjóðsleit allra tíma. Má segja að þarna sé um fyrirmynd allra sjóræningjasagna að ræða og með hinn vel kynnta Langa John Silver í einu aðalhlutverkinu. Gulleyjan er leik- og söngleikur af bestu gerð fyrir alla fjölskylduna eftir Robert Louis Stevenson, eins og áður sagði, en einnig þá Karl Ágúst Úlfsson og Sigurð Sigurjónsson.

Sýningin er full af kostulegum persónum, bardögum og allsherjar göldrum enda slá hér liðsmenn Leikfélags Fljótdalshéraðs rækilega í gegn á fjölunum.

Sýnt verður í glæsilegu, nýuppgerðu menningarhúsi á Egilsstöðum, Sláturhúsinu, en frumsýnt er 29. október næstkomandi. Aðrir sýningadagar Gulleyjunnar eru svo 30. október kl. 15.00, 2. nóvember kl. 18.00, 3. nóvember kl. 18.00, 5. nóvember kl. 15.00, 6. nóvember kl. 15.00, 10. nóvember, kl. 18.00 og 12. nóvember, kl. 15.00.

Hægt er að tryggja sér miða á vefsíðunni bit.ly/gulleyjan.

Tónlistarkennari hlaut menningarverðlaun
Líf og starf 25. júlí 2024

Tónlistarkennari hlaut menningarverðlaun

Tónlistarkennarinn Marika Alavere hlaut menningarverðlaun Þingeyjarsveitar árið ...

Telur árangurinn á EM viðunandi
Líf og starf 23. júlí 2024

Telur árangurinn á EM viðunandi

Evrópumótinu í bridds lauk í síðustu viku í Herning í Danmörku. Ísland sendi út ...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 22. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Kóngurinn í Skagafirði
Líf og starf 22. júlí 2024

Kóngurinn í Skagafirði

Jón Arnljótsson, sauðfjárbóndi á Ytri- Mælifellsá í Skagafirði, hefur lengi veri...

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar
Líf og starf 18. júlí 2024

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar

Skoða á hefðir og notkun óhefðbundinna lækninga á Íslandi í norrænni rannsókn. A...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 18. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...