Vindmyllur fluttar úr Þorlákshöfn í Vaðölduver
Landsvirkjun er nú af fullum krafti að undirbúa flutning á 28 vindmyllum í Vaðölduver en þar á að reisa fyrsta vindorkuver landsins á stærsta aflsvæði Landsvirkjunar, Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.
Vindmyllurnar koma með skipi í Þorlákshöfn frá þýska vindmylluframleiðandanum Enercon en skipið kemur með tvær vindmyllur í hverri ferð. Flutningsleiðin er um 130 kílómetrar en alls verða farnir 350 flutningar vorið 2026 og vorið 2027.
Flutningarnir munu fara fram sex daga vikunnar að nóttu til og er meðalhraði flutningalestarinnar áætlaður um 30 km á klukkustund, sem þýðir að ferðatími frá Þorlákshöfn í Vaðölduver verður yfirleitt fjórar til sex klukkustundir.
Gunnar Aron Ólason er upplýsingafulltrúi nýframkvæmda hjá Landsvirkjun og þekkir því vel til málsins. „Undirbúningsframkvæmdir hafa staðið yfir frá hausti 2024 og fela m.a. í sér vegagerð, aðstöðu á verkstað og ítarlega flutningsáætlun. Núna snýst vinnan einkum um að fullklára áætlanir, leyfisveitingar, samninga og samhæfingu við hlutaðeigandi aðila ásamt því að ráðast í nauðsynlegar vegbætur og lagfæringar á flutningsleiðinni. Þar er uppbygging efri hluta Landvegar í Rangárþingi ytra stærsta og ein mikilvægasta framkvæmdin, vegurinn er styrktur sérstaklega fyrir flutninginn, ný 16 metra löng brú byggð og tæplega 14 km vegkafli lagður bundnu slitlagi,“ segir Gunnar.
10 sérútbúnir flutningabílar
Gert er ráð fyrir um 10 sérútbúnum flutningabílum með sérvögnum fyrir helstu einingar myllanna. Þar að auki bætast við fylgdarbílar, merkingar- og lokanateymi og þeir aðilar, sem sinna umferðarstýringu, öryggi og samhæfingu. Fyrir hverja vindmyllu þarf 13 leyfisskylda flutninga þannig að fyrir allar vindmyllurnar 28 verða leyfisskyldir flutningar yfir 350 talsins. Hver flutningslest getur orðið allt að 250 m löng.
14 vindmyllur fluttar í vor
En hvenær hefjast flutningarnir á vindmyllunum?
„Flutningar á fyrri fjórtán vindmyllunum eru áætlaðir í vor eða sumarbyrjun. Nákvæmar dagsetningar, lokanir og hjáleiðir verða auglýstar rækilega þegar nær dregur. Seinni fjórtán myllurnar verða svo fluttar á sama tíma að ári en hvort flutningstímabil er 7–9 vikur,“ segir Gunnar og bætir við að verkefnið sé mjög spennandi og skemmtilegt. „Já, svo sannarlega, því þetta eru líklega stærstu þungaflutningar Íslandssögunnar og það er mjög skemmtilegt og spennandi að taka þátt í undirbúningi verkefnis sem hefur aldrei verið unnið áður hérlendis. Stærðargráða og tæknileg útfærsla flutninganna er krefjandi en um leið er þetta mjög agað öryggis- og skipulagsverkefni þar sem áherslan er alltaf á öryggi, samvinnu og góða upplýsingagjöf,“ segir Gunnar.
Sérstök upplýsingasíða um flutningana
Að lokum má geta þess að Landsvirkjun hefur komið upp upplýsingasíðu um flutningana í Vaðölduver, sem er komin í loftið á vef Landsvirkjunar en slóðin er www.landsvirkjun.is/flutningar. Þar má m.a. finna almennt yfirlit yfir flutningana, kort af flutningsleið, áætlaðar tímasetningar og vegbætur, ásamt svörum við algengum spurningum.
„Tilgangurinn með þessari upplýsingasíðu er að tryggja opna og skýra og tímanlega upplýsingagjöf til íbúa, vegfarenda, fyrirtækja og annarra sem gætu orðið fyrir áhrifum af flutningunum. Við hvetjum alla til að fylgjast með uppfærslum á síðunni þegar nær dregur,“ segir Gunnar.
