Ingvi með tveimur sona sinna sem eru duglegir í búskapnum. Þetta eru þeir Tristan Darri, sem er hægra megin, bústjóri á búinu og svo er það Frans Heiðar, sem er í námi en vinnur við búið á sumrin.
Ingvi með tveimur sona sinna sem eru duglegir í búskapnum. Þetta eru þeir Tristan Darri, sem er hægra megin, bústjóri á búinu og svo er það Frans Heiðar, sem er í námi en vinnur við búið á sumrin.
Mynd / mhh
Viðtal 8. maí 2026

Svínabúið á Sölvastöðum fékk hvatningarverðlaunin

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Eigendur svínabúsins á Sölvastöðum í Eyjafirði brosa breitt þessa dagana því hvatningarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar fóru til búsins og eigenda þess á dögunum fyrir árið 2025. Búið er með 400 gyltur.

„Þetta kom nú bara ánægjulega á óvart, mér þótti pínu vænt um þetta af því pabbi heitinn fékk þessi verðlaun fyrir tæpum tveimur áratugum. Við erum mjög stolt og lukkuleg með verðlaunin en þau ýta líka við okkur að gera aðeins betur á morgun heldur en í dag“ segir Ingvi aðspurður um viðbrögð við verðlaununum frá búnaðarsambandinu.

400 gyltur og framleiðslan aukin

Ingvi segir að saga búsins sé sú að þróunin síðasta áratuginn hafi verið sú að hætta var á að þessi framleiðsla myndi leggjast af fyrir norðan. Hagsmunaaðilar á svæðinu, þ.e. Svínabúið í Teigi Kjarnafæði/ Norðlenska og Bústólpi hafa um langt skeið því skoðað að koma upp svínabúi í Eyjafirði á Sölvastöðum. „Það varð svo loksins að veruleika að byggt var nýtt gyltubú frá grunni. Búið er í eigu þessara aðila. Búið er með 400 gyltur og við erum hægt og sígandi að ná að auka framleiðsluna, aðbúnaðurinn fyrir bæði skepnur og menn er að okkar mati mjög góður og því gengur vel í búskapnum. En vissulega er rekstrarumhverfið krefjandi eins og flestir ef ekki allir þekkja sem standa í fjárfestingum,“ segir Ingvi.

Svínabúið er eitt það glæsilegasta á Íslandi enda er góður aðbúnaður svínanna eitt af aðalatriðum í rekstri búsins.

Mikil eftirspurn eftir svínakjöti

Þegar Ingvi er spurður hvort það sé alltaf næg eftirspurn eftir íslensku svínakjöti verður hann fljótur til svars. „Já, já, eftirspurnin er klárlega til staðar, því miður hafa margir kollegar mínir þrátt fyrir það ákveðið að hætta rekstri á síðustu árum. Þar vegur þyngst að bændur hafa ekki treyst sér til að fjárfesta í bættum aðbúnaði vegna þess hvað kostnaðurinn er mikill og því frekar valið að hætta rekstri,“ segir hann.

Mikill innflutningur á svínakjöti

Ingvi segir mikið flutt inn til landsins af svínakjöti. „Já, eins og ég nefndi þá eykst eftirspurn eftir svínakjöti stöðugt og þegar innlendi markaðurinn framleiðir ekki í samræmi við það eykst innflutningur. Hér áður fyrr var oft talað um ofurtolla og tollverndin var vissulega mjög mikil ef við horfum einhverja tvo til þrjá áratugi aftur í tímann. Frá árinu 1995 rýrnar tollverndin hins vegar stöðugt í verðgildi þar sem svokallaðir magntollar voru þá festir í ákveðnum krónutölum. Einnig voru tollar lækkaðir handvirkt og einhliða um 40% árið 2007. Þetta ásamt stórauknum tollkvótum sem var samið um árið 2015 hefur gert dæmið ansi snúið fyrir íslenska bændur svo ekki sé meira sagt,“ segir Ingvi brúnaþungur.

Skemmtilegast að sjá gylturnar gjóta

Ingvi segir starf svínabóndans skemmtilegt. „Vinnudagurinn er mjög fjölbreytilegur og fer held ég sjaldnast eins og maður leggur hann upp þegar maður leggst á koddann um kvöldið. Fyrir mig persónulega er það að vera í gotinu og sjá gylturnar gjóta. Fylgjast með því hvað þær eru misjafnar að eðlisfari alveg eins og við mannfólkið. Sumar svo ljúfar og yndislegar en aðrar kannski ekki alveg eins skemmtilegar,“segir hann og skellihlær.

Byggja eldisgrísabú

Þegar talið berst að frekari fram- kvæmdum á Sölvastöðum segir Ingvi að fjölskylduna langi mjög mikið til að taka næsta skref í búrekstrinum sem er þá að byggja eldisgrísabú á Sölvastöðum. „Það væri algjör draumur að geta haft megnið af framleiðslunni alla á einum stað og byggja hús þar sem við getum enn frekar aukið rými á gripunum eins og við gerðum þegar við byggðum gyltubúið,“ segir hann.

Mikilvægi tollverndarinnar fyrir landbúnaðinn

Það er greinilegt að tollverndin er mjög ofarlega í huga hjá Ingva. „Já, það verður þá áframhaldandi væl um mikilvægi tollverndarinnar fyrir íslenskan landbúnað. Ég er stundum skammaður fyrir að tala svona mikið um tollverndina. Þetta sé leiðinlegt umræðuefni og að það nenni hvort eð er enginn að hlusta á þetta. 

Staðreyndin er nú samt sú að það eru fá ef nokkur lönd sem þurfa jafnmikið á tollvernd að halda í landbúnaði eins og Ísland. Rökin eru augljós, við erum hátekjuland og erum að stunda það sem ESB skilgreinir sem heimskautalandbúnað.

Ef við horfum á Excel-inn eigum við auðvitað bara að láta einhverjar þjóðir sunnar í jarðarkringlunni sjá um þetta fyrir okkur,“ segir Ingvi og bætir við. „Þar kostar vinnuaflið brot af því sem það kostar hér og uppskera á flatareiningu lands er margföld á við það sem við þekkjum hér á landi.

Á móti má líka spyrja, er það skynsamlegt fyrir eyland sem er með fólksfjölda á við þorp í Evrópu að treysta alfarið á að komast í matarkistur hjá öðrum þjóðum eins og heimsmálin eru að þróast um þessar stundir?

Í öllu falli met ég það sem svo að við næstu búvörusamninga þurfi að verða mjög kröftug viðspyrna, þ.a. íslenskur landbúnaður nái aftur vopnum sínum. Við sjáum öll sem keyrum um sveitir landsins að það þarf gríðarlega innspýtingu til að fjárfesta meira í nýjum húsum og aukinni tæknivæðingu. Ef það tekst er framtíðin björt fyrir íslenska bændur,“ segir Ingvi, svínabóndi á Sölvastöðum í Eyjafirði. 

Skylt efni: Svínarækt | sölvastaðir

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt